Sjálfsrækt

Sjálfsrækt

Share

Gefðu þér tíma fyrir Sjálfsrækt.

Í Sjálfsrækt lærirðu að hlúa að þér andlega og líkamlega og vera til staðar fyrir þig. Þú lærir að hlusta á líkamann, heyra hvaða skilaboð hann sendir þér og mæta þér þar sem þú ert á þann hátt sem þjónar þér hverju sinni.

08/06/2026

Á síðustu árum hefur skilningur okkar á hreyfingu og heilsu verið að breytast. Í auknum mæli er horft til þess hvernig hreyfing hefur áhrif á líðan okkar, taugakerfið og tengingu okkar við eigin líkama, fremur en að einblína eingöngu á afköst, kaloríubrennslu eða árangur í líkamsrækt. Sú nálgun kallast á ensku somatic movement eða mindful movement og hér í greininni verður talað um meðvitaða hreyfingu. Hún snýst um að auka líkamsvitund með því að hægja á og skynja það sem við erum að gera í gegnum hreyfingu.

Í hefðbundinni líkamsrækt hingað til hefur fókusinn oftast verið á mælanlegan árangur. Hraða, þyngdir, endurtekningar eða tíma. Í meðvitaðri hreyfingu er áherslan önnur. Hún snýst um að auka tengingu við líkamann á meðan hreyfingin á sér stað. Að finna hvernig hreyfing byrjar og endar. Hvar hún er auðveld og hvar hún er takmörkuð. Hvernig hún breytist þegar athyglin er færð inn í hana. Að vera fyllilega til staðar í því sem maður er að gera.

Í umræðunni um meðvitaða hreyfingu er síðan til hugtakið interoception en það vísar til getunnar til að skynja innra ástand líkamans. Innri skynjun eða líkamsvitund. Að skynja andardráttinn, hjartsláttinn, spennu og slökun í vöðvum, tilfinningar, orku eða þreytu.

Í hröðum lífsstíl verður þessi skynjun okkar stöðugt veikari vegna þess að við erum undir álagi, mikið í höfðinu á okkur, förum úr einu verkefni í annað, erum bundin við skjá og upplifum stöðugt upplýsingaflæði. Hreyfing með athygli, meðvituð hreyfing, getur hjálpað til við að endurvekja þessa tengingu við sig með því að efla getuna til að vera á staðnum í því sem maður er að gera, finna og skynja.

Lestu allan pistilinn hér:
https://www.sjalfsraekt.is/frodleikur/

03/06/2026

,,Meðvituð hreyfing snýst ekki um að gera meira – heldur að finna meira. Hún býður okkur að færa athyglina frá afköstum, kaloríubrennslu og mælanlegum árangri yfir í upplifun líkamans á meðan við hreyfum okkur. Með því að hægja á, anda og skynja betur eflum við líkamsvitund og tengingu við okkur sjálf."

Tengill á grein í athugasemdum

02/06/2026

Gefðu þér rými til að hægja á og hvíla 💚

01/06/2026

Svona lítur taflan okkar út í júní☀️

Sjálfsrækt er síðan í sumarfríi 1.júlí til 3.ágúst☀️

27/05/2026

Síðan ég byrjaði hjá Sjálfsrækt hefur heilsan mín tekið framförum. Taugakerfið orðið mikið rólegra, verkir minni og kennararnir eru svo yndislegir að ég hlakka alltaf til að mæta i tíma.

Umhverfið tekur utan um mann og Hrafnhildur og Guðrún hugsa vel um alla og passa að öllum líði vel hjá þeim.

Ég mæli algjörlega með Sjálfsrækt. Yndislegir kennarar og umhverfið róandi.

21/05/2026

Það eru ákveðnir tímar í lífinu þar sem við pönkumst áfram einfaldlega vegna þess að við þurfum að gera það. Við mætum í vinnu, sinnum fjölskyldunni, klárum verkefnin og höldum utan um allt það sem þarf að halda utan um. Erum dugleg og klárum það sem við höldum að þurfi að klára. Og oft gerum við það vel. Svo vel að fólkið í kringum okkur tekur kannski ekki einu sinni eftir því að við séum undir miklu álagi. Svo vel að við föttum það jafnvel ekki sjálf að við séum að ganga of nærri okkur.

En líkaminn tekur eftir því.

Við hugsum oft um líkamann og hugann eins og tvo aðskilda hluti. Eins og upplifunin búi fyrst og fremst í hugsununum okkar á meðan líkaminn fylgi bara með. En staðreyndin er sú að líkaminn er hluti af öllu sem við göngum í gegnum. Hann skynjar og bregst við þegar við erum undir pressu, föst í viðbragðsstöðu eða þegar við höfum ýtt eigin þörfum til hliðar of lengi.

Það er svo sannarlega mikilvægt að búa yfir seiglu og þrautseigju, en ef við þekkjum ekki nógu vel eigin mörk og þarfir er hætta á að við göngum of langt.

Kannski er það þess vegna að svo margir veikjast um leið og þeir fara loksins í frí. Þegar verkefnunum fækkar og það hægist á, þá láta hausverkurinn, flensan eða þreytan oft á sér kræla, sem hafði annars verið haldið niðri á meðan við þurftum að halda okkar striki. Líkt og líkaminn hafi beðið eftir rétta augnablikinu til að gefa eftir.

Líkaminn bregst oft við langt á undan huganum.

Lestu allan pistilinn hér: https://www.sjalfsraekt.is/frodleikur/

20/05/2026

„Þegar verkefnunum fækkar og það hægist á, þá láta hausverkurinn, flensan eða þreytan oft á sér kræla, sem hafði annars verið haldið niðri á meðan við þurftum að halda okkar striki. “ segir Hrafnhildur meðal annars í nýjum heilsupistli.

Linkur að grein í fyrstu athugasemd

„Það eru ákveðnir tímar í lífinu þar sem við pönkumst áfram einfaldlega vegna þess að við þurfum að gera það.“ Þannig hefst nýr heilsupistill Hrafnhildar Reykjalín Vigfúsdóttur.

Hlakkur á pistil í fyrstu ummælum.

19/05/2026

10 skipta kortið hjá okkur er fullkomið fyrir þau sem vilja sveigjanleika 💚

Með kortinu geturðu nýtt þér alla opna tíma hjá okkur; slökun, bandvefslosun og nærandi hreyfingu eftir því hvað líkami og taugakerfi kalla á hverju sinni 🌿

08/05/2026

Við leitum að einstaklingi í karma teymi sem hefur áhuga á að aðstoða með létt þrif og umhirðu rýmisins okkar í hlýju og notalegu umhverfi.

Í skiptum býðst aðgangur að tímum hjá okkur og tækifæri til að vera hluti af fallegu samfélagi sem leggur áherslu á vellíðan, nærveru og sjálfsrækt.

Ef þetta kallar á þig máttu senda okkur skilaboð 💌

Photos from Sjálfsrækt's post 07/05/2026

Það er alltaf góð hugmynd að mæta í Sjálfsrækt! Síðustu námskeið fyrir sumarfrí eru komin í sölu ✨

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akureyri?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Brekkugata 3
Akureyri
600