ÍBV Handbolti

ÍBV Handbolti

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from ÍBV Handbolti, Sports Team, Vestmannaeyjar.

Facebooksiða Íþróttabandalags Vestmannaeyja🇮🇸
Official Facebook of ÍBV Handball team🇮🇸
7x Íslandsmeistarar🇮🇸🏆
8x Bikarmeistarar🏆

https://linktr.ee/ibv_handbolti

Photos from ÍBV Handbolti's post 04/06/2026

🏆 Til hamingju, Dagur! 🏆

Við hjá ÍBV Handbolta viljum óska Degi Arnarssyni innilega til hamingju með háttvísisverðlaun HSÍ sem hann hlaut á uppskeruhátíð HSÍ fyrir framkomu sína og heiðarleika á handboltavellinum. 👏🤍🖤

Háttvísisverðlaun eru meðal þeirra verðlauna sem hvað mestur heiður fylgir enda byggja þau á gildum sem skipta íþróttahreyfinguna miklu máli; virðingu, heiðarleika, framkomu og fyrirmyndarhlutverki.

Dagur Arnarsson hefur ávallt verið frábær fulltrúi félagsins og sýnt með framkomu sinni hvað það þýðir að bera merki ÍBV af stolti. Slíkar viðurkenningar eru ekki aðeins verðlaun fyrir einstaklinginn heldur einnig viðurkenning á þeim gildum sem hann stendur fyrir.

Við erum gríðarlega stolt af Degi og óskum honum innilega til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu.

Þvílík fyrirmynd! 🖤🤍

Áfram ÍBV – alltaf, alls staðar! 🤍🖤

Photos from ÍBV Handbolti's post 04/06/2026

🏆 Til hamingju, Sandra! 🏆

Við hjá ÍBV Handbolta viljum óska Söndru Erlingsdóttur innilega til hamingju með glæsilega viðurkenningu á uppskeruhátíð HSÍ þar sem hún hlaut Sigríðarbikarinn og var valin sóknarmaður tímabilsins í Olísdeild kvenna. 👏🤍🖤

Sandra hefur um árabil verið ein fremsta handknattleikskona landsins og með dugnaði, metnaði og elju skapað sér sess meðal bestu leikmanna Íslands. Hún er ekki aðeins frábær íþróttakona heldur einnig einstök fyrirmynd fyrir unga handboltaiðkendur

Við erum afar stolt af því að eiga Söndru að og óskum henni innilega til hamingju með þessar verðskulduðu viðurkenningar.

Þvílík fyrirmynd! 🖤🤍

Áfram ÍBV – alltaf, alls staðar! 🤍🖤

Photos from Olísdeildin's post 04/06/2026
01/06/2026

🏆 Díana Dögg og Andrea Jacobsen til hamingju með Þýskalandsmeistaratitilinn! 🏆

Við hjá ÍBV Handbolta viljum óska Blomberg-Lippe innilega til hamingju með Þýskalandsmeistaratitilinn! 🤍🖤

Sérstaklega er gaman að sjá Eyjakonuna Díönu Dögg Magnúsdóttur lyfta bikarnum með liðinu en hún skoraði 4 mörk í úrslitaleiknum og átti sinn þátt í þessum glæsilega árangri. Við óskum Díönu Dögg hjartanlega til hamingju með titilinn og erum afar stolt af hennar afrekum. 👏🏆

Einnig lék Andrea Jacobsen stórt hlutverk í sigrinum og skoraði 3 mörk. Við hlökkum mikið til að fá Andreu til liðs við okkur og sjá hana klæðast ÍBV-treyjunni á næsta tímabili. 🤍🖤

Innilegar hamingjuóskir til Díönu, Andreu og alls liðs Blomberg-Lippe með frábæran árangur! 👏

Áfram ÍBV – alltaf, alls staðar! 🤍🖤

28/05/2026

🖤 Takk fyrir allt, Andrés! 🤍

Andrés Marel Sigurðsson hefur ákveðið að færa sig yfir á nýjan vettvang þar sem hann mun hefja nám í bænum eftir sumarið og verður því ekki með liðinu á komandi tímabili.

Andrés hefur verið dyggur félagsmaður í gegnum árin og lagt mikið af mörkum til liðsins bæði innan vallar sem utan. Þrátt fyrir meiðsli síðustu mánuði hefur hann sýnt mikinn karakter og verið liðinu og félaginu frábær fulltrúi allan sinn tíma í hvítu.

