01/06/2026
Golfklúbburinn Flúðir
Golfklúbburinn Flúðir, Selsvelli, við Flúðir og er 18 holu golfvöllur. Hér er að finna upplýsingar og myndir af starfinu í GF.
Tilkynningar um mót og aðra viðburði einnig.
01/06/2026
01/06/2026
GOLFGLEÐI 7.JÚNÍ. OPIÐ GOLFMÓT
Nú styttist í Eyvindarmótið á Flúðum sem er á sjálfan sjómannadaginn sunnudaginn 7. júní. Allir eru velkomnir og þegar þó nokkrir búnir að skrá sig. Það eru glæsilegir vinningar að vanda.
Nú er bara að opna Golfboxið og skrá sig
Ef þið sjáið bleikar punktalínur í köntum brauta og við framflatir þá eru þetta merkilínur fyrir slátturvélar og hafa engin áhrif á golfreglur eða almennt spil.
Njótið dagsins, Vallarstarfsfólk.
17/05/2026
Golfbílar félagsmanna eru leyfðir frá og með í dag, fyrir þá sem nauðsynlega þurfa. Látið ræsi vita áður en af stað er farið, En farið varlega, akið sem allra mest í karga og stígum og aldrei nær flöt en 5 bíllengdir. Almenn umferð golfbíla og leigðra golfbíla verður heimil frá og með laugardeginum 23 maí.
Kveðja Vallarstjóri
Í dag er Vallarstjórinn sorgmæddur yfir vankunnáttu golfara, Aðstoðarvallarstjórinn er frekar svekktur. Hvað er í gangi og hvernig er hægt að breyta hegðun golfara til hins betra? Einhverjar góðar hugmyndir?
14/05/2026
Golfæfingar fyrir byrjendur. 17 ára og eldri.
Við höfum fengið töluvert margar fyrirspurnir um hvernig maður byrjar að spila golf frá fólki úr nærumhverfinu og höfum ákveðið að bregðast við því.
Gunn og Danni, vallarstjórar ætla að standa fyrir æfingakvöldum næstu 5 mánudagskvöld kl 18-19:30.
Byrjun 18 maí og höldum áfram til 15 júní amk.
Fyrstu skrefin, gripið, sveiflan, langa spilið, stutta spilið, púttinn og almennar reglur um golfspil. verða viðfangsefni æfingakvöldanna. Einungis verður rukkað 1000kr á mann í boltagjald, fyrir hvert kvöld. Engin skráning, bara að mæta í kjallara golfkálans, og klúbburinn lánar kylfur þeim sem ekki enn eiga, en hafa áhuga að prófa.
Helgina 19-21 júní er svo námskeiðshelgi þar sem tveir valinkunnir golfkennarar ætla að koma hingað og hafa helgarnámskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Verður það auglýst betur síðar.
08/05/2026
Nú eru íbúðargámar komnir norðan við golfskálann okkar og þá væri flott ef einhverjir meðlimir gætu komið og hreinsað upp plássið við þá og ýmislegt smálegt í kring um skálann eftir að skipt var um þak. Mæting laugardaginn 9. Maí kl 10:00 Sævar gjaldkeri tekur á móti ykkur og stýrir aðgerðum.
05/05/2026
Í gær kl. 13:00 fóru okkar góðu kylfingar af stað í opnunarhringinn, veðrið var bjart og svalt.
Öldungarnir Helgi Guðmundsson, Kristján Skarphéðinsson og klúbbmeistarinn Agnar Reidar Róbertsson fóru fyrstir inná sumarflatirnar. Sumarið komið og kylfingar gleðjast, það var létt yfir mannskapnum og eftirvænting í loftinu.
Sumarflatirnar eru tilbúnar, brautirnar eru að hrista af sér frostið og teigarnir farnir að vaxa. Við bjóðum allar hjartanlega velkomna. Vallarnefndin og vallarstarsfsmenn búnir að leggja sig fram síðustu daga. Einungis vinnutengt tæki og bílar mega fara um völlinn að sinni. Við munum tilkynna þegar almenn notkun golfbíla verður leyfð.
Í dag mætti einnig til starfa okkar nýji rekstrarstjóri Einar Lárus Ragnarsson. Hann mun stýra skrifstofunni og vera hluti af heildarstarfsmönnum golfklúbbsins. Hann vill heyra í ykkur, hans stefna er opið hús þar sem hugmyndir félagsmanna fá að blómstra.
Matreiðslumeistarinn Guðmundur Rúnar opnaði einnig eldhúsið i gær. Hann er reynslunni ríkari frá fyrra ári og strax byrjaður með nýjungar í veitingasalnum. t.d. hlaðborð í hádeginu og á kvöldin. Ég vil hvetja ykkur til að mæta á golfvöllinn, taka einn góðar hring og kíkja svo við í skálanum og fá sér fjölbreytta hressingu.
Brúin græna við 13. teig var sett á sinn stað, það er verið að klára að endurnýja þakið á skálanum. Það er búið að koma fyrir íbúðargámum við norðurendann á golfskálanum, fyrir starfsfók klúbbsins. Húsanefndin er búin að áorka miklu nú á vormánuðum.
Þetta er ekki bara nýtt tímabil, þetta er upphafið að einhverju miklu stærra heldur en bara frábærum púttum og týndum boltum.
Ottó Leifsson
formaður
Selsvöllur við Flúðir opnar á morgun.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Efra-Sel
Tungufell
846
Opening Hours
| Monday | 08:00 - 21:30 |
| Tuesday | 08:00 - 21:30 |
| Wednesday | 08:00 - 21:30 |
| Thursday | 08:00 - 21:30 |
| Friday | 08:00 - 21:30 |
| Saturday | 08:00 - 21:30 |
| Sunday | 08:00 - 21:30 |