02/08/2026
FRUMRAUN Í BESTU DEILDINNI
Libby Moore þreytti frumraun sína í Bestu deildinni í liðinni viku þegar við sóttum Breiðablik heim á Kópavogsvöll. Libby kom til félagsins fyrir stuttu og samdi út yfirstandandi tímabil.
DEBUT IN THE ICELANDIC LEAGUE
Libby Moore, who joined Þór/KA recently, made her debut with the club in the starting 11 against the Icelandic Champions, Breiðablik, last week.
30/07/2026
FYRSTI LEIKUR, FYRSTI Í BESTU
Emma Júlía Cariglia (2011) kom inn í hópinn fyrir leikinn gegn Breiðabliki í gær og kom inn af varamannabekknum á 87. mínútu. Þetta er hennar fyrsta innkoma í leik í meistaraflokki og þar með einnig hennar fyrsti leikur í Bestu deildinni. Emma Júlía fetar í fótspor móður sinnar, Þóru Pétursdóttur, sem spilaði fyrir Þór/KA og Þór/KA/KS frá 1999 til 2005 og þar áður fyrir sameiginlegt lið Akureyringa undir merkjum ÍBA 1997-1998. Nánar á vef félagsins, thorka.is.
29/07/2026
Niðurstaðan. Annað mark frá gestgjöfunum snemma í seinni hálfleik, en okkur tókst ekki að svara þrátt fyrir nokkur ágæt færi.
29/07/2026
STAÐAN
Gestgjafarnir náðu forystu á 3. mínútu og misnotuðu víti á 20. mínútu. Við misnotuðum víti í viðbótartíma fyrri hálfleiks. Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir í fyrsta skipti í byrjunarliði í Bestu deildinni.
29/07/2026
HÓPURINN Í DAG
Fjórar breytingar á byrjunarliðinu frá síðasta leik. Inn koma Libby Moore, Hildur Anna, Birgitta Rún og Emelía Blöndal. Karen María og Hulda Ósk eru varamenn, en þær Bríet Jó og Erin, sem byrjuðu síðasta leik, eru ekki með okkur í dag, og ekki heldur þær Elísa Bríet og Emelía Ósk. Inn í hópinn koma Libby Moore og Emma Júlía Cariglia, fædd 2011.
29/07/2026
LEIKDAGUR Í KÓPAVOGI
Við höldum suður og mætum Breiðabliki á Kópavogsvelli í dag. Flautað til leiks kl. 18. Hvetjum okkar fólk syðra og á ferðalagi til að kíkja við og styðja stelpurnar. Það skiptir máli.
28/07/2026
FYRSTI SAMNINGUR
Stjórn Þórs/KA hefur samið við kornunga heimakonu, Karen Huldu Hrafnsdóttur, sem fædd er 2009. Þetta er fyrsti samningur Karenar Huldu við félagið.
Nánar á vef okkar, thorka.is - https://www.thorka.is/is/moya/news/karen-hulda-hrafnsdottir-undirritar-sinn-fyrsta-samning
28/07/2026
NÆST: Í KÓPAVOGINN
Við förum í Kópavoginn á morgun og mætum Breiðabliki á Kópavogsvelli. Flautað til leiks kl. 18.
Hvetjum okkar fólk til að bruna á völlinn og styðja stelpurnar okkar. Það skiptir máli.