08/06/2026
Fyrsti sigur Evu á GSÍ mótaröðinni
Landsliðskylfingurinn Eva Kristinsdóttir landaði sínum fyrsta titli á GSÍ mótaröðinni um helgina en leiknar voru 54 holur Í Þorlákshöfn á tveimur keppnisdögum. Eva byrjaði fyrsta hringinn á 1 höggi yfir pari en lék svo hörku golf síðari tvo hringina eða á 68 og 69 höggum með sitthvora 7 fuglana á hvorum hring. Hún sigraði með sannfærandi 5 högga mun yfir Andreu Ýr frá Akureyri sem varð önnur. Óskum Evu innilega til hamingju!
Sara Kristinsdóttir systir Evu endaði í 7. sæti í mótinu á +9 en hún lék frábært golf á lokahringnum eða 70 höggum (-2).
Sverrir Haraldsson var bestur GM karla megin en hann endaði jafn í 9. sæti á 5 höggum undir pari (68-73-70) eftir flotta spilamennsku.
https://www.golfmos.is/fyrsti-sigur-evu-a-gsi-motaroinni
07/06/2026
Kristján Karl og Anna Dís sigruðu í GKG
Alls kepptu 40 iðkendur úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar á Golf14 og Unglingamótaröðinni í GKG sem fóru fram í Mýrinni og á Leirdalsvelli um helgina.
Aðstæður voru ágætar en töluverð rigning setti strik í reikninginn á föstudeginum.
Kristján Karl Guðjónsson hélt áfram að leika frábært golf líkt og hann hefur gert í sumar og sigraði í flokki 17-18 ára drengja þegar hann lék hringina þrjá á 1 höggi undir pari (71-68-73). Sara María Guðmundsdóttir endaði í 2. sæti í flokki 15-16 ára stúlkna á +36 (88-83-78).
Golf14 mótið fór fram á Mýrinni en einnig á Leirdalsvelli í flokki 13-14 ára. Anna Dís Strange sigraði í flokki 13-14 ára stúlkna á Mýrinni en hún setti lokahöggið sitt beint í holu frá um 60 metra fjarlægð til að sigra í mótinu með einu höggi.
Elmar Þór Vilhjálmsson endaði í 2. sæti eftir spennandi bráðbana um sigurinn í flokki 10 ára og yngri drengja. Hann lék stórkostlegt golf á lokahringnum eða 38 höggum og var þetta var hans fyrsta golfmót á ferlinum.
Í flokki 13-14 ára stúlkna á Leirdalsvelli endaði Eiríka Malaika Stefánsdóttir í 4. sæti og Elva Rún Rafnsdóttir í 7. sæti. Emil Darri Birgisson og Ásgeir Páll Baldursson enduðu jafnir í 5. sæti í flokki 13-14 ára drengja á Leirdalsvelli.
https://www.golfmos.is/kristjan-karl-og-anna-dis-sigruu-i-gkg
04/06/2026
Ókeypis golfkennsla fyrir nýliða GM
Sérstakar æfingar fyrir félagsmenn GM sem eru að stíga sín fyrstu skref í golfi hefjast í kvöld.
Æfingarnar eru kylfingum að kostnaðarlausu og fara fram alla fimmtudaga í júní og júlí milli 20:00 - 21:00.
Mætinga á æfingarnar er við boltavél á æfingasvæði og er Victor Viktorsson PGA golfkennari með tímana.
04/06/2026
Nýjar staðarreglur sem tóku gildi 1. júní síðastliðinn.
Í ár eru komnar nýjar reglur varðandi færslur á íslenskum golfvöllum og ber okkur nú að spila hreyfingarlaust golf.
Hægt er að sækja um undanþágu vegna tímabundna aðstæðna sem við höfum gert.
Það má því færa um skorkortslengd (15 cm) á brautum 1-5-6-8 og 9 á Hlíðavelli og 8. braut í Bakkakoti (vegna frostlyfinga).
