FH Handbolti

FH Handbolti

Share

FH Handbolti

05/06/2026

Fyrstu SPAR verslanirnar opna formlega á morgun, laugardaginn 6. júní kl. 12, í Staðarbergi í Hafnarfirði og á Barónsstíg í Reykjavík.

Verslunarkeðjan SPAR er nýr aðalsamstarfsaðili handknattleiksdeildar FH til næstu þriggja ára.

„Það er okkar ánægja að hefja samstarf við FH. Samstarfið byggir á sameiginlegum gildum um heilsu, hreyfingu og öflugt samfélag en SPAR International hefur í áratugi verið þátttakandi í samfélagsverkefnum og stutt við afreks- og íþróttastarf. Við erum sannfærð um að þetta eigi eftir að verða farsælt samstarf. Samstarfið við þessa öflugu alþjóðlegu verslunarkeðju er stórt skref fyrir Samkaup, dótturfélag Dranga, og mun styrkja bæði vöruúrval og upplifun viðskiptavina okkar, auk þess sem við getum lækkað verð,“ sagði Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga.

„Það að fá SPAR til liðs við okkur er gríðarlega mikilvægt fyrir áframhaldandi vöxt handknattleiksdeildar FH og við erum stolt af samstarfi við fyrirtæki sem deilir með okkur sýn um heilbrigði, samfélagsábyrgð og mikilvægi íþróttastarfs” sagði Ágúst Bjarni Garðarsson, formaður handknattleiksdeildar FH, við undirritunina. „FH og SPAR leggja bæði áherslu á fagmennsku, árangur og framúrskarandi þjónustu og því er óhætt að segja að samstarfið hitti í beint mark” bætti Ágúst Bjarni við.

Photos from FH Handbolti's post 03/06/2026

FH-ingar sópuðu til sín verðlaunum á lokahófi HSÍ👏

Lokahóf HSÍ fór fram í dag en þar voru veitt einstaklingsverðlaun fyrir Olísdeildir og Grill 66 deildir karla og kvenna. Við FH-ingar hlutum þar fern verðlaun en þau voru eftirfarandi:

Efnilegasti leikmaður Olísdeildar karla
- Ómar Darri Sigurgeirsson

Besti varnarmaður Olísdeildar karla
- Ingvar Dagur Gunnarsson

Besti markmaður Olísdeildar karla
- Jón Þórarinn Þorsteinsson

Efnilegasti leikmaður Grill 66 deildar karla
- Brynjar Narfi Arndal (með ÍH)

Innilega til hamingju!
Við erum FH 🖤🤍

Photos from FH Handbolti's post 03/06/2026

Freyja Jónsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild FH. Freyja, sem fædd er árið 2009, gekk til liðs við félagið í október sl. frá Stjörnunni. Hún gerði svo meistaraflokkssamning við FH í febrúar og tók þátt í síðustu leikjum FH-liðsins í Grill 66 deildinni. Freyja er efnilegur vinstri hornamaður sem hefur verið í æfingahópum yngri landsliða Íslands.

Við erum virklega ánægð með að Freyja hafi framlengt samninginn sinn við félagið og hlökkum til að sjá hana vaxa og dafna í FH-treyjunni á næstu árum.

Við erum FH 🖤🤍

01/06/2026

Máni fer í nám til Bandaríkjanna

Kristófer Máni Jónasson hefur leikið sinn síðasta leik í bili fyrir FH en hann heldur í sumar til Seattle í Bandaríkjunum í meistaranám í byggingar- og fasteignastjórnun. Máni kom til FH-liðsins í lok október og stóð sig virkilega vel með liðinu á tímabilinu og leysti bæði stöðu hornamanns og skyttu. Hann var m.a. þriðji markahæsti leikmaður liðsins í úrslitakeppninni með 36 mörk.

Við óskum Mána góðs gengis í náminu og vonumst til að sjá hann aftur í FH-treyjunni að námi loknu!

Takk Máni 🖤🤍

Photos from FH Handbolti's post 31/05/2026

Styrktar-Dagur í Kaplakrika!
Fimmtudaginn 4. júní frá 17:00-20:00.
Öllum er velkomið að koma og taka þátt!

Dagur Logi æfir handbolta og frjálsar með FH, en Dagur greindist nýlega með krabbamein og því ætlar frjálsíþróttadeildin og handknattleiksdeildin að sameinast um styrktarviðburð i Kaplakrika fyrir fjölskylduna og öll eru velkomin að taka þátt.

🤾SOFTBALL mót i handboltasalnum.
6-8 leikmenn í hverju liði.
Kostar 15.000 kr. fyrir liðið, velkomið að koma í búningum.
Skráning her: https://forms.gle/UAR3ZxuWFWe8mNTN9

🏃🏼‍♂️BOÐHLAUP í frjálsíþróttahúsinu.
Boðhlaupskefli gengur stanslaust í 3 klukkutíma þar sem við vinnum saman að þvi að komast í mark.
Kostar 2.000 kr. að taka þátt, greiðist við mætingu.

