Skotfélag Reykjavíkur

Skotfélag Reykjavíkur

Share

Skotfélag Reykjavíkur, stofnað 2. júní 1867, er elsta íþróttafélag Íslands. Reykjavik Shoo

Um Skotfélagið 02/06/2026

Félagið okkar á 159 ára afmæli í dag, stofnað 2.júní árið 1867

Um Skotfélagið sr.is - Skotfélag Reykjavíkur - Elsta íþróttafélag landsins.

27/05/2026

Minnum félagsmenn á sumarþjálfaranámið í þjálfaramenntun ÍSÍ en hægt er að taka sérgreinahluta hjá ISSF - International Shooting Sport Federation https://www.issf-sports.org/academy
Félagið styrkir þá sem mennta sig til þjálfunar hjá félaginu.

🎓 Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun 1. og 2. stigs hefst mánudaginn 8. júní næstkomandi.
Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.
Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ.
📝 Skráning:
Skráning fer fram á Abler: http://www.abler.io/shop/isi
Nemendur velja viðeigandi námskeið og ganga frá greiðslu í heimabanka.
Nýir notendur í Abler þurfa að stofna aðgang undir „Nýr notandi.“ Upplýsingar um verð er að finna þarna við skráningu í Abler.
ℹ️ Allar nánari upplýsingar veitir:
Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviðið ÍSÍ
📞 Sími; 514-4000 / 863-1399
✉️ Netfang: [email protected]

19/05/2026

Minnum á aðalfund félagsins í kvöld kl.18 í Egilshöllinni !!

Photos from Skotfélag Reykjavíkur's post 10/05/2026

Landsmót í Compak Sporting fór fram um helgina á svæði Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar. Skotnar voru 200 dúfur 125 í gær laugardag og 75 í dag, Skotfélag Reykjavíkur átti 5 keppendur á mótinu. Jóhann Ævarsson frá Skotfélagi Akureyrar sigraði á 180 dúfum, Jón Valgeirsson frá Skotfélagi Reykjavikur og Theodór Þórólfsson frá Skotfélagi Akureyrar voru jafnir á 179 dúfum en Jón hafði betur í shoot off og tók annað sætið og Theodór endaði 3. Fjögur lið voru skráð til keppni og hafnaði sveit Skotfélags Akureyrar í 1 sæti á 527, en hana skipaði Jóhann Ævarsson, Theodór Þórólfsson og Jónmundur Guðmarsson. Sveit Skotfélags Reykjavíkur var önnur á 506 dúfum en hana skipaði Jón Valgeirsson, Þorri Helgason og Dagný H.Hinriksdóttir. Í þriðja sæti var svo B sveit Skotíþróttafélags Hafnafjarða á 480 dúfum, en hana skipaði Ásbjörn Sírnir Arnarsson, Timo Salsola og Bæring Ágústson. Í unglingaflokki sigraði Hergill Henning Kristinsson úr Skotíþróttafélagi Hafnafjarðar á 151 dúfu.
Frábær helgi í góðum félagsskap og þökkum við Hafnfirðingum vel fyrir

Sigurlína með Íslandsmet á RIG í dag 25/01/2026

Jórunn sigraði í loftskammbyssu.
Keppni í loftskammbyssu er nú lokið á Reykjavíkurleikunum í Laugardalshöllinni. Í opnum flokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur, með 224,1 stig eftir mjög tvísýna keppni við Maríu Lagou úr Skotíþróttafélagi Kópavogs, með 220,5 stig, sem hlaut silfrið. Í þriðja sæti varð Björgvin Sigurðsson úr Skotdeild Keflavíkur. Úlfar Sigurbjarnarson úr Skotfélagi Reykjavíkur hlaut gullið í unglingaflokki. Í liðakeppninni sigraði A-sveit Skotíþróttafélags Kópavogs með 1,611 stig (19x), A-sveit Skotfélags Reykjavíkur varð önnur með 1,596 stig (23x) og í þriðja sæti sveit Skotdeildar Keflavíkur með 1,554 stig (14x). https://sti.is/2026/01/24/jorunn-sigradi-i-loftskammbyssu/

Sigurlína með Íslandsmet á RIG í dag.
Keppni í loftriffli er nú lokið á Reykjavíkurleikunum í Laugardalshöllinni. Í opnum flokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur, með 232,8 stig eftir harða keppni við Írisi Evu Einarsdóttur úr Skotfélagi Reykjavíkur, með 227,4 stig, sem hlaut silfrið. Í þriðja sæti varð Sigurlína Wium Magnúsdóttir einnig úr Skotfélagi Reykjavíkur, en hún sigraði einnig unglingaflokkinn en Úlfar Sigurbjarnarson úr Skotfélagi Reykjavíkur hlaut silfrið. Í liðakeppninni sigraði A-sveit Skotfélags Reykjavíkur með 1,639 stig (44x), B-sveit Skotfélags Reykjavíkur varð önnur með 1,533 stig (26x) og í þriðja sæti sveit Skotfélags Ísafjarðar með 1,048 stig (23x). Þór Þórhallsson úr Skotíþróttafélagi Kópavogs hlaut svo gullið í flokki fatlaðra. Árangur Sigurlínar í úrslitunum er nýtt Íslandsmet unglinga. https://sti.is/2026/01/25/sigurlina-med-islandsmet-a-rig-i-dag/

Sveit Skotfélags Reykjavíkur vann parakeppnina á RIG í dag
Keppt var í parakeppni með loftskammbyssu á Reykjavíkurleikunum í Laugardalshöllinni í dag. Pörin skjóta 30 skotum hvort og hafa til þess 40 mínútur. Lið Skotfélags Reykjavíkur skipað Jórunni Harðardóttur og Magna Mortensen sigraði með 523 stig. Í öðru sæti varð A-lið Skotíþróttafélags Kópavogs en það skipuðu Adam Ingi H.Franksson og Tatjana Jastsuk, með 519 stig og í þriðja sæti varð B-sveit Kópavogs, Guðni Sigurbjarnarson og Maria Lagou, með 485 stig..Árangur Skotfélags Reykjavíkur er nýtt Íslandsmet í parakeppni (Mixed Team).
https://sti.is/2026/01/25/sigurlina-med-islandsmet-a-rig-i-dag/

Sigurlína með Íslandsmet á RIG í dag Keppni í loftriffli er nú lokið á Reykjavíkurleikunum í Laugardalshöllinni. Í opnum flokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur, með 232,8 stig eftir harða keppni við Írisi Evu Einarsdóttur úr Skotfélagi Reykjavíkur, með 227,4 stig, sem hlaut silfrið. Í þr...

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Engjavegi 6 – Íþróttamiðstöðinni í Laugardal
Reykjavík
104