05/10/2020
👏🏻👏🏻👏🏻
Metin féllu á haustmóti LSÍ
Anna Guðrún Halldórsdóttir, Hengli, raðaði inn Íslandsmetum og Símon Gestur Ragnarsson, Umf. Selfoss, bætti tvö Íslandsmet þegar haustmót Lyftingasambands Íslands fór fram á Selfossi á dögunum. Ann…
29/10/2016
Matthías náði öllum sínum lyftum og setti íslandsmet í snörun, jafnhendingu og samanlögðu í sínum þyngdarflokki í aldursflokkunum youth 16-17, junior 18-20 og U23
Þyngstu lyfturnar hans voru 68 kg snörun, 83 kg jafnhending og samanlagt 151 kg
Lyftingasamband Íslands
Stofnað 27. janúar 1973 og hefur verið aðili að ÍSÍ óslitið frá þeim tíma.
18/02/2016
Aðalfundur Lyftingafélagsins Hengils 2016 verður haldinn fimmtudaginn 10. mars kl. 21:00 Í húsnæði Crossfit Hengils í Skólamörk 6, Hveragerði
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. Kjörgengi og atkvæðisrétt hafa allir félagsmenn. Málfrelsi og tillögurétt hafa allir þeir sem aðalfund sækja.
Samkvæmt 7. grein laga Lyftingafélagsins Hengils er aðalfundur félagsins haldinn eigi síðar en 1. apríl ár hvert og hefur æðsta vald í málum félagsins. Til aðalfundar skal boðað með sannanlegum hætti með a.m.k. 3 vikna fyrirvara. Tillögur til umfjöllunar á aðalfundi þurfa að berast stjórn félagsins eigi síðar en 2 vikum fyrir aðalfund, sbr.2. mgr. 7. gr. laga félagsins. Þeir sem vilja gefa kost á sér til trúnaðarstarfa fyrir félagið er hvattir til að gefa kost á sér.
Aðalfundur félagsins er opinn öllum félagsmönnum. Aðalfundargögnum verður komið fyrir á facebooksíðu félagsins. Á dagskrá aðalfundarins skulu a.m.k. vera þessir liðir samkvæmt 5. mgr. 7. gr. laga félagsins:
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur félagsins
3. Lagabreytingar
4. ákvörðun félagsgjalds
5. Kosning stjórnar
6. Kosning skoðunarmanna
7. Önnur mál, t.d. tillögur sem borist hafa til stjórnar sbr. 3. málsl. 2. mgr. 7. gr. laga félagsins
Tillögur sem félgsmenn óska að teknar verði fyrir á fundinum ásamt framboðum til
trúnaðarstarfa fyrir félagið skulu berast stjórn með tölvupósti á netfangið [email protected]
17/10/2015
Lyftingafélagið Hengill hélt Haustmótið og gekk það mjög vel, hér eru nokkar myndir, endilega taggið fólkið í myndunum.
22/09/2015
Haustmót Lyftingasambands Íslands verður haldið laugardaginn 17. október n.k. í Íþróttahúsinu í Hveragerði. Við hvetjum alla lyftingamenn og konur til að skrá sig til leiks.
23/08/2015
Tveir iðkendur hjá Lyftingafélaginu Hengli tóku um seinustu helgi þátt í æfingabúðum á vegum Lyftingassambands Íslands og stóðu sig með eindæmum vel og voru félaginu til mikils sóma.
Æfingabúðir hjá LSÍ fóru fram síðustu helgi
Góð mæting var í æfingabúðir sem LSÍ stóð fyrir um helgina. Lyftingasambandið vill þakka Sporthúsinu í Reykjanesbæ fyrir að lána aðstöðuna: Sautján lyftingakarlar og konur mættu og tóku á því á tve...
25/05/2015
Hér má sjá fólkið okkar á vormótinu sem haldið var fyrr í mánuðinum.
Það er óhætt að segja að fólkið okkar hafi tekið miklum framförum á þeim stutta tíma sem liðið hefur síðan Lyftingafélagið var stofnað.
Vormót LFH2
14/05/2015
Í dag var haldið vor-innanhússmót Lyftingafélagsins Hengils. 12 keppendur voru skráðir til leiks, 5 konur og 7 karlar. Mótið var glæsilegt í alla staði og stóðu allir keppendurnir sig með prýði og sýndu góða tækni og aga.
Keppt var eftir sinclair stigum og voru úrslit mótsins eftirfarandi
KK
1. Heiðar Ingi Heiðarsson
2. Gunnar Ingi Þorsteinsson
3. Alexander Kristmannsson
KVK
1. Harpa Almarsdóttir
2. Heiðrún Stella Þorvaldsdóttir
3. Birna Almarsdóttir
Stjórn Lyftingafélagsins Hengils vill koma á framfæri þakklæti sínu við þá Björgvin Karl, Ara Ísberg og Walter Fannar fyrir að taka að sér störf á mótinu ásamt því að þakka áhorfendum fyrir skemmtilegan dag.