27/12/2025
Ungmennafélag Selfoss auglýsir eftir framkvæmdastjóra, fyrir félagið. https://alfred.is/starf/framkvaemdastjori-ungmennafelags-selfoss
Framkvæmdastjóri Ungmennafélags Selfoss.
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins, innleiðir stefnu og eftirfylgni með þeim. Framkvæmdastjóri er yfirmaður starfmanna félagsins, skilgreinir hlutverk þeirra og ábyrgð, í samstarfi við framkvæmdastjórn. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á því að starfsemin sé skilvirk og hagkvæm og umgjörð og stuðningur við iðkendur og annarra hagsmunaaðila sé í samræmi við stefnu Ungmennafélags Selfoss.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á allri starfsemi félagsins, rekstri og fjármálum.
Innleiðing stefnu, eftirfylgni með henni og ákvörðunum stjórnar.
Markmiðasetning og eftirfylgni.
Gerð rekstraráætlana og eftirfylgni með þeim.
Stuðlar að upbyggingu jákvæðrar menningar með jafnrétti, ábyrgð og gleði að
leiðarljósi
Annast mannauðsmál, samskipti við stjórnir deild, starfsmenn þeirra og sjálfboðaliða félagsins
Samskipti við sérsambönd og opinbera aðila.
Umsjón stjórnarfunda.
Tryggir skilvirka upplýsingagjöf.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða umfangsmikil reynsla af sambærilegu starfi
Hæfni í samskiptum og leiðtogahæfileikar
Reynsla af stjórnun, rekstri og fjármálum
Frumkvæði, áræðni og jákvætt viðhorf
Reynsla og þekking á íþróttastarfsemi og rekstri innan íþróttahreyfingarinnar er æskileg.
Framkvæmdastjóri Ungmennafélags Selfoss. | Ungmennafélag Selfoss
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins, innleiðir stefnu og eftirfylgni með þeim. Framkvæmdastjóri er yfirmaður starfmanna félagsins, skilgreinir hlutverk þeirra og ábyrgð, í samstarfi við framkvæmdastjórn. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á því að starfsemin...
17/12/2025
Eva María og Eric Máni íþróttafólk Umf.Selfoss
Frjálsíþróttakonan Eva María Baldursdóttir og motocrossmaðurinn Eric Máni Guðmundsson, hafa verið valin íþróttakona og íþróttakarl Umf.Selfoss árið 2025. Verðlaunin voru afhent á verðlaunahátíð Umf.Selfoss sem fram fór í félagsheimilinu Tíbrá fyrr í kvöld.
Eva María er efst á afrekalista Íslenskra kvenna í hástökki á árinu 2025 og í 15.sæti á Evrópulista í flokknum 20-22 ára. Hún er í Afrekshópi unglinga hjá Frjálsíþróttasambandi Íslands. Eva María náði lágmarki og keppti á Evrópumeistaramóti yngri en 23 ára, einnig náði hún að komast inná lokamót NCAA (stærstu háskólakeppni Bandaríkjanna.) Hún er í þriðja sæti yfir bestan árangur kvenna í hástökki, á Íslandi, frá upphafi.
Eric Máni skipar sér í röð þeirra bestu á Íslandi í motocross. Hann varð Íslandsmeistari í MX2 á árinu og keppti fyrir Íslands hönd í Motocoss of Nations, sem er stærsta liðakeppni í heimi í USA. Eric Máni var kjörinn akstursíþróttamaður ársins 2025 hjá MSÍ. Einnig er hann fimmfaldur Íslandsmeistari í motocross.
Níu karlar og sjö konur voru tilnefnd í kjörinu af deildum félagsins og tóku þau við viðurkenningum á verðlaunahátíðinni.
12/10/2025
Formaðurinn okkar, Helgi Sigurður Haraldsson, var í gær kosinn í stjórn. Heiður fyrir Umf. Selfoss og mikill fengur fyrir UMFÍ að njóta krafta Helga.
