Valur Handbolti

Valur Handbolti

Share

Handbolti

Látum ekki kappið bera fegurðina ofurliði.

07/06/2026

Britney Cots semur við Val 🔥🔥

Britney Cots hefur skrifað undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild Vals. Britney var lykilmaður varnarlega hjá ÍBV í vetur sem endaði í 2.sæti bæði í Olís-deildinni og í úrslitakeppninni. Hún spilaði einnig stórt hlutverk sóknarlega í úrslitakeppninni á móti Val.
Cots hefur leikið hér á landi síðan árið 2018 en hún lék fyrst þrjú tímabilin með FH áður en hún skipti yfir til Stjörnunnar sumarið 2021. Undanfarin ár hefur hún spilað frábærlega með ÍBV.

“Ég er gríðarlega ánægður með að fá Britney til liðs við félagið. Hún kemur inn í hópinn með mikla reynslu og gæði sem mun nýtast liðinu vel á komandi tímabili. Ég er spenntur fyrir samstarfinu og mun hún passa vel inn í okkar hóp. “ sagði Anton Rúnarsson þjálfari kvennaliðs félagsins.

Stjórn handknattleiksdeildar býður Britney velkomna til félagsins og hlakkar til að sjá hana miðla sinni reynslu áfram á handboltavellinum í rauðu treyjunni!

05/06/2026

Hafdís framlengir til 2029!

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Hafdís Renötudóttur hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Vals til ársins 2029.

Frá því Hafdís gekk til liðs við félagið sumarið 2023 hefur hún verið lykilleikmaður í afar öflugu kvennaliði Vals. Þá er hún einnig annar aðalmarkvörður íslenska landsliðsins.

Hafdís var á dögunum valin besti leikmaður meistaraflokks kvenna á lokahófi Vals ásamt því að vera kosin besti markmaður Olís deildar kvenna.

„Það gleður mig mikið að Hafdís hafi framlengt samning sinn við Val. Hún hefur verið lykilleikmaður hjá liðinu undanfarin ár og býr yfir bæði hæfileikum og sterkum karakter. Ég er sannfærður um að hún eigi eftir að gegna áfram mikilvægu leiðtogahlutverki innan sem utan vallar og miðla sinni reynslu til yngri leikmanna félagsins,“ segir Anton Rúnarsson, þjálfari meistaraflokks kvenna.

Photos from Valur Handbolti's post 03/06/2026

Fyrr í dag fór fram uppskeruhátíð HSÍ en þar verðlaunaði sambandið þá leikmenn og þjálfara sem sköruðu fram úr í vetur í Olís deildinni og Grill66-deildinni, karla og kvenna.

Hafdís Renötudóttir besti markmaður Olísdeildar kvenna!

Hafdís Renötudóttir var valin besti markmaður Olísdeildar kvenna á uppskeruhátíð Olís- og Grill66 deilda HSÍ. Hafdís átti frábært tímabil á milli stanganna þar sem hún var einn af lykilmönnum liðs síns. Með öflugum markvörslum, miklum stöðugleika og einstöku öryggi átti hún stóran þátt í velgengni Vals á tímabilinu.

Lovísa Thompson með tvenn verðlaun!


Lovísa hlaut eftirfarandi viðurkenningar: Leikmaður tímabilsins og varnarmaður tímabilsins. Verðlaunin endurspegla einstakt framlag hennar á báðum endum vallarins, þar sem hún var leiðtogi í leik liðs síns og sýndi bæði mikla baráttu, styrk og gæði í leik sínum allt tímabilið.

Arnór Snær Óskarsson með þrenn verðlaun!

Arnór hlaut eftirfarandi viðurkenningar: Valdimarsbikarinn, leikmaður tímabilsins og einnig sóknarmaður tímabilsins. Þessi verðlaun endurspegla framúrskarandi frammistöðu Arnórs á tímabilinu og þann mikilvæga þátt sem hann gegndi í árangri liðs síns.

Anton Rúnarsson er besti þjálfari Olísdeildar kvenna!

Anton Rúnarsson var valinn besti þjálfari Olísdeildar kvenna á uppskeruhátíð Olís- og Grill66 deilda HSÍ eftir einstaklega glæsilegt tímabil. Undir stjórn Antons varð lið hans deildarmeistari, bikarmeistari og Íslandsmeistari, en liðið sýndi yfirburði sína allt tímabilið og vann alla þrjá stærstu titla íslensks handbolta.

Ágúst Þór Jóhannsson er besti þjálfari ársins í Olísdeild karla!

Ágúst Þór Jóhannsson hefur verið valinn besti þjálfari ársins í Olísdeild karla eftir glæsilegt tímabil með Valsliðinu. Á sínu fyrsta tímabili við stjórnvölinn stýrði hann liðinu til bæði deildarmeistaratitils og Íslandsmeistaratitils.

