Kæru sundsnillingar og foreldrar.
Takk kærlega fyrir yndislega samveru í vetur hjá Sundskóla Tobbu. Það hefur verið ótrúlega gaman að fylgjast með framförum, hugrekki og gleði barnanna í lauginni. Hver tími hefur verið fullur af hlátri, lærdómi og skemmtilegum stundum sem ég mun muna með hlýju.
Við erum afar stoltar af öllum krökkunum fyrir dugnaðinn, framfarirnar og það hvað þau hafa orðið öruggari í vatninu með hverri vikunni sem leið. Einnig viljum við þakka foreldrum kærlega fyrir traustið, stuðninginn og gott samstarf yfir veturinn.
Við vonum að þið eigið öll dásamlegt sumar fullt af gleði, leik og góðum sundstundum — og hlökkum til að sjá sem flest aftur síðar. Við óskum verðandi fyrstu bekkingum velfarnaðar í skólasundi og að þau haldi áfram að bæta færnina sína:)
Haustnámskeiðið kemur inn á Abler í byrjun ágúst og verður kennt á sama tíma.
Með kærri þökk og hlýjum kveðjum,
Tobba og Aþena 💙🏊♀️
Sundskóli Tobbu
Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Sundskóli Tobbu, Sport & recreation, Lágafellslaug, Mosfellsbær.
Ég er íþrótta og heilsufræðingur og hef verið að kenna barnasund síðan 2009. Ég kenni í Lágafellslaug í mosfellsbæ og er með aldurinn 3-6 ára, og kenni í tveimur hópum, þ.e 3-4 ára saman og 5-6 ára. Námskeiðið er í 8 vikur í senn og kennt einu sinni í viku á fimmtudögum, hver tími er 30 mínútur. Þau læra grunnfærnina í sundtökunum þ.e bringu og skriðsundi, legu, köfun ég nota líka allskonar skemmtilega sundleiki í kennslunni.
Það er komið að síðasta tímanum á önninni. Börnin mega koma með dót með sér í tímann, og við ætlum að taka stöðumat á börnunum sem eru að fara að byrja í fyrsta bekk í haust.
Sundkveðja Tobba og Aþena🥰
Í dag gæti verið örtröð í sund vegna veðurs💥. Foreldrar í eldri hóp þurfa að fylgja krökkunum til okkar og staldra við þangað til við erum búin að telja þau sem eru mætt! Þetta er til að gæta öryggis þeirra þar sem rennibrautin getur heillað á svona góðum degi :) Við eigum 2 tíma eftir á námskeiðinu með deginum í dag og hlökkum til að sjá krakkana 🥰 þið megið endilega merkja við inn á Abler ef það eru einhver forföll.
Sundkveðja Tobba og Aþena
Í dag er fimmti tíminn okkar á þessu átta vikna námskeiði! Ég minni á að kennslunni hjá yngri hópnum lýkur klukkan 17.00 og því þarf eldri hópurinn að gefa okkur tíma til að klára tímann og kveðja börnin. Þau mega að sjálfssögðu vera tilbúin við bakkann :) Ég hef verið að fá margar fyrirspurnir með það hvort að ég sé með sumarnámskeið en ég býð ekki upp á slíkt, en hvet ykkur til að hafa samband við Sunddeild Aftureldingar.
Allir sem eru að byrja í fyrsta bekk í haust fara í gegnum 1. sundstigið
-Flot á bringu og baki með eða án hjálpartækja.
-Staðið í botni og andað að sér, andlitið fært í kaf og andað frá sér. -Þau ganga með andlit í kafi 2.5 m eða lengra.
-Bringusundsfótatök við bakka með eða án hjálpartækja.
Hlökkum til að sjá krakkana í dag❤
Gleðilegt sumar💛
Vonandi njótið þið dagsins og sjáumst í næstu viku 💥
Vonandi höfðu allir það gott um páskana 🥰 Hlökkum til að sjá ykkur á eftir.
Sundkveðja Tobba og Aþena.
Sæl, ég sendi skilaboð á Abler sem ég hvet ykkur til að kíkja á :) Veðrið er að skána en margar götur ennþá ófærar. Kveðja Tobba
Það virðist vera einhver ártalavilla á Abler fyrir 3-4 ára hópinn. Ég er búin að fá nokkrar fyrirspurnir og ég get sjálf skráð inn🥰 Ég á núna 3 laus pláss.
Í dag er síðasti tíminn á núverandi námskeiði. Börnin mega koma með dót í tímann og fá leiktíma í lokin. Það er orðið fullt í eldri hópinn á námskeiðið sem byrjar 19. mars, en við eigum nokkur laus pláss í yngri hópinn🥰 Sundkveðja Tobba og Aþena
Ég hef heyrt af því að foreldrar geti ekki skráð 2021 börn í yngri hópinn þ.e 3-4 ára, þetta er stillingaatriði og ég get sjálf gert það:) Sendið mér skilaboð hérna eða á Abler. Annars gengur skráningin vel á þetta síðasta námskeið á þessari önn.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Lágafellslaug
Mosfellsbær
270
Opening Hours
| 16:55 - 17:55 |