Foreldrafélag DSA

Foreldrafélag DSA

Share

Foreldrafélag DSA styður við starfsemi DSA með því að sjá um félagstörf nemenda, búninga og styðja við og skipuleggja ferðalög og keppnisferðir.

02/05/2026

Keppnislið DSA mun selja rósir og happdrættismiða fyrir og eftir sýningarnar í Hofi í dag
Rós 1500 kr.
Happdrættismiði 2000 kr.

Posi á staðnum

Sjáumst ;)

Tímavél - vorsýning DSA 19/04/2026

Styttist í vorsýningu
DSA - Listdansskóli Akureyrar

Tryggið ykkur miða 💃🏻🧑‍🩰

Tímavél - vorsýning DSA Nemendur DSA bjóða ykkur í skemmtilegt tímaferðalag í gegnum árinn. Það verður dansað í gegnum öll tímabilin frá 1800 til framtíðar. Sýning full af dansi, ljósum, litum og gleði fyrir alla fjölskylduna. Á sýningunni koma fram nemendur frá 2 ára og eldri og sýna allir hópar...

Photos from Foreldrafélag DSA's post 11/12/2025

Foreldrafélag DSA þakkar kærlega fyrir skemmtilegt jólaball í dag sem var fyrir alla nemendur DSA - Listdansskóli Akureyrar 🎅

Foreldrafélag DSA 02/11/2025

Foreldrafélagið styður við starfsemi DSA. Foreldrafélagið innheimtir félagsgjöld af foreldrum einu sinni á almanaksárinu. Félagsgjöldin eru nýtt til þess að kaupa efni í búninga, efla félagsstarf og styðja almennt við starfsemi skólans.

Félagsgjöldin eru 1500 kr. fyrir hverja fjölskyldu sem stundar nám við skólann. Rukkun frá foreldrafélaginu hefur verið send í heimabankann hjá fjölskyldum skólans :)

Sjá nánar um foreldrarfélag DSA hér

Foreldrafélag DSA Tilgangur foreldrafélags DSA

09/09/2025

Foreldrafélag DSA heldur fund í húsnæði DSA, miðvikudaginn 17.september kl.20:00

Fyrir áhugasama þá eru 3-5 laus pláss í foreldrafélaginu!
Við vonum að þið sjáið ykkur sem flest fært að mæta.

Photos from Foreldrafélag DSA's post 17/06/2025

Stelpurnar að mála og dansa á 17. júní, árleg fjáröflun þar sem Akureyrabær styrkir DSA ríkulega fyrir vinnuna 🫶🏼💪🏼

Vorsýning DSA 4. maí 2025 30/04/2025

Góða kvöldið foreldrar! Kæru foreldrar - okkur vantar á nokkrar vaktir á sýningunni á sunnudaginn - endilega setjið nöfnin ykkar inn. Góðar sýningar verða enn betri með stuðningi foreldra - nánari upplýsingar í skjalinu.

Vorsýning DSA 4. maí 2025 Vaktaplan á sýningu Vorsýning 4. maí Nafn Starfslýsing Generalprufa Mæting kl. 0800 Fyrri sýning Strax eftir generalprufu Seinni sýning Strax eftir fyrri sýningu Athugasemdir Kristrún Lind Birgisdóttir Sjálfboðaliði 1 (Með sýningarstjóra á sviði) Mætir Mætir Mætir ekki Sjálfb....

30/04/2025

🌹 Kæru foreldrar 🌹

Nú styttist í Vorsýningu DSA sem haldin er á sunnudaginn, þar sem börnin okkar fá að njóta sín á stóra sviðinu í Hofi.
Það verða seldar rósir fyrir og eftir sýningarnar sem fjáröflun fyrir foreldrafélagið.

Okkur vantar nokkra einstaklinga til að selja rósirnar:
- Klárt Dagný Reykjalín og Íris Elfa kl.11:30 - 12:00 ( Vakt 1 )
- Klárt Sigrún Vala og Ásrún Ösp kl.13:00 - 14:00 ( Vakt 2 )
- Alda Ýr Tvo einstaklinga kl.15:00 - 15:30 ( Vakt 3 )

Má skrá hér fyrir neðan.

Rósin kostar 1000 kr og hægt verður að greiða með peningum, millifærslu og aur. Erum ekki með posa.
Hraðbanki er staðsettur í anddyrinu í Hofi

Vonum að þið takið vel í þetta 🙂

💐 Kveðja Foreldrarfélag DSA 💐

23/04/2025

Kæru foreldrar,

Við vonum að allir séu tilbúnir fyrir þær spennandi danssýningar sem eru framundan! Við viljum nota tækifærið til að deila með ykkur mikilvægum upplýsingum um skipulag sýninganna og hlutverk sjálfboðaliða, ásamt nokkrum ábendingum fyrir börnin ykkar.

😎 Sjálfboðaliðar á sýningum:
Fyrir hverja sýningu þurfum við um það bil 10-12 sjálfboðaliða til að tryggja að allt gangi snurðulaust fyrir sig. Þar sem venjulega eru tvær sýningar á dag, skipuleggjum við hópana þannig að helmingurinn sér um fyrri sýninguna en hinn hópurinn um seinni. Með þessu móti geta allir sjálfboðaliðar einnig notið sýningarinnar í heild sinni.
Allir sjálfboðaliðar þurfa að mæta á generalprufuna sem er kl.10:00 að morgni sýningardags.

Hlutverk sjálfboðaliða er að:
- Passa börnin baksviðs og sjá til þess að þau séu örugg.
- Aðstoða börnin með aðhald og leiðsögn þegar þeirra hlutir í sýningunni nálgast.
- Selja Rósir fyrir og eftir sýningar

🥰 Ef einhver hefur áhuga á að skrá sig sem sjálfboðaliði eða hefur spurningar, vinsamlegast látið okkur vita sem fyrst 🥰

🍏Nestis- og tímaáætlanir:
Við biðjum ykkur að útbúa einfalt nesti fyrir börnin ykkar sem þau geta haft með sér á sýningardögum. Til að forðast óþrif eða slys viljum við sérstaklega biðja um:

- Engan safa í glerílátum eða jógúrt sem þarf að borða með skeið.
- Eitthvað einfalt sem auðvelt er að borða t.d. samloka eða þurrkaðir ávextir.
- Að börnin komi með sinn vatnsbrúsa (muna að merkja)

📙Börnin geta komið með smá afþreyingu, svo sem spil, bók eða síma, til að drepa tímann á milli æfinga og sýninga.

🕰 Vaktaplan:
Við erum afar þakklát fyrir ykkar stuðning og þátttöku í þessu verkefni. Án ykkar væri ekki hægt að gera þessar sýningar að veruleika.
Við höfum útbúið ítarlegt vaktaplan sem við miðlum til allra sjálfboðaliða nokkrum dögum fyrir sýningarnar. Þar verður skýrt hverjir eru á vakt hvenær og hvaða hlutverk hver og einn er með.

Kær kveðja,
foreldrafélagið

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akureyri?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Hrísalundur
Akureyri
600