Arna Karítas Eiríksdóttir er efnilegasti leikmaður Olísdeildar kvenna!

Arna Karítas Eiríksdóttir var valin efnilegasti leikmaður Olísdeildar kvenna á uppskeruhátíð Olís- og Grill66 deilda HSÍ. Arna Karítas átti frábært tímabil þar sem hún sýndi mikla hæfileika, metnað og þroska í leik sínum. Hún steig fram á stóra sviðinu, skilaði sterkum frammistöðum og festi sig í sessi sem einn af efnilegustu leikmönnum íslensks handbolta.

Laufey Helga Óskarsdóttir er efnilegasti leikmaður Grill66 deild kvenna!

Laufey Helga Óskarsdóttir átti afar gott tímabil þar sem hún sýndi fram á mikla hæfileika, metnað og stöðugar framfarir. Frammistaða hennar vakti verðskuldaða athygli og undirstrikar bjarta framtíð í íslenskum handknattleik.

Photos from Valur Handbolti's post 31/05/2026

Lokahóf meistaraflokka Vals í handbolta 🔥🕺

Lokahóf meistaraflokka Vals í handbolta fór fram í gærkvöldi. Mikið var um dýrðir og stemningin frábær er leikmenn, stjórn og sjálfboðaliðar fögnuðu frábæru keppnistímabili.

Verðlaun hlutu að þessu sinni:
Meistaraflokkur karla:

Bestur í Val 2 (u-lið karla)
Jens Sigurðarson

Efnilegastur:
Dagur Leó Fannarsson

Bestur:
Andri Finnsson

Mikilvægastur:
Arnór Snær Óskarsson

Meistaraflokkur kvenna

Best í Val 2 (U-lið kvenna)
Laufey Helga Óskarsdóttir

Efnilegust:
Arna Karitas Eiríksdóttir

Best:
Hafdís Renötudóttir

Mikilvægust:
Lovísa Thompson

Þá fengu nokkrir leikmenn viðurkenningu fyrir áfanga í fjölda leikja.

100 leikir;
Allan Norðberg, Hafdís Renötudóttir, Guðrún Hekla Traustadóttir, Arna Karítas Eiríksdóttir og Maríam Eradze

150 leikir;
Andri Finnsson, Lovísa Thompson og Þórey Anna Ásgeirsdóttir

200 leikir;
Þorgils Jón Svölu Baldursson og Róbert Aron Hostert

250 leikir;
Magnús Óli Magnússon

300 leikir;
Agnar Smári Jónsson

Eins fengu allir okkar frábæru sjálfboðaliðar þakklætisvott fyrir frábær störf og stuðning á keppnistímabilinu. Án þeirra væri starfið ógerlegt.

Áfram hærra

30/05/2026

Dagur Árni kveður Val

Handknattleiksdeild Vals og KA hafa komust að samkomulagi að Dagur Árni myndi skipta yfir til KA að nýju eftir aðeins eitt ár hjá félaginu.

Við viljum þakka Degi fyrir tíma sinn hjá félaginu og óskum honum góðs gengis að nýju hjá KA.

26/05/2026

Bessi Teitsson semur við Val 🔥🔥

Bessi Teitsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við handknattleiksdeild Vals. Bessi, sem er vinstri hornamaður, er uppalinn í Gróttu og hefur alla tíð spilað með uppeldisfélagi sínu. Hann var í lykilhlutverki með Gróttu á síðasta tímabili í Grill 66 deildinni. Bessi á einnig sæti í lokahóp 20 ára landsliðsins sem leikur í lokakeppni EM í sumar og hefur verið í öllum yngri landsliðum Íslands.

“Ég er gríðarlega ánægður með að fá Bessa til liðs við félagið. Hann er ungur og mjög efnilegur leikmaður með mikla hæfileika og metnað til að ná langt. Hans eiginleikar munu nýtast vel inn í hópinn okkar fyrir næstu leiktíð. Ég hlakka til samstarfsins á næstu árum” sagði Ágúst Jóhannsson þjálfari karlaliðs félagsins.

Stjórn handknattleiksdeildar býður Bessa velkominn til félagsins og hlakkar til að sjá hann vaxa áfram á handboltavellinum í rauðu treyjunni!

Photos from Valur Handbolti's post 18/05/2026

3.flokkur kvenna Íslandsmeistari

3.flokkur kvenna hjá Val varð um helgina Íslandsmeistari eftir að hafa unnið sigur á sterku liði HK í algjörum naglbít.

HK-stelpur byrjuðu leikinn af miklum krafti og skoruðu hvert markið á fætur öðru. Eftir um tíu mínútna leik var staðan 6-10 HK í vil. Þá breyttu Vals-stelpur um vörn, þéttu raðirnar og skömmu síðar var staðan orðin jöfn 11-11. Eftir það var fyrri hálfleikurinn hnífjafn en HK þó alltaf skrefinu á undan. Hálfleiksstaðan var 21-23 HK í vil.