Við þökkum Andrési kærlega fyrir allt sem hann hefur gert fyrir félagið í gegnum árin og óskum honum alls hins besta í námi og þeim verkefnum sem fram undan eru 🖤🤍

Áfram ÍBV – alltaf, alls staðar! 🤍🖤

28/05/2026

🖤 Takk fyrir samfylgdina, Hákon! 🤍

Hákon Daði Styrmisson kom til okkar eftir áramót og lék með liðinu seinni hluta tímabilsins þar sem hann skilaði flottu framlagi bæði innan vallar sem utan.

Hákon féll vel inn í hópinn frá fyrsta degi og sýndi mikinn karakter, fagmennsku og baráttu í leik sínum með liðinu. Við viljum þakka honum kærlega fyrir þennan stutta tíma í Eyjum og óskum honum alls hins besta á nýjum vettvangi hjá Afturelding.

Takk fyrir þitt framlag 🖤🤍

Áfram ÍBV – alltaf, alls staðar! 🤍🖤

21/05/2026

🤍🖤 Petar Jokanovic skrifar undir nýjan samning til ársins 2028! 🤍🖤

Við erum afar ánægð að tilkynna að markvörðurinn öflugi,, hefur skrifað undir nýjan samning við ÍBV sem gildir til ársins 2028 🔥

Petar hefur verið gríðarlega mikilvægur fyrir liðið með sinni miklu reynslu, öryggi og leiðtogahæfileikum fyrir okkar yngri markmenn. Hann hefur verið einn af lykilmönnum liðsins og stór þáttur í þeim árangri sem náðst hefur.

Samhliða því hefur Petar verið að þjálfa yngri flokka félagsins þar sem hann hefur staðið sig virkilega vel. Það er afar mikilvægt fyrir félagið að hafa reynslumikinn einstakling eins og Petar í starfi með yngri iðkendum og við erum mjög ánægð að hann muni koma til að halda áfram því mikilvæga hlutverki hjá félaginu 🤍🖤

Það er því mikið gleðiefni að Petar verði áfram í hvítu og svörtu næstu árin 💪

Áfram ÍBV – alltaf, alls staðar! 🤍🖤

20/05/2026

Takk fyrir allt 🤍🖤

Egill Oddgeir Stefánsson mun ekki leika með ÍBV á næsta tímabili þar sem hann flytur frá Eyjum til að hefja nám.

Egill er uppalinn Vestmannaeyingur og hefur komið í gegnum yngri flokka félagsins áður en hann varð hluti af meistaraflokki. Það hefur verið gaman að fylgjast með honum vaxa og þroskast innan félagsins og leggja sitt af mörkum fyrir ÍBV.

Við erum þakklát fyrir allt það sem hann hefur gefið félaginu í gegnum árin og óskum honum góðs gengis í námi og nýjum verkefnum, bæði innan handboltans og utan.

Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir ÍBV.

Áfram ÍBV – alltaf, alls staðar! 🤍🖤

19/05/2026

Takk fyrir allt 🤍🖤

Nökkvi Snær Óðinsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir farsælan feril með ÍBV.

Í gegnum árin hefur hann verið dýrmætur hluti af félaginu og lagt sitt af mörkum með dugnaði, metnaði og góðum karakter, einnig var Nökkvi lykilmaður hjá okkur í Íslandsmeistaratitli 2023. Framlag hans til félagsins verður seint fullþakkað.

Við viljum þakka Nökkva Snæ fyrir allar stundirnar, baráttuna og tryggðina við ÍBV og óskum honum alls hins besta í því sem fram undan er.

“Hann heitir Nökkvi, og hann er lögga…” 🤍🖤

18/05/2026

2. Sæti í íslandsmóti

Drengirnir í 3. fl Léku í gær til úrslita um íslandsmeistratilinn gegn liði Vals. Leikurinn var jafn og spennandi allan tíman og vour Valsrar einu marki yfir í hálfleik 14-13.
seinni hálfleikur var einnig mjög jafn og spennandi og var staðan 25-25 þegar um 10 mín voru eftir af leiknum en þá sigur Valsrar framúr og kláruðu leikinn 33-27
Veturinn var frábær hjá 3. fl í vetur þar sem að drengirnir urðu bikarmeistar í mars, enduðu í 3. sæti í deild og 2. sæti á íslandsmótinu. Einnig léku þeir á sterku alþjóðlegu móti þar sem þeir enduðu í 5. sæti.

Mikið ef efnilegum og spennandi leikmönnum sem við eigum og er framtíðin mjög björt hjá félaginu

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Vestmannaeyjar?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Vestmannaeyjar
900