Ungmennafélagið Afturelding

Ungmennafélagið Afturelding

Share

Félagið stofnað 11. apríl 1909. Aðsetur þess er í íþróttamiðstöðinni að Vamá, Mosfellsbæ. Opinber Facebooksíða Ungmennafélagsins Aftureldingar.

27/05/2026

Fyrir alla íþróttaiðkendur sem vija bæta styrk, hraða og snerpu.

Styrktar- hraða- og snerpuþjálfun með Chase og Aftureldingu

Hver æfing hefst á stuttri kynningu þar sem farið verður yfir markmið æfingarinnar: AF HVERJU við erum að gera æfingarnar, HVERNIG æfingar virka fyrir iðkendur og HVERJU þær eiga að skila.
Hver hópur verður takmarkaður við 12 iðkendur til að tryggja persónulega þjálfun fyrir alla.

Æfingar á þriðjudögum verða á hlaupabraut og velli, með áherslu á hraða og snerpu.

Æfingar á fimmtudögum fara fram í líkamsræktarsal, þar sem styrktaræfingar munu innihalda sprengikraft (stökk og köst) ásamt styrktaræfingum fyrir kvið og neðri hluta líkamans. Styrkur er lykilatriði fyrir hraða og þetta prógramm mun taka á báðu.

Allir þátttakendur fá styrktar- og hraðaáætlun til að fylgja heima (ein æfing af hvoru á milli tímanna). Íþróttafólk fær einnig ítarlega greiningu á hlaupa- og lyftitækni út frá myndbandsupptökum og faglegum búnaði (hraðahlið og stökkmottur).

Skráning á abler ➡ https://www.abler.io/shop/afturelding?birthYear=2014&program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTU4NjY=

08/05/2026

Nýjung í sumar !

Fyrir alla íþróttaiðkendur sem vija bæta styrk, hraða og snerpu.

Styrktar- hraða- og snerpuþjálfun með Chase og Aftureldingu

Hver æfing hefst á stuttri kynningu þar sem farið verður yfir markmið æfingarinnar: AF HVERJU við erum að gera æfingarnar, HVERNIG æfingar virka fyrir iðkendur og HVERJU þær eiga að skila.
Hver hópur verður takmarkaður við 12 iðkendur til að tryggja persónulega þjálfun fyrir alla.

Æfingar á þriðjudögum verða á hlaupabraut og velli, með áherslu á hraða og snerpu.

Æfingar á fimmtudögum fara fram í líkamsræktarsal, þar sem styrktaræfingar munu innihalda sprengikraft (stökk og köst) ásamt styrktaræfingum fyrir kvið og neðri hluta líkamans. Styrkur er lykilatriði fyrir hraða og þetta prógramm mun taka á báðu.

Allir þátttakendur fá styrktar- og hraðaáætlun til að fylgja heima (ein æfing af hvoru á milli tímanna). Íþróttafólk fær einnig ítarlega greiningu á hlaupa- og lyftitækni út frá myndbandsupptökum og faglegum búnaði (hraðahlið og stökkmottur).

Skráning á abler ➡ https://www.abler.io/shop/afturelding?birthYear=2014&program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTU4NjY=

Photos from Ungmennafélagið Afturelding's post 07/05/2026

Aðalfundur Aftureldingar fór fram þriðjudaginn 30.apríl í Hlégarði. Fundurinn var vel sóttur, Hafsteinn Pálsson var fundarstjóri og Einar Ingi Hrafnsson framkvæmdarstjóri Aftureldingar var ritari. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf.
Aðalstjórn Aftureldingar veitti 41 einstaklingum heiðursviðurkenningar á fundinum fyrir störf sín í þágu Aftureldingar. Einnig var sérstaklega heiðraður Hafsteinn Pálson, heiðursfélagi Aftureldingar.

Hafsteinn hefur um áratuga skeið verið einn af traustustu burðarásum í starfi íþróttahreyfingarinnar, bæði innan Aftureldingar og á vettvangi ÍSÍ og UMSK. Hann hefur gegnt fjölmörgum trúnaðar- og ábyrgðarstörfum af mikilli samviskusemi og með óbilandi áhuga á uppbyggingu íþróttastarfs.

