12/11/2026
Það var nóg um að vera hjá HK liðum í gær.
Stelpurnar í HK Ými B “heimsóttu” Ými í Fagralund í gærkvöldi og unnu þar sinn fyrsta sigur í 1. deildinni á þessu tímabili í æsispennandi leik, 3-2.
Á sama tíma var Úrvalsdeildar leikur hjá strákunum okkar í Laugardalshöllinni, þar sem þeir sóttu Þrótt Reykjavík heim. Strákarnir voru í hörkubaráttu en leikurinn fór svo 3-1 fyrir heimamönnum: 25-21, 16-25, 26-16, 26-24.
❤️🏐❤️