03/06/2026
☀️ SUMARNÁMSKEIÐ HK 2026 ☀️
Í sumar býður HK upp á fjölbreytt og skemmtileg sumarnámskeið fyrir börn fædd 2016–2019.
Í boði eru námskeið í:
⚽ Knattspyrnu
🤾 Handknattleik
🏐 Blaki
🏑 Bandý
Markmið HK er að skapa jákvætt, öruggt og skemmtilegt umhverfi þar sem sem flest börn fá tækifæri til að hreyfa sig, eignast nýja vini og njóta sumarsins.
📅 Skipulögð dagskrá alla virka daga:
🕘 09:00–12:00
🕐 13:00–16:00
🌭 Hver námskeiðsvika endar á skemmtilegu pylsupartýi á starfsstöðvum HK.
Öll námskeið eru undir stjórn reynslumikilla leiðbeinenda sem hafa bakgrunn í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.
👉 Skráning er hafin:
https://www.abler.io/shop/hk?returnTo=%2F%3Fcountry%3DIS%26mode%3Dclubs
Nánari upplýsingar:
https://www.hk.is/is/frettir/sumarnamskeid-hk-2026
❤️ Hjartað slær fyrir HK
HK
Handknattleiksfélag Kópavogs
Gleði - Virðing - Metnaður
Stofnað 26. janúar 1970
03/06/2026
Hvetjum alla HK-inga að mæta í Kórinn & hvetja strákana til sigurs! 💪🏻⚽
HK mætir toppliði Aftureldingar í alvöru slag í Kórnum.
Sælkerabúðin verður á svæðinu! 🍔
Mættu og hitaðu upp fyrir helgina 💪🏻⚽
Miðasala: https://stubb.is/events/oQ3eZn
31/05/2026
Einar Bragi, sem ólst upp hjá HK og steig sín fyrstu skref í meistaraflokki félagsins í Kórnum, hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn af efnilegustu handknattleiksmönnum landsins. Nú hefur hann bætt sænskum meistaratitli á ferilskrána aðeins 24 ára gamall.
HK-ingur varð sænskur meistari – Einar Bragi með þrennuna í Svíþjóð
HK-ingurinn Einar Bragi Aðalsteinsson skrifaði sig í sögubækurnar í vikunni þegar hann varð sænskur meistari með IFK Kristianstad eftir sigur á Malmö í úrslitaeinvígi sænsku úrvalsdeildarinnar.
30/05/2026
Næsti leikur!
Strákarnir okkar mæta Leikni !
Komum saman og hvetjum þá áfram!
Áfram HK!!
27/05/2026
💥 Síðasti séns! 💥
Sölu lýkur í dag! Ef þú ætlar að næla þér í afmælistreyju ÍK, þá er þetta síðasti séns.
Það er sérstaklega dýrmætt að allur hagnaður af sölu treyjunnar rennur til barna- og unglingastarfs félagsins.
Treyjuna má nálgast hér: https://macron.is/vara/ik1976/
HK þakkar Macron fyrir glæsilegan virðingarvott við sögu ÍK
Eins og fram kemur í frétt Fótbolta.net hefur Macron, í samstarfi við fyrrverandi leikmenn ÍK, hannað sérstaka afmælistreyju sem heiðrar sögu félagsins. Treyjan vísar í rætur ÍK, liti félagsins og þá einstaklinga og bakhjarla sem komu að uppbyggingu knattspyrnunnar í Kópavogi ....
25/05/2026
Heimaleikur hjá strákunum í Kórnum 27.maí!
Strákarnir taka á móti Völsungi í Kórnum & treysta á ykkar stuðning!
Sælkerabúðin verður á svæðinu til að kæta bragðlauka & þið komið með hvatninguna!
Áfram HK!!
miðasala: https://stubb.is/events/nK3ekn
24/05/2026
Heimaleikur! Hvetjum okkar stelpur áfram í Kórnum ⚽🙌🏽
Heimaleikur! Komum saman í Kórnum og hvetjum stelpurnar okkar áfram!
Miðasala: https://stubb.is/events/ymdjWn
21/05/2026
Hvetjum strákana okkar til sigurs gegn ÍR á morgun!
Mætum & hvetjum strákana okkar til sigurs gegn ÍR á morgun kl: 19:15!
Áfram HK!
https://stubb.is/events/bXelzn
18/05/2026
Eftirfarandi fyrirtæki gáfu vinninga í glæsilegt happdrætti Kvennakvölds HK.
Kærar þakkir fyrir stuðninginn, við kunnum sannarlega að meta hann.
15/05/2026
Settu nafnið þitt á vara keppnistreyju meistaraflokks kvenna og karla hjá HK næstu 2 keppnistímabil!
Eins og síðastliðin 6 ár býður HK stuðningsmönnum að kaupa nafnið sitt á keppnisbúninga beggja liða. Að þessu sinni munu nöfn stuðningsmanna skarta varatreyju liðanna sem spilað er í alla útileiki. Þetta má enginn HK-ingur láta framhjá sér fara!!
Þetta er þitt tækifæri til að taka þátt í öllum útileikjum meistaraflokkanna og um leið styður þú það metnaðarfulla starf sem er í gangi hjá handknattleiksdeild HK!
Nafnið kostar 24.000 kr. 12.000 kr hvort tímabil.
Smelltu á linkinn hér að neðan til að taka þátt
https://forms.office.com/e/BbwKkraCPY