Golfklúbbur Akureyrar

Golfklúbbur Akureyrar

Share

Golfklúbbur Akureyrar er með aðsetur að Jaðri. Jaðar er glæsilegur 18 holu golfvöllur sem er umvafinn náttúru og landslagi!

07/06/2026

Andrea Ýr í 2. sæti í Þorlákshöfn á GSÍ mótaröðinni og Veigar í 4. sæti.
Andrea lék stöðugt golf um helgina, fyrstu tvo hringina á einu höggi yfir pari og lokahringinn á þremur höggum undir pari. Andrea endaði því á samtals -1 höggi og í 2.sæti. Frábær árangur hjá Andreu.

Veigar lék flott golf um helgina, fyrstu tvo hringina lék hann á 68 höggum eða fjórum höggum undir pari og var því á -8 fyrir lokadaginn. Hann lék síðan á 70 höggum í dag og endaði samtals á -10 höggum í 4. sæti. Veigar er að byrja sumarið gríðarlega vel eftir veturinn í Bandaríkjunum en hann lenti í 3. sæti á sínu fyrsta móti sumarsins og 4. sæti núna.

Staðarreglur 07/06/2026

Nýjar staðarreglur sem tóku gildi 6. júní síðastliðinn.
Í ár eru komnar nýjar reglur varðandi færslur á íslenskum golfvöllum og ber okkur nú að spila hreyfingarlaust golf.
Hægt er að sækja um undanþágu vegna tímabundna aðstæðna sem við höfum gert.
Það má því færa um kylfulengd á brautum 6, 9, 10, 13 og 16 á Jaðarsvelli (vegna frostlyfinga).
Á öðrum brautum sem og flötum eru engar hreyfingar leyfðar.
Gott er að kynna sér staðarreglur á Jaðarsvelli hér :

Staðarreglur                                                              STAÐARREGLUR  -  Local rules in English

GolfBox Tournament - Online Entry 03/06/2026

Vorum að bæta við rástímum í Opnunarmót Jaðarsvallar sem er á laugardaginn.
Bongóblíð - hiti allt að 20 stig og um að gera að skella sér í fyrsta golfmót Jaðarsvallar.

GolfBox Tournament - Online Entry

30/05/2026

Aftur erum við að lenda í því að óprútnir aðilar eru að fara inn á flatirnar okkar og skemma þær.
Við biðlum til félagsmanna okkar, annara golfara og bæjarbúa að stoppa og vísa fólki frá ef þið verðið var við krossara eða önnur vélknúin tæki og hafa samband við okkur.

25/05/2026

Stórkostlegt mót hjá Lilju Maren - við erum gríðarlega stolt af henni og öllum krökkunum okkar sem stóðu sig frábærlega í Þorlákshöfn⛳️

HOLA Í HÖGGI💥

Lilja Maren Jónsdóttir, GA, fór í dag holu í höggi á annarri holu Þorláksvallar. Þar fór fyrsta mót Unglingamótaraðarinnar fram, en Lilja vann mótið eftir frábæra hringi á öðrum og þriðja keppnisdegi. Lilja lék á fimm höggum undir pari í heildina, óskum henni til hamingju með draumahöggið og árangurinn!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akureyri?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Jaðar
Akureyri
600