Hann hefur margoft verið fundarstjóri á aðalfundum Aftureldingar. En hann hefur setið fjölmörgum stjórnum og nefndum innan ÍSÍ. Undanfarin ár hefur hann jafnframt setið í framkvæmdastjórn ÍSÍ og komið þar að mikilvægu stefnumótandi starfi fyrir íþróttahreyfinguna á Íslandi.
Hafsteinn var fyrsti formaður knattspyrnudeildar Aftureldingar við stofnun hennar árið 1974 og lagði þar grunn að öflugu starfi sem hefur vaxið og dafnað síðan. Hann tók einnig virkan þátt í uppbyggingu félagsins á mótandi árum, meðal annars sem fulltrúi í byggingarnefnd íþróttahússins að Varmá á árunum 1975–1977, sem var stór áfangi í sögu félagsins.
Hann gengdi stöðu varaformanns Aftureldingar á árunum 1985–1987 og var formaður UMSK á árunum 1987–1992, þar sem hann hélt áfram að styrkja stoðir ungmennastarfs og íþróttamála á svæðinu.
Þá hefur Hafsteinn hlotið gullmerki Aftureldingar, UMSK og UMFÍ fyrir framlag sitt, sem endurspeglar vel það mikla traust og virðingu sem hann nýtur innan hreyfingarinnar.
Afturelding þakkar Hafsteini Pálssyni fyrir óeigingjarnt starf, leiðsögn og áralanga hollustu við félagið og íþróttahreyfinguna. Framlag hans hefur skilið eftir varanleg spor í sögu félagsins og mun áfram vera okkur öllum hvatning til framtíðar.

Photos from Blakdeild Aftureldingar's post 26/04/2026

Blakkrakkarnir í U12, U14 og U16 voru dugleg um helgina og verða að til 29.apríl með þessa fjáröflun.

Photos from Ungmennafélagið Afturelding's post 15/04/2026

Aðalfundur félagsins verður haldinn í Hlégarði þann 30 apríl n.k
Við minnum á framboðsfrest.

Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna og taka þátt í því að gera gott félag enn betra.

Áfram Afturelding ❤🖤

Photos from Ungmennafélagið Afturelding's post 10/04/2026

Takk fyrir okkur, Mosfellsbær ❤️

Rauði dagurinn fór fram úr öllum okkar væntingum! Það var ótrúlegt að sjá bæinn okkar bókstaflega litaðan rauðan. Ungir sem aldnir tóku þátt og klæddust rauðu með stolti.

Við erum þakklát fyrir þann stuðning, samstöðu og gleði sem þið sýnduð. Það er einmitt svona sem samfélagið okkar verður enn sterkara.

Við hlökkum til að gera Rauða daginn að árlegum viðburði og skapa enn fleiri svona samverustundir með ykkur í framtíðinni!

Takk til allra sem tóku þátt og gerðu daginn svona eftirminnilegan – þið eruð frábær!

07/04/2026

Við eigum afmæli 🎉

Þann 11. apríl nk. fagnar Ungmennafélagið Afturelding 117 ára afmæli, en félagið hefur verið órjúfanlegur hluti af samfélaginu í Mosfellsbæ allt frá árinu 1909.

Af því tilefni langar okkur að skapa skemmtilega og sameiginlega stemningu í bænum og hvetja alla í Mosfellsbæ til að klæðast rauðu fimmtudaginn 9. Apríl. Sýna þannig samstöðu bæjarins og stuðning við félagið okkar, með það að markmiði að sjá allan Mosfellsbæ í rauðu þann dag – í leikskólum, skólum, á vinnustöðum og alls staðar þar sem fólk kemur saman.

Á sama tíma munum við í samstarfi við JAKO Sport vera með afsláttadaga vikuna á undan. Þar sem fjölskyldum og iðkendum gefst tækifæri til að græja sig upp fyrir sumarið á hagstæðum kjörum – og vera klár í rauðu fyrir daginn.

Það væri okkur afar dýrmætt ef þið mynduð taka þátt og hvetja ykkar fólk til að klæðast einhverju rauðu þennan dag – hvort sem það er bolur, peysa, húfa eða annað.

Saman getum við gert daginn eftirminnilegan og sýnt hvað samfélagið okkar er sterkt þegar við stöndum saman. Einnig væri gaman að sjá samstöðuna á samfélagsmiðlum með því að merkja okkur skemmtuninni Ungmennafélagið Afturelding

Jako sport - https://afturelding.is/wp-content/uploads/2026/04/Tilbodsdagar-Afturelding-mars-april-2026.pdf

Photos from Ungmennafélagið Afturelding's post 02/04/2026

Sumarnámskeið 2026 🔆

Við erum stolt og ánægð með fjölbreytt úrval sumarnámskeiða sem verður í boði í ár. Það ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Búið er að opna fyrir skráningar á Abler.
https://www.abler.io/shop/afturelding

Frekari upplýsingar veitir Hanna Björk íþróttafulltrúi, [email protected]

Photos from Blakdeild Aftureldingar's post 31/03/2026

Blakliðin okkar hefja úrslitakeppnina um Íslandsmeistarartitlana með leikjum við HK (kvennamegin) og við KA karlamegin. Sigra þarf 2 leiki til að komast í úrslitaleikina sjálfa.
Við hvetjum Aftureldingarfólk til að fjölmenna í Digranes og í KA heimilið (þeir sem eru fyrir norðan) á fyrstu leikina Heimaleikirnir verða svo á mánudaginn hjá stelpunum og á þriðjudaginn hjá strákunum.
🖤❤️ ÁFRAM AFTURELDING ❤️🖤

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Mosfellsbær?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Skólabraut 2
Mosfellsbær