06/06/2026
Stórsigur á Hvolsvelli!🔴⚫️
Stelpurnar okkar heimsóttu KFR á SS-Vellinum í 5. umferð 2. deildar.
Tera braut ísinn á 13. mínútu leiksins eftir laglegan skalla úr horni en var þetta hennar fyrsta mark í meistaraflokki. Katla skoraði á 30. mínútu af löngu færi til að gera metin 0-2. Karen Dæja skoraði þriðja mark liðsins og fóru stelpurnar okkar inn í hálfleik í stöðunni 0-3.
Seinni hálfleikurinn hófst af miklum krafti en skoraði Adna af vítapunktinum á 47. mínútu. Stuttu seinna á 53. mínútu skoraði Magða af löngu færi. Staðan var því 1-5 fyrir okkar konum.
Stelpurnar héldu áfram að sækja og sköpuðu sér mörg færi en Karen Dæja skoraði annað mark sitt í leiknum á 80. mínútu.
Lokatölur voru því 1-6 okkur í vil.
Mörk Aftureldingar:
⚽️⚽️
⚽️
jonsd ⚽️
⚽️
⚽️
Frábær úrslit sem þýða að liðið hefur unnið 4 leiki af 4! Framundan er hörkuleikur við ÍR 11.júní á Malbikstöðinni að Varmá!
Þökkum kærlega fyrir stuðninginn og sjáumst á næsta leik ⚒️
Áfram Afturelding ⚡️
06/06/2026
LEIKDAGUR!!! 🔴⚫️⚡️
Stelpurnar okkar mæta KFR í dag! 5.umferð 2.deildar og 3 punktar í boði.
SS-Völlurinn kl.14:00 📢 Sameinast í bíla, sólgleraugun klár og styðja stelpurnar okkar til sigurs!!
Sjáumst á Hvolsvelli 📍
Áfram Afturelding! ⚡️
06/06/2026
Tap í Kórnum! 🔴⚫️
Strákarnir okkar mættu HK í Kórnum í gærkvöldi og niðurstaðan var svekkjandi 2-1 tap.
Næsti leikur er í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins þann 10.júní kl 19:30 á okkar heimavelli, Malbikstöðinni að Varmá, gegn Stjörnunni. Verðum með flotta dagskrá í kringum þann leik. Nánar auglýst eftir helgi📢
Takk fyrir stuðninginn í gær - Sjáumst næst á okkar heimavelli ⚒️
Áfram Afturelding ⚡️
05/06/2026
KFR Á MORGUN!! ⚽️
Afturelding heimsækir KFR í 5.umferð 2. deildar á morgun, laugardaginn 6. júní, á SS-Vellinum á Hvolsvelli. Leikurinn hefst kl 14:00 📢
Stelpurnar okkar eru á flottu skriði þessa dagana og eru með 100% sigurhlutfall í síðustu 3 leikjum! Þær ætla sér að halda áfram á þeirri braut og treysta á þinn stuðning! ⚡️
Sjáumst á Hvolsvelli á morgun! 🔴⚫️
Áfram Afturelding!
04/06/2026
Leikjadagskrá fyrir júní!⚡️
Áfram Afturelding 🔴⚫️
03/06/2026
KÓRINN NÆSTKOMANDI FÖSTUDAG! 🔴⚫️
Afturelding mætir HK í Kórnum í Kópavogi föstudaginn 5.júní kl 19:15! Strákarnir okkar eru á góðu skriði um þessar mundir og treysta á þinn stuðning úr stúkunni! Frábær mæting var á síðasta heimaleik gegn Fylki og þvílík orka frá áhorfendum! ⚒️ Sjáumst í Kópavogi á föstudaginn 📍
Áfram Afturelding ⚡️
02/06/2026
🔴⚪MOSFELLSBÆR. TÓNLIST. KNATTSPYRNA. ALLT Í EINU GLASI 🔴⚪
Afturelding býður nú upp á einstakt safngripaverkefni þar sem hægt er að panta glæsileg KALEO- og GDRN-glös til styrktar félaginu.
KALEO og GDRN eiga bæði sterkar rætur í Mosfellsbæ og hafa um árabil tengst bæjarfélaginu og Aftureldingu á sinn hátt. Nú gefst stuðningsmönnum, bæjarbúum og velunnurum félagsins tækifæri til að eignast einstaka minjagripi sem sameina tónlist, bæjarstolt og knattspyrnusögu Mosfellsbæjar.
⚽ Allur ágóði rennur til uppbyggingar meistaraflokka kk og kvk Aftureldingar ⚽ Pantanir eru opnar til 20. júní ⚽ Glösin verða aðeins framleidd í þetta eina skipti ⚽ Þegar pöntunarfresti lýkur verður ekki hægt að panta fleiri glös.
Þetta er því einstakt tækifæri til að eignast glæsilegan safngrip og styðja um leið við áframhaldandi uppbyggingu knattspyrnunnar í Mosfellsbæ.
Pantaðu áður en tækifærið rennur út í einkaskilaboðum eða á [email protected] . Glösin verða afhent um 7-10 dögum eftir 20.júní
Verð:
Kaleo glös 2 stk – 5500 kr
GDRN glös 2 stk – 5500 kr
Kaleo glös 2 stk og GDRN glös 2 stk – 10.000 kr
Kaleo glös 6 stk – 14.900 kr
GDRN glös 6 stk – 14.900 kr
ÁFRAM AFTURELDING! ⚡️
01/06/2026
Stórsigur í toppslagnum!!!🔴⚫️
Fylkismenn komu í heimsókn í gærkvöldi á Malbikstöðina að Varmá í stórleik 7.umferðar í Lengjudeildinni. Þrátt fyrir rólegar fyrstu mínútur hjá okkar mönnum var þetta aldrei spurning eftir fyrsta markið! Afturelding tók ekki fótinn af bensíngjöfinni eftir það og voru lokatölur 5-1 okkur í vil.
Mörk Aftureldingar:
⚽️⚽️
⚽️
⚽️
⚽️
Frábær úrslit sem koma okkur beint í toppsætið! Framundan er hörkuleikur við HK föstudaginn 5.júni í Kórnum í Kópavogi! Þökkum kærlega fyrir stuðninginn og sjáumst vonandi á næsta leik ⚒️
Áfram Afturelding ⚡️