31/01/2026
Vorum að ljúka vel heppnaðri ferð til Kólumbíu. Það eru ekki allir sem vita hversu stórkostlegt land þetta er. Fólkið er sérstaklega vingjarnlegt og náttúran einstök. Við byrjuðum á að skoða höfuðborgina Bogota. Gengum svo um kaffiekrur í hlíðum eldfjalla. Enduðum svo ferðina í hinni einstöku Cartagena við Karíbahaf.
15/01/2026
Við eigum nokkur pláss laus í einstaka ferð til Japan sem er pökkuð af ævintýrum. Við göngum á Mt. Fuji, skoðum Tókýó, Hakone, Kyoto, Hiroshima og margt fleira. Upplifðu einstaka náttúru, andstæður í menningu og aldagamlar hefðir Japans á göngu og á hjóli. Ferðin hefst 12. maí. Þessi brottför er fyrir vant göngufólk þar sem gengið verður í snjó á Mt. Fuji (10 tíma ganga). Verð kr. 690 þúsund. án flugs.
https://fjallafelagid.is/product/japan-gongur-hjol-menning-12-05-2026/
07/08/2025
Eftir mikla vinnu í sumar kynnum við nýjar leiðir í Fálkakletti. Ef þú hefur komið áður og vilt meira, þá er þetta eitthvað fyrir þig.
06/08/2025
Inkastígurinn
Fjallafélagið er með vikulegar æfingar allt árið um kring. Við sérhæfum okkur í ferðum á hæstu og erfiðustu tinda landsins ásamt æfingum á lægri og auðveldari fjöll.
16/07/2025
Við endurtökum magnaða ferð til Kólumbíu sem er ein af földu perlum Suður-Ameríku. Fjölbreytileiki er það sem einkennir menningu og náttúru þessa einstaka lands. Ferðin byrjar 19. janúar og er tilvalið að stytta veturinn og upplifa stórbrotið ævintýri. Í þessari ferð förum við um fáfarnar gönguleiðir þar sem nánast engir ferðamenn eru. Við fáum mörg tækifæri til að hitta heimamenn á heimilum þeirra. Einnig skoðum við borgirnar Bogota, Salento og Cartagena. Allar upplýsingar eru á heimasíðu okkar:
https://fjallafelagid.is/product/kolumbia-eldfjoll-kaffi-og-karibahaf-19-januar-2026/
07/05/2025
Við vorum að ljúka fyrstu ferðinni okkar í ár á Inkastíginn til Macchu Picchu í Perú. Ferðin heppnaðist frábærlega og er það ekki síst að þakka okkar einstöku staðarleiðsögumönnum Edy og Kaya. Þau leiða hópinn í magnað ævintýri um sögu og menningu þessa framandi lands. Þetta er ein af okkar allra vinsælustu ferðum enda upplifun sem er engu lík. Ferðir 2026 eru þegar komnar í sölu og hægt að bóka á heimasíðunni okkar www.fjallafelagid.is
28/04/2025
Í dag leggjum við í ævintýraferð á Inkastíginn til Macchu Picchu. Það eru spennandi dagar framundan. Við kynnumst náttúru, menningu og förum í gegnum andlegt ferðalag.
03/03/2025
Ekki missa af þessu viðtali við okkar einu sönnu Hafdísi Huld sem er einn af umsjónarmönnum Fjallabandalagsins.
Sefur í tjaldi í hverjum mánuði - Vísir
Það er oft hlegið í samtalinu við Hafdísi Huld Björnsdóttur framkvæmdastjóra og stofnanda ráðgjafafyrirtækisins RATA.