04/11/2026
Hvað get ég gert til að undirbúa mig líkamlega fyrir Hot yoga?
💧💧í Hot yoga svitnar þú mikið. Mér finnst mjög gott að byrja daginn á því að drekka vatnsglas jafnvel tvö.
☝️Ef þú drekkur kaffi passaðu að drekka vatn á eftir. Koffínið er vatns losandi.
👉Drekktu svo vatn yfir daginn og bættu við smá salti eða steinefnum ef þú svitnar mikið. Þú átt ekki að mæta þyrst/þyrstur. Þú vilt ekki drekka mikið vatn rétt fyrir tíma.
👉Ekki mæta á fullum maga. Borðaðu létt 2-3 tímum fyrir tímann - ávöxt, hnetur, smoothie.Forðastu þungan mat og mikið kaffi rétt fyrir.
☝️Þú blotnar.. mjög mikið.
Notfærðu föt sem þú getur svitnað í - sportsbrók/stuttbuxur og toppur. Bómull verður þungur, gervi efni eru betri. Taktu með þér auka föt til að fara í eftir tíman.
👉Þetta þarftu með þér:
• Yoga mottu (dýnu)(eða leigja hjá okkur)
• Stórt handklæði yfir mottuna (eða leigðu hjá okkur)
• Vatnsbrúsa - stóran
• Litla handklæðið fyrir andlitið
• Opin huga
👉Hugarfarið - mikilvægast
Þú þarft ekki að geta allt. Hitinn gerir allt erfiðara fyrstu 3-4 tímana.
Leyfðu þér að hvíla þig. Sestu niður, andaðu, byrjaðu aftur. Enginn er að dæma. Allir þurfa að byrja einhvers staðar
👉Smá plan
Settu tímana þína strax í dagbókina. 20x í nóvember er ca. 5x í viku. Ákveddu fyrirfram hvaða daga þú mætir - þá er líklegra að þú mætir.
Þú ert miklu tilbúnari en þú heldur. Við sjáum um rest.
Skráning með 25% afslætti af 3 mánaða korti á yogasalir.is