12/04/2026
Ég kláraði líka að smíða skjástand sem hægt er að snúa og festa þannig að hægt er að horfa á gang siglingarinnar frá sófanum eða frá kortaborðinu. Eða eithvað annað sem áhöfnin vill sjá. Þetta mjakast allt sem er eins gott því það eru bara 50 dagar í brottför.
12/04/2026
Það er gaman þegar maður nær að klára verkefnin. Í dag kláraði ég borðið í cockpitnum hjá mér. Ég fékk mikilvæga hjálp hjá Jón Rafn Sigurðsson og aðstaðan í Trefjar er ómetanleg.
14/03/2026
Auka altinatorinn kominn á sinn stað. Nú get ég framleitt 230A með vélinni til að snúa 2,2kw mótornum á köfunarpressunni eða 900w mótornum fyrir watermakerinn. Það verður indællt að geta tekið kalda sturtu í Karabíska hafinu og þurfa ekki að hafa áhyggjur af vatninu. Að auki get ég framleitt rafmagn með 500w af sólarsellum eða tveim 400w vindmillum.
26/07/2025
Ekki vissum við það þarna 2018 þegar við bundum okkur utan á þennan rauða að bæði Guðmundur Ísak og Tara Ósk ættu eftir að vera vélstjórar á honum Frá VE78.
26/07/2025
Nýja 1500W ankerisvindan komin á sinn stað. Næst er að hanna og smíða nýtt ankeriskluss. Mastrið verður svo tekið í yfirhalningu á þriðjudaginn. Mastrið er búið að standa sig í 18 ár svo það er kominn tími á að leggja það lárétt og skipta um stög, radar, vindnema og siglingaljós í það minsta.
26/07/2025
Ég hef talað um það í nokkurn tíma en nú ætla ég að gera það opinbert. Það er stefnt á brotför 1.6.2026.
27/06/2024
Martin Fuller and Stephanie Connor over-wintered their 11m yacht “Sandpiper” at the marina after sailing from Newfoundland, along the Labrador coast before cruising on Greenland’s west and east coasts. They launch their yacht on Saturday ready to sail back to the UK via Iceland’s northern coast.
They have kindly offered to give a short, 30-minute, slide show about their voyage along the isolated and beautiful Labrador coast to any club members who are interested.
Unfortunately, they need to be sailing north very soon and therefore there is a very small window of opportunity for the presentation which we propose takes place at the Sailingclub Þytur at 20:00 on 29th of Saturday.
19/10/2019
Seglið tekið niður í bili og nú þarf að sauma nýtt seglakover ⛵ Svo er alltaf gott að fá nýveiddan fisk í soðið 🐟