Helgi kosinn í stjórn UMFÍ
Töluverðar breytingar urðu á stjórn Ungmennafélags Íslands í gær þegar sjö nýir fulltrúar komu inn í ellefu stjórnarsæti. Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, var sjálfkjörinn en hann gaf e…
07/04/2025
Frá 7. apríl til og með 16. apríl geta allir Andelen meðlimir og þeir sem vilja styrkja Ungmennafélag Selfoss fengið 30% afslátt og 5% af þeim kaupum renna til félagsins.
Núna er tíminn til að mála og styðja félagið í leiðinni.
25/03/2025
Flott framtak hjá strákunum í 4. flokki Selfoss í fótbolta sem tóku sig til og söfnuðu peningum til styrktar jafnaldra sínum í HK, Tómasi Frey Guðjónssyni, sem glímir við krabbamein.
Til fyrirmyndar strákar.
Strákar á Selfossi söfnuðu fé fyrir jafnaldra sinn í HK - Vísir
Strákarnir í 4. flokki Selfoss í fótbolta tóku sig til og söfnuðu peningum til styrktar jafnaldra sínum í HK, Tómasi Frey Guðjónssyni, sem glímir við krabbamein.
27/02/2025
Aðalfundur júdódeildar Umf. Selfoss fór fram í gær.
Ný stjórn var kosin á aðalfundi júdódeildarinnar þann 26/2.
Stjórnin er eftirfarandi:
Formaður - Martha Rut Sigurðardóttir
Gjaldkeri - Jóhanna Guðmundsdóttir
Ritari - Margrét Þorsteina Kristinsdóttir
Meðstjórnandi - Halldór Bjarnason
Meðstjórnandi - Daníel Leó Ólason
Varamaður (ekki með á mynd) - Bergur Pálsson
Óskum nýrri stjórn velfarnaðar í starfi.
25/02/2025
Stofnfundur borðtennisdeildar Umf. Selfoss fór fram fimmtudaginn 23. janúar síðastliðinn. Á fundinum var kjörin ný stjórn í samræmi við lög Umf. Selfoss. Á fundinum voru reifuð helstu verkefni nýrrar deildar ásamt almennum umræðum um starf deildarinnar.
Ungmennafélag Selfoss býður borðtennisdeildina hjartanlega velkomna í ungmennafélagsfjölskylduna og við hlökkum til að sjá deildina vaxa og dafna.
Á myndinni er nýkjörin stjórn deildarinnar.
05/02/2025
Ungmennafélag Selfoss vekur athygli á því að þrátt fyrir rauða veðurviðvörun þá fara æfingar hjá félaginu fram (nema þjálfarar tilkynni sérstaklega um annað). Þjálfarar taka á móti iðkendum sem mæta á æfingar.
Félagið hvetur fólk til að virða veðurviðvaranir og að sjálfsögðu bera foreldrar og forráðamenn ábyrgð á því að taka ákvörðun um hvort iðkendur mæta eða ekki. Ef ekki er annað tekið fram þá mæta þjálfarar okkar á æfingar og tryggja öryggi iðkenda sem mæta.
Uppfært í rauða viðvörun
Veðurstofan hefur uppfært veðurviðvaranir fyrir daginn í dag og á morgun. Rauð viðvörun er í gildi á Suðurlandi í dag kl. 16 til 20 og á morgun, fimmtudag frá kl. 8 til 13. Á Suðausturlandi er rauð…
24/12/2024
Ungmennafélag Selfoss óskar Selfyssingum og Sunnlendingum öllum gleðilegra jóla. Við vonum að landsmenn hafi það sem allra best á hátíð ljóss og friðar og njóti samveru með sínum nánustu.
19/12/2024
Verðlaunahátíð Umf. Selfoss fór fram í Tíbrá í kvöld.
Perla og Sigurður íþróttafólk Umf. Selfoss – Gunnar sæmdur gullmerki
Handknattleikskonan Perla Rut Albertsdóttir og júdómaðurinn Sigurður Fannar Hjaltason hafa verið valin íþróttakona og íþróttakarl Umf. Selfoss árið 2024. Verðlaunin voru afhent á verðlaunahátíð Umf…