Á öðrum brautum sem og flötum eru engar hreyfingar leyfðar.
Gott er að kynna sér staðarreglur á völlum okkar hér, https://www.golfmos.is/stadarreglurgm
02/06/2026
Karl Ómar ráðinn til GM
Karl Ómar Karlsson hefur verinn ráðinn inn í barna- og unglingastarf Golfklúbbs Mosfellsbæjar. Karl Ómar er menntaður PGA golfkennari og útskrifaðist úr HGTU golfkennaranámi í Svíþjóð árið 2003. Hann hefur síðan aukið við þekkingu sína með fjölbreyttum námskeiðum á vegum norsku og sænsku golfkennarasamtakanna. Þá hefur hann komið að fjölmörgum verkefnum tengdum þjálfun, kennslu og liðsstjórn fyrir Golfsamband Íslands.
Kalli er lærður grunn- og framhaldskólakennari og hefur mikla reynslu sem grunnskólakennari.
Karl kemur inn í kennarateymi íþróttastarfsins með Degi, Andra og Katrínu og mun hafa yfirumsjón með starfi tengt iðkendum sem eru 14 ára og yngri.
Mikil fjölgun hefur verið í æfingahópum beggja kynja í yngstu aldursflokkum og eru nú rúmlega 100 iðkendur undir 14 ára aldri í GM.
Reynsla Kalla í golfbransanum er löng en hann hefur séð um mikla uppbyggingu og starfað sem íþróttastjóri og þjálfari í íþróttastarfi Golfklúbbsins Leynis 1996-2000 og 2005-2014, Golfklúbbsins Keilis 2015-2024 og Golfklúbbi Reykjavíkur (2024-2025).
Á árunum 2000-2005 starfaði Kalli í Noregi hjá tveimur golfklúbbum.
Við bjóðum Kalla velkominn í okkar flotta starf og erum spennt að bjóða upp á enn betri þjónustu fyrir okkar iðkendur og félagsmenn.
02/06/2026
Minnum á fræðslukvöldið sem fram fer í kvöld :)
01/06/2026
Eva í þriðja sæti í Korpubikarnum | Úrslit úr mótum helgarinnar hjá kylfingum GM
Eva Kristinsdóttir lék flott golf um helgina í Korpubikarnum en hún endaði jöfn í 3. sæti á 2 höggum yfir pari samtals (71 73 74). Auður Bergrún Snorradóttir endaði í 8. sæti á +10 en hún lék á 3 höggum undir pari fyrsta daginn en gaf svo eftir um helgina (69 78 79).
Í karlaflokki var Kristján Þór Einarsson bestur GM-inga en hann endaði í 11. sæti á 2 höggum yfir pari samtals (70 73 72).
Tvö önnur mót fóru fram um helgina en unglingamótaröðin var á Hlíðavelli fyrir 15-18 ára og Golf14 var í Nesklúbbnum fyrir 14 ára og yngri.
Í flokki 17-18 ára pilta endaði Kristján Karl Guðjónsson jafn í 2. sæti á -5 (66 69 73).
Sara María Guðmundsdóttir var í 2. sæti í flokki 15-16 ára stúlkna en hún lék á +36 (78 86 85).
Í Golf14 mótinu voru 24 keppendur úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Í flokki 13-14 ára drengja vorum Emil Darri Birgisson og Ásgeir Páll Baldursson jafnir í 2. sæti og Óskar Jóhann Sigurðsson jafn í 10. sæti.
Í flokki 13-14 ára stúlkna var Elva Rún Rafnsdóttir í 5. sæti og Rakel Þyrí Kristmannsdóttir í 6. sæti.
https://www.golfmos.is/eva-i-rija-sti-i-korpubikarnum-urslit-ur-motum-helgarinnar-hja-kylfingum-gm
31/05/2026
Góðan daginn.
Á morgun mánudaginn 1. júní ætlum við að snúa vellinum og munum því hefja leik á 10. teig á Hlíðavelli.