01/06/2026
Vit-Hit leikarnir fóru fram á Akranesi um helgina og skemmtum við okkur konunglega! Keppendur 11 ára og yngri kepptu 2 mótshluta, og fengu þátttökuverðlaun: medalíu, Vit-Hit poka með handklæði og smá gotteríi ☺️
Keppendur 11 ára og eldri kepptu 3 mótshluta og alls komu 6 gull 🥇 7 silfur 🥈og 5 brons 🥉 í hús hjá okkar sundfólki:
Nói Nikolai - 🥇 í 400m skriðsundi 11-13 ára
Bjarki Ragnar - 🥇 í 50m skriðsundi 14-15 ára
Margrét Brynja - 🥉 í 50m skriðsundi 14-15 ára
Nói Nikolai - 🥈 í 100m flugsundi 11-13 ára
Benjamín - 🥈 í 100m flugsundi 14-15 ára
Nói Nikolai - 🥈 í 200m skriðsundi 11-13 ára
Nói Nikolai - 🥈 í 50m bringusundi 11-13 ára
Bjarki Ragnar - 🥉 í 100m baksundi 14-15 ára
Benjamín - 🥈 í 200m bringusundi 14-15 ára
Nói Nikolai, Margrét Brynja, Elísabet Steinunn og Bjarki Ragnar - 🥉 í 4x50m skriðsund blandað 14-15 ára
Benjamín - 🥉 í 200m fjórsundi 14-15 ára
Nói Nikolai - 🥇 í 100m skriðsundi 11-13 ára
Bjarki Ragnar- 🥇 í 100m skriðsundi 14-15 ára
Benjamín- 🥇 í 50m flugsundi 14-15 ára
Bjarki Ragnar - 🥇 í 50m baksundi 14-15 ára
Mangirdas - 🥉 í 50m baksundi 14-15 ára
Nói Nikolai - 🥈 í 100m bringusundi 11-13 ára
Bjarki Ragnar, Margrét Brynja, Benjamín og Elísabet Steinunn - 🥈 í 4x50m fjórsund blandað 14-15 ára
Takk fyrir okkur Sundfélag Akraness ☺️
30/05/2026
Hægt að fylgjast með Vit-hitleikunum í beinu streymi 🏊♀️
VIT-HIT leikarnir 2026 (hluti 2 - laugardagur)
Bein útsending frá Jaðarsbakkalaug
29/05/2026
Afturelding mætir til leiks með 19 keppendur! Við erum spennt fyrir helginni 💦🏊♀️🏊🏼♂️
11/05/2026
Taastrup open 2026 er nú yfirstaðið og okkar maður Nói Nikolai á heimleið eftir gott mót þar sem hann stóð sig frábærlega! 🤩
10/05/2026
Skólamatarmót ÍRB fór fram um helgina, Afturelding átti þar 11 keppendur alls, s*x kepptu í 14 ára og eldri mótshlutum og fimm í 13 ára og yngri mótshlutum. Stóðu allir sig með prýði og voru miklar bætingar hjá yngri hópnum og ekki var síðri frammistaðan hjá þeim eldri sem náðu góðum bætingum og þónokkrum medalíum.
Bjarki Ragnar Arnarsson vann til gullverðlauna í bæði 100m skriðsundi og 50m baksundi.
Margrét Brynja Steingrímsdóttir vann til gullverðlauna í 50m skriðsundi, silfurverðlauna í 50m baksundi og 50m flugsundi og brons í 200m fjórsundi.
Matthías Pétursson náði AMÍ lágmarki 11 ára og yngri í 100m skriðsundi og vann brons í 50m bringusundi.
Við erum stolt af flottu sundmönnunum okkar!
10/05/2026
Nói Nikolai með brons í 50m skriðsundi 13 ára og yngri í Taastrup 🥉
09/05/2026
Mótsmet 13 ára og yngri hjá Nóa Nikolai!
08/05/2026
Í dag var haldið æfingamót fyrir yngstu iðkendur sunddeildarinnar og heppnaðist það svona glimrandi vel!
08/05/2026
Við sendum þessum flotta hóp góða strauma! 💪🏻🏊🏼💦
Okkar efnilegasta sundfólk í Framtíðarhópi SSÍ er nú komið til Danmerkur til að keppa á hinu árlega Taastrup Open! Hópurinn flaug út í gær og er stemningin í liðinu frábær.
12 sundmenn frá 6 mismunandi félögum taka þátt að þessu sinni undir leiðsögn Bjarney Guðbjörnsdóttur, fararstjóra, en með hópnum fara einnig þeir Daníel Lúkas Tómasson og Hilmar Smári Jónsson sem þjálfarar.
Taastrup Open er eitt af vinsælli sundmótum Danmerkur þar sem yfir 400 keppendur koma saman og því mikilli samkeppni. Þótt Danir séu í meirihluta er mótið alþjóðlegt með þátttakendum frá nokkrum þjóðum. 🌍
Fylgstu með í beinni! 📺
Við hvetjum alla til að senda hópnum góða strauma. Þú getur fylgst með mótinu í beinni útsendingu, en við höfum sett hlekk á beint streymi í Story!
Áfram Ísland! 🏊♀️🇮🇸💪