Hvetjum ykkur til að koma og vera með og stöndum saman.

Endilega deilið áfram og fjölmennum.

Einnig er hægt að styrkja Dag Loga hér með frjálsum framlögum:
rn. 0511-14-117097
kt. 1306852699

Photos from FH Handbolti's post 30/05/2026

Lokahóf handknattleiksdeildar FH

Lokahóf handknattleiksdeildar FH var haldið með pompi og prakt á Ölhúsinu í Hafnarfirði í gær. Leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn og sjálfboðaliðar fjölmenntu á hófið sem var virkilega vel heppnað.

Fjölmörg verðlaun voru veitt, sem og aðrar viðurkenningar.

Mfl. karla FH
- Besti leikmaður: Garðar Ingi Sindrason
- Efnilegasti leikmaður: Ómar Darri Sigurgeirsson
- Mikilvægasti leikmaður: Jón Bjarni Ólafsson
- RISA-bikar baráttuanda og FH-hjarta: Birgir Már Birgisson

Mfl. kvenna FH
- Besti leikmaður: Szonja Szöke
- Efnilegasti leikmaður: Eva Guðrúnardóttir Long
- Mikilvægasti leikmaður: Thelma Dögg Einarsdóttir
- RISA-bikar baráttuanda og FH-hjarta: Telma Medos

ÍH
- Besti leikmaður: Bjarki Jóhannsson
- Efnilegasti leikmaður: Brynjar Narfi Arndal
- Mikilvægasti leikmaður: Benedikt Elvar Skarphéðinsson
- Baráttubikarinn: Þórarinn Þórarinsson

Áfangaleikir
- Garðar Ingi Sindrason: 100 leikir
- Gyða Kristín Ásgeirsdóttir: 100 leikir
- Símon Michael Guðjónsson: 100 leikir
- Leonharð Þorgeir Harðarson: 200 leikir
- Jakob Martin Ásgeirsson: 300 leikir

Silfurmerki FH með lárviðarsveig fyrir 20 ára frábært starf fyrir FH
- Hilmar Bjarki Snorrason
- Hilmir Lundevik
- Sigrún Gilsdóttir

Sjálfboðaliðaviðurkenning fyrir frábært framlag til hkd. FH
- Ásdís Björk Kristjánsdóttir
- Björgvin Þór Þorgeirsson
- Lísa Sigurðardóttir

Garðar Ingi, Birgir Már og Ágúst Birgisson voru kvaddir og þakkað fyrir þeirra ómetanlega framlag til félagsins. Garðar Ingi og Birgir Már halda út í atvinnumennsku í sumar og fyrirliðinn Ágúst Birgisson hefur lagt skóna á hilluna.

Ólafi Guðlaugssyni var þakkað sérstaklega fyrir hans stjórnarsetu og sjálfboðaliðastörf fyrir félagið. Þá voru Einari Andra Einarssyni og Sigurgeiri Árna Ægissyni veittur þakklættisvottur fyrir góð störf.

Við erum FH.

Photos from FH Handbolti's post 29/05/2026

Lokahóf yngri flokka fór fram í vikunni. Iðkendur og forráðamenn 5.-9. flokks komu saman í handboltasalnum þar sem yngstu iðkendurnir fengu þátttökumedalíu fyrir veturinn og einstaklingsverðlaun voru veitt í 5. flokki. Iðkendur 3. og 4. flokks hittust svo í veislusal Kaplakrika þar sem einstaklingsverðlaun voru veitt.

Handboltaveturinn var virkilega skemmtilegur. Starfið hefur sjaldan verið blómlegra en iðkendafjöldinn í handboltanum hjá FH hefur aldrei verið meiri. Algjörlega frábær mæting var á hófið en samtals voru um 700 manns mættir til að kveðja veturinn.

Ásbjörn Friðriksson og Pétur Pálsson voru valdir yngri flokka þjálfarar ársins og tóku því við Hallsteins-bikarnum sem veittur er ár hvert.

Eftirfarandi leikmenn voru verðlaunaðir:

5. flokkur karla eldri:

- Leikmaður ársins: Fannar Helgi Kristinsson.
- Mestu framfarir: Andri Marinó Kjartansson.
- FH-ingur ársins: Emil Trausti Davíðsson.

5. flokkur karla yngri:

Leikmaður ársins: Hafsteinn Þór Ágústsson.
Mestu framfarir: Breki Þór Gunnarsson.
FH-ingur ársins: Gestur Þór Ingólfsson.

