Sundsamband Íslands

Sundsamband Íslands

Share

Sundsamband Íslands - www.iceswim.is
The Icelandic Swimming Association
s: 514-4070 - 770-6066

Photos from Sundsamband Íslands's post 26/05/2026

Flottur árangur hjá sundfólki landsliðsins núna um helgina, en þau luku keppni á sterku alþjóða móti í London, AP Race, þar sem meðal keppanda voru stjörnur sundhreyfingarinnar á borð við Anna Moesch og Adam Peaty.

Denas Kazulis setti nýtt unglingamet í 100 skriðsundi, og bætti þar með 27 ára gamalt met Arnar Arnarssonar, eftir að leggja allt í 1. legg 200 skriðsunds.

Einnig voru strákarnir í 4x100 fjórsundi aðeins 1 sekúndu frá Íslandsmeti og náðu 6. sætinu meðal sterkra keppenda.

Þrátt fyrir að koma inn í mótið óhvíld var þó nokkuð um persónulegar bætingar, en 7 sundmenn í hópnum bættu sína tíma. Þar stóð upp úr Magnús Víðir Jónsson, en hann bætti sinn besta tíma í 200 baksundi um rúmar 6 sekúndur!

Hópurinn er nú á heimleið og er áætlað að þau lendi á Íslandi eftir hádegi. Við óskum þeim og þjálförum liðsins, Eyleif Jóhannessyni, Dadó Fenrir Jasmínuson og Steindóri Gunnarssyni, ásamt fararstjóra Bjarney Guðbjörnsdóttir innilega til hamingju með árangurinn.

18/05/2026

Í dag, 18. maí, eru tíu ár liðin frá því Hrafnhildur Lúthersdóttir varð fyrsti ófatlaði Íslendingurinn til að vinna til verðlauna á Evrópumótinu í sundi í 50 metra laug. Á þessum degi árið 2016 vann Hrafnhildur silfur í 100 metra bringusundi.

18/05/2026

Framtíðarhópurinn stóð sig glæsilega á Taastrup Open um daginn, en þau eru nú kominn heim og eru æfingar hafnar fyrir næstu mót sumarsins. Samtals kepptu 12 sundmenn fyrir hönd Íslands á mótinu, en þau Auguste Balciunaite, Guðlaugur Santiago Guðlaugsson og Nói Nikolai Davíðsson settu öll mótsmet í sínum greinum. Einnig unnu þau ásamt Guðbjörgu Helgu Hilmarsdóttur, Kristjóni Hrafn Kjartanssyni, Eydísi Jóhannesdóttur og Þór Eli Gunnarssyni til verðlauna á mótinu.

Frábær frammistaða hjá liðinu, sem við auðvitað óskum góðs gengis á framtíðarmótum! 🏊🇮🇸

08/05/2026

Okkar efnilegasta sundfólk í Framtíðarhópi SSÍ er nú komið til Danmerkur til að keppa á hinu árlega Taastrup Open! Hópurinn flaug út í gær og er stemningin í liðinu frábær.

12 sundmenn frá 6 mismunandi félögum taka þátt að þessu sinni undir leiðsögn Bjarney Guðbjörnsdóttur, fararstjóra, en með hópnum fara einnig þeir Daníel Lúkas Tómasson og Hilmar Smári Jónsson sem þjálfarar.

Taastrup Open er eitt af vinsælli sundmótum Danmerkur þar sem yfir 400 keppendur koma saman og því mikilli samkeppni. Þótt Danir séu í meirihluta er mótið alþjóðlegt með þátttakendum frá nokkrum þjóðum. 🌍

Fylgstu með í beinni! 📺

Við hvetjum alla til að senda hópnum góða strauma. Þú getur fylgst með mótinu í beinni útsendingu, en við höfum sett hlekk á beint streymi í Story!

Áfram Ísland! 🏊‍♀️🇮🇸💪

Photos from Sundsamband Íslands's post 30/04/2026

Síðastliðna helgi var haldin æfingahelgi Framtíðarhóps SSÍ, en það sóttu 30 sundmenn frá 7 sundfélögum ásamt 8 þjálfurum. Helgin hófst með fyrirlestrum frá Agnesi Þóru Árnadóttur um næringu og heilsu, en einnig deildi hún Ragnheiður Runólfsdóttir sinni reynslu sem afrekskona í sundi, og Eyleifur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, talaði um landsliðskerfið.

Æfing var í kjölfarið haldin í Laugardalslaug, en þar tók Framtíðarhópurinn á við tímatökur í 200 skrið fótum og 50 flug fótum. Að því loknu var efnt í skemmtilegt hópefli í Keiluhöllinni, þar sem hópurinn kepptist sín á milli í keilu!

Sunnudagurinn fór í tækniæfingu undir leiðsögn þjálfara hópsins, en á meðan fengu foreldrar kynningu á Framtíðarhópnum og þeim verkefnum sem eru þar framundan.

Framtíðarhópurinn er mikilvægur liður í þjálfun framtíðar landsliðsfólks – og það eru stórar væntingar af þáttakendum þessarar helgar. Við hlökkum til að fylgjast með ferli þeirra! 🇮🇸✨

Photos from Sundsamband Íslands's post 29/04/2026

Fréttatilkynning, 29. apríl 2026.

Photos from Sundsamband Íslands's post 28/04/2026

Við óskum Andreu Elíasson innilega til hamingju með frábæran árangur á Breska meistaramótinu í samhæfðri sundfimi! Andrea keppti síðastliðna helgi í tæknisundi einstaklinga (e. Solo Technical routine) þar sem hún vann til silfurverðlauna á þessu gífurlega sterka stórmóti í greininni.

Á mótinu, sem fór fram í Nottingham í Englandi, keppti elítan af Bresku sundfólki, og er það frábær árangur að komast á pall meðal þeirra.

Okkur hlakkar til að fylgjast betur með henni Andreu og sjá hvert hún stefnir í þessari fallegu en kröfuhörðu íþrótt! Vel gert Andrea!

Photos from Sundsamband Íslands's post 27/04/2026

Íslandsmótið í garpasundi, IMOC, var haldið í Reykjanesbæ um helgina, og viljum við óska Sunddeild Breiðabliks ( Breiðabliks ) innilega til hamingju með sigurinn! Við þökkum innilega öllum sjálfboðaliðum, dómurum, og Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar ( ) fyrir frábært mót, og hlökkum til að sjá ykkur á næsta ári!

24/04/2026

Íslandsmótið í garpasundi hefst í dag í Reykjanesbæ, en þar verður mikil stemming þar sem helstu sundmenn í garpaflokkum keppast um titla í sínum sundum!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Engjavegur 6
Reykjavík
104