Síðari hálfleikur þróaðist að mörgu leiti líkt og sá fyrri. Eftir tíu mínútur í síðari hálfleik voru HK-stelpur aftur komnar með fjögurra marka forystu 25-29. Okkar stelpur voru alls ekki á því að gefast upp og náðu tíu mínútum síðar að jafna leikinn í 30-30. Þegar þrjár mínútur lifðu leiks kom svo Laufey Helga Óskarsdóttir Val í yfir í fyrsta skipti í leiknum 34-33. HK jafnaði leikinn í næstu sókn en Hekla Hrund Andradóttir skoraði sigurmarkið þegar rétt tæp mínúta var eftir af leiknum. Lokatölur 35-34 og Valur því Íslandsmeistari í 3.flokki kvenna. Frábær leikur þar sem stelpurnar náðu af harðfylgi að klára leikinn eftir að hafa verið undir nánast allan tímann.

Mörk Vals:
Laufey Helga Óskarsdóttir 14, Guðrún Hekla Traustadóttir 8, Lena Líf Orradóttir 5, Hekla Hrund Andradóttir 3, Arna Karítas Eiríksdóttir 2, Eva Steinsen Jónsdóttir 2, Alba Mist Gunnarsdóttir 1.

Varin skot:
Oddný Mínervudóttir 9.

Laufey Helga Óskarsdóttir var mjög svo verðskuldað valin besti leikmaður úrslitaleiksins.

Frábær vetur hjá 3.flokki kvenna. Urðu bæði deildar- og Íslandsmeistarar og enduðu í 2.sæti í Bikarkeppni HSÍ.

Framtíðin er björt í Val.
Áfram hærra.

Photos from Valur Handbolti's post 18/05/2026

3.flokkur karla Íslandsmeistari|

Valsstrákarnir í 3.flokki spiluðu til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn gegn ÍBV.

Í átta liða úrslitum höfðu þeir lagt FH af velli 37-33 og í undanúrslitum unnu þeir sterkt lið Aftureldingar, 41-38.

Fyrir úrslitaleikinn gegn íBV höfðu Valsstelpurnar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri að HK og því ljóst að með sigri væri Valur deildar- og Íslandsmeistari í meistaraflokki karla og kvenna sem og 3.flokki karla og kvenna.

Strax í byrjun leiks var ljóst að leikmenn beggja liða ætluðu að selja sig dýrt í leiknum og var hart barist frá fyrstu mínútu. Liðin skiptust á skora og var munurinn aldrei meira en tvö mörk, en Valur leiddi í hálfleik, 14-13.

Sama barátta var til staðar í seinni hálfleik en Valsstrákarnir þó skrefi á undan og leiddu með 1-3 mörkum. Eyjamenn jöfnuðu leikinn, 25-25 þegar um 10 mínútur voru til leiksloka en þá komu fjögur mörk í röð hjá Val sem breytti stöðunni í 29-25. Þennan mun náði ÍBV ekki að brúa og Valsstrákarnir sigldu sætum sigri í höfn, 33-27.

Mörk Vals: Daníel Montoro 7, Logi Finnsson 6, Gunnar Róbertsson 5, Kári Steinn Guðmunsson 5, Dagur Leó Fannarsson 4, Bjarki Snorrason 4, Hrafn Þorbjarnarson 2.

Anton Máni Francisco Heldersson varði 11 skot og Þórhallur Árni Höskuldsson.

Logi Finnsson var valinn maður leiksins.

Photos from Valur Handbolti's post 18/05/2026

Eva Steinsen Jónsdóttir semur 🔥🔥🔥

Handknattleiksdeild Vals er ánægð með að tilkynna að Eva Steinsen Jónsdóttur hefur aftur samið við Handknattleiksdeild Vals.
Eva er spennandi leikmaður sem kemur með ferska orku, góðan karakter og skýran vilja til að bæta sig og hjálpa liðinu að ná árangri. Það verður gaman að sjá hana vaxa og dafna í umhverfinu á Hlíðarenda og taka þátt í þeim verkefnum sem framundan eru.

Eva hefur verið stór hlekkur í sterku liði 3. flokks og U-liði ásamt því að æfa reglulega í vetur með meistaraflokknum í vetur og spilað þar nokkra leiki. Eva hefur æft upp alla yngri flokka Vals og verið valin í yngri landsliðs Íslands!

Það er virkilega gaman að sjá hversu margir ungir leikmenn í Val eru að blómstra í okkar starfi og fá tækifæri með meistaraflokkum félagsins! Þess má til gamans geta að þeir þeir þrír leikmenn, sem kynntir voru hér síðustu daga, urðu í gær Íslandsmeistarar með 3. flokki félagsins 🏆🔥

Það er óhætt að segja að framtíðin sé björt að Hlíðarenda 💥

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Hlíðarendi
Reykjavík
102