03/06/2026
Sæl verið þið ❤
Við Hrund erum á leið til Belgíu að keppa á Evrópumóti í ólympískum lyftingum. Til að safna fyrir ferðinni ætlum við að halda námskeið/pop-up í olý fyrir bæði byrjendur og lengra komna – það er að segja fyrir ALLA!
Einnig ætlum við að halda Lift Off, 16 júní kl 17:15, þar sem þátttakendur geta spreytt sig á að keppa eins og í ólympískum lyftingum.
Allar frekari upplýsingar ogg skráning hér 🙂
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfiibceIotAXT-aRvdmWQyjK3suCmRnCAGPAUDqTHs4YJcZIw/viewform?usp=header
29/05/2026
Sturluð staðreynd. Önnur hver kona eftir 50 ára og fjórði hver karl eftir 50 ára mun fá beinþynningarbrot! 🩻
Hlustið a nýjasta viðtalið í hlaðvarpinu um Beinheilsu og hvað það er mikilvægt að byrja að huga að henni strax í dag.
Þú finnur hlaðvarpið á Spotify,Apple podcasts og á hlekk í athugasemdum. ⬇️
Í þættinum ræðir Erla við Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni um beinheilsu, hvað ákvarðar beinþéttni og hvers vegna við töpum beinþéttni í kringum tíðahvörf, hinn þögla sjúkdóm sem beinþynning er og hvað við getum gert með lífstíl okkar til þessa að fyrirbyggja eða snúa við þeirri þróun.
Þær ræða einnig um áhrif ofþjálfunar, átröskunar, þyngdarstjórnunaraðgerða og lyfja á beinheilsu okkar og hversu mikilvægt það er að reyna að koma í veg fyrir að beinþéttni minnki til þess að tryggja góða almenna heilsu og góð og sterk bein alla ævi.
Sigríður stofnaði síðuna Beinheilsa.is þar sem hægt er að nálgast fræðslu, aðstoð, næringar ráðleggingar og æfingarmyndbönd.
Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:
💙 - Vantar þig öflugan liðstyrk?
🌱 .is Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?
🐘 Töfrandi nám í markþjálfun
💗 Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦 Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.
25/05/2026
Nokkur hljóðbrot úr dásamlegu viðtali við
Ekki missa af þessum þætti! https://www.buzzsprout.com/2200401/episodes/19171714
24/05/2026
Fyrr í vikunni átti ég frábært og fræðandi spjall við Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni.
Við ræddum um beinheilsu, hvað ákvarðar beinþéttni og hvers vegna við töpum beinþéttni í kringum tíðahvörf, hinn þögla sjúkdóm sem beinþynning er og hvað við getum gert með lífstíl okkar til þessa að fyrirbyggja eða snúa við þeirri þróun.
Við ræðum einnig um áhrif ofþjálfunar, átröskunar, þyngdarstjórnunaraðgerða og lyfja á beinheilsu okkar og hversu mikilvægt það er að reyna að koma í veg fyrir að beinþéttni minnki til þess að tryggja góða almenna heilsu og góð og sterk bein alla ævi.
Sigríður stofnaði síðuna Beinheilsa.is þar sem hægt er að nálgast fræðslu, aðstoð, næringar ráðleggingar og æfingarmyndbönd.
Þátturinn fer í loftið næstu helgi.
23/05/2026
Nokkrir gullmolar úr viðtali við Þórunni Evu stofnandi Mía Magic .is
Við ræddum um lífið og tilveruna, andlega heilsu, heilsubrest, langveik börn, hugarfar, hugrekki og margt fleira.
Hlustið hér: https://www.buzzsprout.com/2200401/episodes/19171714
Hvað er Mia Magic? Það er góðgerðarfélag sem einbeitir sér að því að gleðja og styðja langveik börn og foreldra þeirra.
Félagið gefur út fræðslubækur um sjúkdóma og aðgerðir sem hjálpa börnum að skilja algenga sjúkdóma og inngrip á þeirra forsendum, svo sem Mía fær lyfjabrunn, Mía fer í blóðprufu og Mía lærir um sykursýki. Félagið sendir einnig út Míubox til að létta undir með fjölskyldum og veitir fagfólk viðurkenningu með Míuverðlaunum.
Þórunn Eva var valinn Framúrskarandi ungur Íslendingur árið 2021 fyrir framlag sitt til góðgerðarmála.
19/05/2026
Í síðustu viku héldum ég, pabbi og Sigrún Haraldsdóttir erindi á sérstökum heilsudegi hjá Embætti héraðssaksóknara.
Það eru þvílík forréttindi að fá að halda slíkan fyrirlestur með pabba sínum og deila þekkingu og reynslu í gegnum fræðslu.
Við fræddum þau um starf trúnaðarlæknis, heildræna heilsu, heilsulæsi, líkamsvitund og innri skynjun og mátt Vagus taugarinnar.
Ef þú hefur áhuga á að fá fræðsluerindi í þinn vinnustað má hafa samband í gegnum www.heilsuerla.is
Til gamans má geta að bæði pabbi og Sigrún hafa verið viðmælendur í hlaðvarpinu. Ég mæli með hlustun.
Þáttur 105, Ert þú með ofþanið taugakerfi? https://www.buzzsprout.com/2200401/episodes/18470588
Þáttur 100, Heilsuspjall fegðina: https://www.buzzsprout.com/2200401/episodes/18081910