Golfklúbbur Hveragerðis

Golfklúbbur Hveragerðis

Share

Gufudalsvöllur er staðsettur í dalnum inn af Hveragerði, völlurinn er einn besti níu holu völlur landsins í einungis 30 mínútna fjarlægð frá Höfuðborginni.

Fjölbreyttur völlur í fallegu umhverfi. Vertu velkominn í golf í sumar. Klúbburinn rekur veitingasölu í Gufudal.
Þar er hægt að fá heimabakað bakkelsi og ýmiskonar veitingar.

04/06/2026

Hjáleið á Gufudalsvöll vegna Hengill Ultra

04/06/2026

Sælir félagar,
það opnar fyrir skráningu í meistaramótið okkar í dag kl. 12:00

GolfBox Tournament

01/06/2026

Hæ öll. 

Mikið af fréttum af starfi þessa dagana og mikið að gerast loks þegar sumar smellur á. Vona að allir séu að njóta á Örkinni eða í dalnum.
Flott mæting á síðustu nýliðaæfingu!
Næsta æfing verður miðvikudaginn 3. júní og mæting við skála. Skráum okkur eins og áður í comment. Byrjum að fylla frá klukkan 18 til 19 og ef það dugar ekki þá stefnum við á aðra æfingu frá kl 19 til 20.
Höfum núna bara 8 ca í tímanum og þetta er aðeins fyrir félagsmenn. Nýliðar teljast þeir sem byrjuðu á þessu eða síðasta ári í klúbbnum. Þetta er eingöngu fyrir félagsmenn GHG.

Kveðja. Einar L

Photos from Golfklúbbur Hveragerðis's post 01/06/2026

Þá er búið að draga í Holukeppni GHG.
Þar sem ekki náðist í 32 hjá körlum þá sitja nokkrir yfir í fyrstu umferð, hjá konum er það sama tvær eru komnar áfram í aðra umferð.
Fyrstu umferð skal vera lokið fyrir 15.júní og annari umferð fyrir 29.júní. Ef þið hafið einhverjar spurningar vegna forgjafarútreiknings hafið samband við Erling eða Einar.
Hér er linkur á karlaflokkinn: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1QLOJLX7SmSc6sldMkaglOG2_RoM0vL0244_bj3RkVIs/edit?usp=sharing

30/05/2026

Hvetjum allar konur til að skrá sig og taka þátt.

28/05/2026
27/05/2026

Kæru félagar.

Tveggja daga golfnámskeið verður haldið þann 2. og 9. júni. Námskeiðið er kl 18:00-19:30 og ef fyllist í það munum við tilkynna um það ef með þarf.
Kennarar á námskeiðinu eru þeir Guðmundur Ágúst Kristjánsson atvinnukylfingur og Einar Lyng Hjaltason PGA golfkennari.
Námskeiðið kostar 10.000kr á mann og hægt að senda póst á [email protected] til að skrá sig á námskeiðið. Einnig ætlar Gummi að bjóða kylfingum uppá einkakennslu og er hægt að senda honum póst beint á netfangið [email protected].

27/05/2026

Í linknum hér að neðan er hægt að fylgjast með stöðunni á stigalistanum í þriðjudagsmótaröðinni:

GolfBox Tournament

25/05/2026

Kæru félagar

Það er komið að fyrstu nýliða æfingunni. Ath. Þetta er aðeins fyrir nýliða í GHG!
Núna á miðvikudaginn næsta 27. maí ætlum við að hittast í skála og fara yfir nokkra punkta. Skiptum þessu upp í tvo tíma. Fyrsta hitting klukkan 18-19, 19-20 og svo 20-21 ef með þarf. En byrjum að fylla fyrstu tvo og það er mest hægt að vera 10-12 í tímanum. Endilega setjið komment á póstinn hvorn tímann þið takið. Við förum í pútt æfingar og tökum grip æfingu fyrir sveifluna. Svona létt fyrirlestrar form.

Kveðja. Einar Lyng.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Hveragerdi?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Gufudalur
Hveragerdi
810

Opening Hours

Monday 10:00 - 21:00
Tuesday 10:00 - 21:00
Wednesday 10:00 - 21:00
Thursday 10:00 - 21:00
Friday 10:00 - 21:00
Saturday 09:00 - 16:00
Sunday 09:00 - 16:00