05/06/2026
Landsliðshópar yngri landsliða voru kynnt opinberlega í dag og þar eigum við alls 10 fulltrúa sem við erum óendanlega stolt af. VIð óskum ykkur innilega til hamingju með landsliðssætið og góðs gengis í verkefnum sumarsins 🏀💙
19/05/2026
🏀🔥 ÚRSLIT - LEIKUR 1 🔥🏀
í Blue-höllinni hjá 10. flokk stúlkna! 💥
📍 fimmtudaginn 21. maí
💙 10. flokkur stúlkna
Keflavík 🆚 Stjarnan
🕔 Kl. 17:00
11/05/2026
Um helgina héldum við hjá barna,- og unglingaráði kkd Keflavíkur þriðja fjölliðamótið á tímabilinu. Það hefur alltaf verið metnaður hjá okkur að bjóða okkar iðkendum upp á sem flest mót á heimavelli, þar sem þau fá tækifæri til að keppa í sínu eigin umhverfi.
Okkur langar að þakka öllum sem aðstoðuðu og sinntu sjálfboðaliðastörfum á fjölliðamótum sem Keflavík hefur haldið í vetur.
Það skiptir félagið gríðarlega miklu máli að geta reitt sig á öflugt fólk sem er tilbúið að leggja sitt af mörkum þegar þarf. Hvort sem það er að aðstoða við dómgæslu, undirbúning, frágang, sjoppu, önnur verkefni, þá skiptir öll hjálp máli og gerir okkur kleift að halda glæsileg mót fyrir iðkenndur okkar og gesti mótana.
Það er ekki sjálfgefið að fólk gefi af tíma sínum og því er öll hjálp ómetanleg. Takk kærlega fyrir hjálpina í vetur.
09/05/2026
🏀🔥 UNDANÚRSLIT YNGRIFLOKKA 🔥🏀
Risa leikur í dag í Blue-höllinni hjá 10. flokk stúlkna! 💥
📍 Laugardaginn 9. maí
🟡 10. flokkur stúlkna
Keflavík 🆚 Haukar
🕔 Kl. 17:00
07/05/2026
🏀🔥 UNDANÚRSLIT YNGRIFLOKKA 🔥🏀
Risa leikir í dag í Blue-höllinni hjá okkar liðum! 💥
📍 Fimmtudagurinn 7. maí
🟡 10. flokkur drengja
Keflavík 🆚 Valur
🕔 Kl. 17:00
🔵 Ungmennaflokkur drengja
Keflavík 🆚 Haukar
🕖 Kl. 19:15
Aðgangseyrir 1.000 kr. fyrir 16 ára og eldri
Styðjum strákana í baráttunni um sæti í úrslitum! 🙌🔥
03/05/2026
Spennandi úrslitakeppni framundan hjá yngriflokkum Keflavíkur
Úrslitakeppni yngriflokka í körfubolta hefst á næstu dögum og nóg verður um að vera í Blue-höllinni. Nokkrir mikilvægir leikir eru framundan þar sem lið Keflavíkur berjast um sæti í úrslitum.
Fimmtudaginn 7. maí kl. 17:00
10. flokkur drengja
Keflavík - Valur
Fimmtudaginn 7. maí kl. 19:15
Ungmennaflokkur
Keflavík - Haukar
Laugardaginn 9. maí kl. 17:00
10. flokkur stúlkna
Keflavík - Valur
Allir leikirnir fara fram í Blue-höllinni og eru stuðningsmenn hvattir til að mæta og styðja við bakið á ungu leikmönnunum í þessum mikilvægu leikjum. Það er ljóst að spennandi dagar eru framundan hjá Keflavík.
Aðgangseyrir er 1000 kr fyrir 16 ára og eldri.
Áfram Keflavík!
29/04/2026
🏀 KÖRFUBOLTAFJÖR! 🏀
Komdu og taktu þátt í skemmtilegum þrautum og leikjum í sannkölluðu körfuboltafjöri! 🎉
📍 Íþróttahúsið Sunnubraut
📅 1. maí
🕑 10 ára og yngri: kl. 14:00–16:00
🕓 11 ára og eldri: kl. 16:00–18:00
Við hlökkum til að sjá sem flesta! 😄
26/04/2026
10. flokkur stúlkna á toppi deildarinnar eftir glæsilegt tímabil
Stelpurnar tryggðu sér efsta sætið í deildinni með sannfærandi sigri á Val í lokaleik deildarkeppninnar. Með sigrinum fullkomnuðu stelpurnar ótrúlegt tímabil þar sem þær unnu alla sína leiki – alls 18 sigra og ekkert tap.
Frammistaðan í deildinni lofar góðu fyrir framhaldið.
Nú tekur við úrslitakeppni sem hefst í byrjun maí.
Ljóst er að liðið fer inn í úrslitakeppnina með fullt sjálfstraust eftir frammistöðuna á tímabilinu, en jafnframt vita leikmenn og þjálfarar að allt getur gerst þegar kemur að úrslitakeppninni. Það má eiga von á hörku leikjum og mikilli spennu á næstu vikum.
Til hamingju stelpur! Áfram Keflavík!
22/04/2026
Sumaræfingar og leikjaskóli
körfuknattleiksdeildarinnar verða í sumar fyrir 1. - 10. bekk.
Leikjaskólinn er í boði fyrir 1.-4. bekk. Þar er byrjað á körfuboltaæfingu milli kl. 13:00-14:15, eftir æfingu tekur svo ýmislegt skemmtilegt við til kl. 16:00. Þeir sem vilja einungis mæta á æfingunar (ekki leikjskóla) geta valið það.
