Knattspyrnufélagið Hafnir

Knattspyrnufélagið Hafnir

Share

Knattspyrnufélagið Hafnir. Litla félagið í Reykjanesbæ. Einblínum á Kærleik og Léttleika 🤍⚓️🤍

Photos from Knattspyrnufélagið Hafnir's post 16/02/2026

Örfáar myndir frá 11-0 sigri í fyrsta leik Lengjubikarsins. Frábær frammistaða og mikil gleði í skítakulda á Seltjarnarnesi.

Næsti leikur er á laugardaginn í Reykjaneshöllinni!

Áfram Hafnir! ⚓️⚫️⚪️

15/02/2026
15/02/2026

Leikdagur! 🥳

Lengjubikarinn hefst kl 17:30 á eftir ⚽️

Áfram Hafnir! ⚓️⚫️⚪️

01/10/2025

Aðalfundur knattspyrnufélagsins Hafna verður haldinn þann 8. október klukkan 20:00 í fundarsal 2 í Blue höllinni - Félagsheimili Keflavíkur.

Allir stuðningsmenn og félagsmenn velkomnir

Kærleikur Koma 🖤⚓️🤍

Photos from Knattspyrnufélagið Hafnir's post 21/09/2025

Tímabilinu lokið ⚓️

Lokahóf Hafna var haldið seinustu helgi þar sem Keli var veislustjóri og veitti verðlaunin í ár. 🏅

Verðlaun fyrir tímabilið 2025 ⚓️

- Leikmaður ársins: Ísak John Hill Ævarsson
- Mikilvægasti leikmaður ársins: Ástþór Andri Valtýsson
- Besti Félaginn: Reynir Aðalbjörn Ágústsson
- Hafnamaður ársins: Pálmi Viðar Pétursson
- KristóBikarinn: Sigurður Ingi Bergsson

Markmið tímabilsins var að halda sér í 4. deildinni eftir að hafa náð að komast upp úr 5. deild í fyrra. Markmiðinu var náð með áttunda sætinu en við rétt náðum að halda okkur uppi á markatölu. Frammistaðan var ekki upp á marga fiska í ár og það var augljóst að liðið g*t miklu betur og átti miklu meira inni. En þrátt fyrir dapurt gengi í mörgum leikjum héldu menn trú og náðu að tryggja sér sæti í deildinni á næsta ári.

Þetta tímabil var mikil reynsla fyrir félagið sem mun nýtast okkur vel í framtíðinni og ætlum við okkur stærri hluti á næstu tímabilum! Félagið aðeins starfandi í fjögur ár og yngsta félagið í deildinni. Markmiðið er að halda áfram þessari þróun og byggja ofan á þetta tímabil og gera mun betur á næsta ári.

Samstarfið við Kelfavík var virkt í sumar þar sem fimm lánsleikmenn komu úr 2. flokk Keflavíkur sem skiluðu mikilvægum stigum í sumar. Markmiðið er að þróa enn frekar þetta samstarf og bjóða upp á fleiri tækifæri fyrir unga leikmenn að sanna sig með Höfnum.

Nú er farið fullt af stað með að mynda nýja stjórn og má búast við miklum breytingum hjá félaginu fyrir næsta tímabil!

Kærleikur Koma! 🖤⚓️🤍

29/07/2025

Árborg - Hafnir
⏱️ Þriðjudagur 29.07 - 19:15 - JÁVERK-völlurinn

Risa leikur í kvöld gegn Árborg á Selfossi klukkan 19:15!

Kærleikur Koma! 🖤⚓️🤍

18/07/2025

Hafnir - Elliði
⏱️ Nettóhöllin - laugardagur 19.7 - 14:00

Mikilvægur leikur á morgun gegn Elliða í Nettóhöllinni klukkan 14:00!

Kærleikur Koma! 🖤⚓️🤍

Photos from Knattspyrnufélagið Hafnir's post 18/07/2025

Álftanes 1-4 Hafnir

Þrjú dýrmæt stig sótt á Álftanesi í seinustu viku og Hafnamenn svo sannarlega vaknaðir til lífsins og komnir á siglingu! Bessi skoraði jöfnunarmarkið í fyrri hálfleik og svo stuttu seinna skoraði Anton Freyr mark úr aukaspyrnu og kom Höfnum yfir. Ísak John Hill skoraði svo tvö lagleg mörk og gulltryggði öll þrjú stigin.

Mikilvægir leikir framundan og þurfum við á öllum stuðning að halda í næstu leikjum!

Kærleikur Koma! 🖤⚓️🤍

Photos from Knattspyrnufélagið Hafnir's post 13/07/2025

Hamar 1-2 Hafnir

Annar sigur í hús á erfiðum heimavelli! Hafnamenn fóru til Hveragerðis á föstudeginum í seinustu viku og sóttu öll þrjú stiginn í algjörum iðnarasigri. Anton Freyr Hauks jafnaði leikinn í seinni hálfleik með skalla úr horni. Sigurmarkið kom eftir frábæra fyrirgjöf hjá Ísaki John Hill sem endaði með sjálfsmarki en snerti hárið á Kristófer Orra. Risa þrjú stig og hafnamenn loksins komnir á siglingun!

Kærleikur Koma! 🖤⚓️🤍

08/07/2025

Álftanes - Hafnir
⏱️ HTH Völlurinn - Miðvikudagurinn 9. júlí - 19:15

Risa leikur á morgun gegn Álftanesi á HTH vellinum klukkan 19:15! Mætum á völlinn og styðjum okkar lið!

Kærleikur Koma! 🖤⚓️🤍

Photos from Knattspyrnufélagið Hafnir's post 06/07/2025

Hafnir 6-3 KFS

Langþráður sigur og mikilvæg 3 stig seinasta laugardag gegn KFS! Hafnamenn rífa sig loksins í gang og skorar Ísak John Hill þrennu í leiknum. Anton Freyr Hauks setur í eitt í fyrri hálfleik en KFS jafnar leikinn í 3-3 í seinni hálfleik. Bessi kemur okkur aftur yfir í leiknum með laglegu marki og svo skorar ísak þriðja markið sitt eftir frábært hlaup. Bergsveinn Andri skorar svo 6 markið í leiknum og öll þrjú stigin hafnamanna!

Byggjum ofan á þetta og upp með akkerið!

Kærleikur Koma! 🖤⚓️🤍

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Keflavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Website

Address


Keflavík