Tennishöllin

Tennishöllin

Share

Í Tennishöllinni er hægt að spila tennis, padel og pickleball🎾 Hægt er að bóka tíma á tennishollin.is

Photos from Tennissamband Íslands - TSÍ's post 31/05/2026

Til hamingju Emilia 🏆

Tennis og padel leikjaskóli | Tennishöllin Kópavogi 24/05/2026

Nú fer að styttast í sumarið og skráning í sumarnámskeiðin okkar er hafin.

Við verðum að sjálfsögðu með vinsælu tennisnámskeiðin okkar en í ár bætast einnig við padelnámskeið fyrir 9-13 ára.

Markmið námskeiðanna er að kenna grunnatriði tennis og padel á skemmtilegan hátt í bland við bolta- og hlaupaleiki. Lögð er áhersla á hreyfiþroska barnanna og uppeldislega hollt umhverfi.

Öll skráning fer fram á Abler.

Tennis- og leikjaskólinn (5-13 ára):
https://tfk.is/tennisskolinn-i-sumar/

Padelskólinn (9-13 ára) :
https://tfk.is/padelskolinn-fyrir-9-13-ara-i-sumar/

Endilega hafið samband efþið eruð með spurningar eða hringið í okkur í síma 564 4030.

Tennis og padel leikjaskóli | Tennishöllin Kópavogi Tennis og padel sumarnámskeið fyrir krakka Í sumar bjóðum við upp á skemmtileg tennis og padelnámskeið fyrir krakka á aldrinum 5-13 ára. Tennis og leikjaskólinn hefur verið vinsæll hjá okkur í gegnum tíðina og í ár bætist einnig við padelskóli fyrir 9-13 ára. Tennis- og leikj...

Photos from Tennishöllin's post 18/05/2026

Síðasti séns á morgun til að skrá sig í tennis og padel fjölskylduferðina okkar til Albir 3. júní! ☀️🎾

Ferðin hentar bæði fjölskyldum sem spila tennis eða padel og byrjendum sem langar að prófa. Frábær aðstaða, gott veður, mikil stemning og allt á mjög góðu verði. Enn eru nokkur laus pláss í boði.

Innifalið í ferðinni:
• Flug með check in farangri
• Rútuferð til og frá Alicante flugvelli
• 4 stjörnu hótel með morgunmat á Albir Playa Hotel & Spa
• Tennis eða padel prógramm með þjálfurum frá Spáni
• Vatn, orkustykki og hádegisverður í IQL þrisvar sinnum

Verð:
Börn og unglingar: 230.000 kr.
Forráðamenn í tennis/padel prógrammi: 290.000 kr.
Forráðamenn án prógrams: 200.000 kr.

Frekari upplýsingar:
https://tennishollin.is/tennisferdir/

Endilega hafið samband fyrir skráningu eða nánari upplýsingar. [email protected].

07/05/2026

Fegurð

28/04/2026

Leikmaður vikunnar: Eiríkur Einarsson 🎾

27/04/2026

Núna á fimmtudaginn verður Reisugill haldið í Padelhöllinni og við munum bjóða upp á flottar veitingar og drykki. Formleg opnun verður síðar en þetta verður skemmtilegur dagur og við hlökkum til að sjá sem flesta!

Athugið að daginn eftir er 1. maí, frídagur.

Photos from Tennishöllin's post 22/04/2026

Tennis og padel ferð í sumar!

3.-10. júní förum við til Albir og spilum í IQL tennis- og padelklúbbnum. Þar eru 10 tennisvellir (hard court og leirvellir) og 5 padelvellir ásamt góðri aðstöðu með líkamsrækt og veitingasvæði.

Ferðin er fyrir bæði börn og fullorðna og því tilvalin fjölskylduferð. Fyrir afrekskrakka verður í boði keppnisprógram.

Fararstjórar eru Jónas Páll Björnsson, Egill Sigurðsson og Sofia Sóley Jónasdóttir. Þau sjá um æfingaplanið, halda utan um hópinn og aðstoða með skipulag á veitingastöðum og annarri afþreyingu.

Albir er staður sem við þekkjum vel og IQL klúbburinn er samstarfsklúbbur Tennishallarinnar.

Nánari upplýsingar og verð má finna á vefsíðunni okkar:
https://tennishollin.is/tennisferdir/

Einnig er hægt að senda tölvupóst á [email protected] ef þú vilt skrá þig eða fá frekari upplýsingar.

Myndbönd frá fyrri ferðum má sjá hér:
https://www.instagram.com/s/aGlnaGxpZ2h0OjE4MjI0MTA3OTg3MDgwODQ0

10/04/2026

Hefur þú prófað pickleball?

Pickleball er vinsæl íþrótt sem hefur náð miklum vinsældum í Bandaríkjunum og hentar fólki á öllum aldri og getustigum. Hún er auðveld að læra en samt krefjandi og skemmtileg.

Hjá okkur í höllinni sér Aleksandra Babik um pickleball-tímana af miklum áhuga, en hún fór einmitt til Bandaríkjanna til að kynnast íþróttinni betur og læra meira.

Pickleball er í boði alla föstudaga kl. 19:30-21:30 og það verða líka pop-up tímar sunnudagana 12. apríl og 10. maí.

Endilega komið og prófið hjá okkur!

08/04/2026
Photos from Tennishöllin's post 04/04/2026

Evrópumóti U14 lokið 🌍

Það var nóg um að vera hjá okkur í vikunni þegar árlegt páska Evrópumót fyrir krakka 14 ára og yngri fór fram í samstarfi við TSÍ og Tennis Europe. Spilarar alls staðar að úr Evrópu komu til landsins og flestum var brugðið þegar snjórinn tók á móti þeim. Það var góð stemning í húsinu alla vikuna.

Vinningshafar fengu íslensk páskaegg í verðlaun og íslensku krakkarnir okkar fengu góða reynslu af því að keppa á svona móti. Riya náði frábærum árangri og lenti í 2 sæti í kvennaflokki.

Boðið var upp á hollan og góðan mat fyrir keppendur og við vorum í fyrsta sinn að prófa að hafa veitingastaðinn Hjartað opinn á kvöldin og ætlum að halda því áfram reglulega. Fylgist með á stories hjá okkur fyrir næstu opnanir. Það er fátt betra en að spila tennis eða padel og enda svo á góðum mat á góðu verði.💚

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Kópavogur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Dalsmári 13
Kópavogur
201

Opening Hours

Monday 06:00 - 23:30
Tuesday 06:00 - 23:30
Wednesday 06:00 - 23:30
Thursday 06:00 - 23:30
Friday 06:00 - 23:30
Saturday 06:00 - 23:30
Sunday 06:00 - 23:30