Æfingarnar verða fjölbreyttar og skemmtilegar, þar sem leikgleðin er í fyrirrúmi ásamt góðri þjálfun frá reyndum þjálfurum þeim Kolbeini Skagfjörð og Elvari Snæ.
Skráning er nú þegar hafin og eru áhugasamir hvattir til að tryggja sér pláss sem fyrst.
Nánari upplýsingar um tímasetningar er að finna hér að neðan og skráningar fara fram á abler.
https://www.abler.io/shop/keflavik/korfubolti?returnTo=%2F%3Fcountry%3DIS
Vinsamlegast sendið póst á þjálfarana ef þið hafið einhverjar spurningar varðandi sumaræfingarnar.
[email protected], [email protected]
Leikjaskóli 1.-4. bekkur
körfubolti, leikir, útivera og fjör
mánudaga - fimmtudaga 13:00-16:00
Vika 1, 15.-18. júní (frí 17.júní) vikan 6000
Vika 2, 22.-25. júní vikan 8000
Vika 3, 29. júní – 2.júlí vikan 8000
Vika 4, 4.-6. ágúst vikan 6000
Vika 5, 10.-13. ágúst vikan 8000
Vika 6, 17.-20.ágúst vikan 8000
Körfuboltaæfingar 1.- 4. bekkur (2016-2019)
1.-2. bekkur æfir 13:00-14:10
3.-4. bekkur æfir 14:30-15:40
Vika 1, 15.-18. júní (frí 17.júní) vikan 3000
Vika 2, 22.-25. Júní vikan 4000
Vika 3, 29. júní – 2.júlí vikan 4000
Vika 4, 6.-9.júlí vikan 4000
Vika 5, 13.-16.júlí vikan 4000
Vika 6, 20.-23. júlí vikan 4000
Vika 4, 4.-6. ágúst vikan 3000
Vika 5, 10.-13. ágúst vikan 4000
Vika 6, 17.-20.ágúst vikan 4000
Körfuboltaæfingar 5.-7. bekkur (2013-2015)
Æfingar 10:30-12:00
Vika 1, 15.-18. júní (frí 17.júní) vikan 4.000 kr.
Vika 2, 22.-25. júní vikan 5.000 kr.
Vika 3, 29. júní – 2. júlí vikan 5.000 kr.
Vika 4, 6.-9.júlí vikan 5.000 kr.
Vika 5, 13.-16.júlí vikan 5.000 kr.
Vika 6, 20.-23. júlí vikan 5.000 kr.
Vika 4, 4.-6. ágúst vikan 4.000 kr.
Vika 5, 10.-13. ágúst vikan 5.000 kr.
Vika 6, 17.-20.ágúst vikan 5.000 kr.
Körfuboltaæfingar 8.-10.bekkur
Æfingar 16:30-18:00
Vika 1, 15.-18. júní (frí 17.júní) vikan 4.000 kr.
Vika 2, 22.-25. júní vikan 5.000 kr.
Vika 3, 29. júní – 2.júlí vikan 5.000 kr.
Vika 4, 6.-9. júlí vikan 5.000 kr.
Vika 5, 13.-16.júlí vikan 5.000 kr.
Vika 6, 20.-23. júlí vikan 5.000 kr.
Vika 4, 4.-6. ágúst vikan 4.000 kr.
Vika 5, 10.-13. ágúst vikan 5.000 kr.
Vika 6, 17.-20.ágúst vikan 5.000 kr.
06/04/2026
Keflavík með glæsilegan árangur á Scania Cup 2026
Keflavíkurliðin stóðu sig afar vel á Scania Cup 2026, þar sem bæði 10. flokkur drengja og stúlkna létu að sér kveða á mótinu. Drengirnir sigruðu mótið með glæsibrag, á meðan stúlkurnar börðust hetjulega og enduðu í fjórða sæti.
Strákarnir sigruðu sinn riðil og tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum þar sem þeir mættu Norrköpings Dolphins. Þar höfðu Keflvíkingar betur í hörkuleik, 78–73. Í undanúrslitum mættu þeir Östersund, en Keflavík hélt áfram á sigurbraut og vann sannfærandi 82–73 sigur sem tryggði þeim sæti í úrslitaleiknum.
Úrslitaleikurinn gegn Kungsholmen Basket var jafn og spennandi frá upphafi til enda. Bæði lið sýndu góða takta, en á lokakaflanum tóku Keflvíkingar öll völd á vellinum og sigldu fram úr með sterkri frammistöðu. Lokatölur urðu 68–59 og þar með var titillinn tryggður hjá þeim í annað skipti.
Bartosz Porzezinski var valin besti leikmaður úrslitaleiksins. Davíð Breki Antonsson og Arnar Freyr Elvarsson voru valdir í úrvalslið mótsins, en Davíð var auk þess valinn besti leikmaður mótsins.
Stelpurnar byrjuðu mótið af krafti. Liðið vann sinn riðil og fór örugglega áfram í átta liða úrslit þar sem Skjetten var lagt að velli með sannfærandi 60–33 sigri.
Í undanúrslitum mættu Keflavíkurstúlkur sterku liði Norrköping Dolphins og máttu sætta sig við tap eftir erfiðan og jafnan leik.
Í leiknum um bronsið mættu þær Duvbo, en þar náði Duvbo yfirhöndinni og vann 64–46 sigur.
Stelpurnar enduðu því í fjórða sæti mótsins.
Þrátt fyrir að hafa rétt misst af verðlaunum geta stelpurnar verið afar stoltar af frammistöðu sinni. Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir var valin í úrvalslið mótsins.
Árangur Keflavíkur á mótinu var til fyrirmyndar, bæði innan vallar sem utan.
Til hamingju allir leikmenn og þjálfarar með glæsilega frammistöðu.