5. flokkur kvenna eldri:

- Leikmaður ársins: Hanna Júlíana Ísleifsdóttir
- Mestu framfarir: Sóldís Ebba Þorsteinsdóttir
- FH-ingur ársins: Fríða Emilía Davíðsdóttir

5. flokkur kvenna yngri:

- Leikmaður ársins: Steindóra María Ómarsdóttir
- Mestu framfarir: Sara Sif Matus
- FH-ingur ársins: Urður Gunnarsdóttir

4. flokkur karla

Leikmaður ársins: Logi Kalman Kolbrúnars. Ingason
Mestu framfarir: Pétur Alex Pétursson
FH-ingur ársins: Viðar Breki Davíðsson

4. flokkur kvenna

Leikmaður ársins: Elma Kolbrún Bjarnadóttir
Mestu framfarir: Karen Elba Hafþórsdóttir
FH-ingur ársins: Hulda Þorradóttir

3. flokkur karla

Leikmaður ársins: Brynjar Narfi Arndal
Mestu framfarir: Ásgeir Jökull Jóhannsson
FH-ingur ársins: Benedikt Einar Helgason

3. flokkur kvenna

Leikmaður ársins: Elísa Björt Ágústsdóttir
Mestu framfarir: Ólafía Þóra Klein
FH-ingur ársins: Dagný Þorgilsdóttir

Takk fyrir veturinn - Við erum FH!

Photos from FH Handbolti's post 28/05/2026

Aron ráðinn þjálfari FH og SPAR nýr aðalsamtarfsaðili

Aron Pálmarsson var í dag kynntur sem nýr þjálfari mfl. karla á blaðamannafundi í Kaplakrika. Þetta er fyrsta aðalþjálfarastarf Arons. Hann tekur við starfinu af Sigursteini Arndal sem stýrt hefur liðinu síðastliðin sjö tímabil með frábærum árangri. Sigursteinn mun taka að sér starf aðstoðarþjálfara sem Aron hefur sinnt síðustu mánuði.

Samhliða þjálfararáðningunni var verslunarkeðjan SPAR kynnt sem nýr aðalsamstarfsaðili handknattleiksdeildar FH. Vörumerki SPAR mun m.a. vera á öllum keppnisbúningum meistaraflokka og yngri flokka FH. SPAR er ný alþjóðleg smásölukeðja á Íslandi. Fyrstu SPAR verslanirnar verða opnaðar formlega laugardaginn 6. júní í Staðarbergi í Hafnarfirði, þar sem Krambúðin var áður, og á Barónsstíg, þar sem Extra var áður. Á næstu tveimur árum verður verslunum Krambúðar, Kjörbúðar og 10–11 einnig breytt í SPAR verslanir.

27/05/2026

Blaðamannafundur

Handknattleiksdeild FH boðar til blaðamannafundar á morgun, fimmtudag, kl. 13:30 í veislusalnum Sjónarhóli í Kaplakrika.

Efni fundarins: Þjálfaramál meistaraflokks karla og nýr aðalstyrktaraðili handknattleiksdeildar FH.

Við erum FH.

26/05/2026

Landsliðsfréttir

Landsliðsþjálfarar yngri landsliða hafa síðustu vikur valið leikmenn til æfinga og í verkefnin framundan í sumar.

// U15 karla
Viðar Breki Davíðsson var valinn í 16 manna keppnishóp sem leika vináttulandsleiki við Færeyjar í júní en leikið verður í Færeyjum. Benedikt Aron Sigurgeirsson var valinn til vara í hópinn. Kristinn Björgúlfsson og Halldór Örn Tryggvason eru þjálfarar liðsins.

// U16 kvenna
Elma Kolbrún Bjarnadóttir var valin í 16 manna lokahóp sem tekur þátt European Open í sumar. Mótið verður haldið í Gautaborg í Svíþjóð. Rakel Dögg Bragadóttir og Einar Jónsson eru þjálfarar liðsins.

// U16 karla
Brynjar Narfi Arndal var valinn í 16 manna keppnishóp sem leika vináttulandsleiki við Færeyjar í júní en leikið verður hér á Íslandi. Logi Kalman Kolbrúnars. Ingason var valinn til vara í hópinn. Ásbjörn Friðriksson og Ólafur Stefánsson eru þjálfarar liðsins.

// U18 kvenna
Dagný Þorgilsdóttir var valin til vara í hópinn sem sem kemur til æfinga fyrir verkefni sumarsins. Grétar Áki Andersen og Sólveig Lára Kjærnested eru þjálfarar liðsins.

// U18 karla
Ómar Darri Sigurgeirsson og Brynjar Narfi Arndal hafa verið valdir í lokahóp sem tekur þátt í Evrópumótinu í sumar en leikið verður í Serbíu. Ásgeir Örn Hallgrímsson og Andri Sigfússon eru þjálfarar liðsins.

// U20 kvenna
Gyða Kristín Ásgeirsdóttir var valin til vara í landsliðshópinn sem fer á HM í Kína í sumar. Halldór Stefán Haraldsson er þjálfari liðsins.

// U20 karla
Garðar Ingi Sindrason og Ingvar Dagur Gunnarsson hafa verið valdir í lokahóp fyrir komandi Evrópumót sem fer fram í Rúmeníu í sumar. Ágúst Þór Jóhannsson og Maksim Akbachev eru þjálfarar liðsins.

Til hamingju, öll - áfram FH

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address

Kaplakriki
Hafnarfjörður
220