01/06/2026
BUBBI Í HÖLLINNI 06.06.2026!
Bubbi Morthens stígur á svið í Laugardalshöllinni 5. og 6. júní og býður upp á tvenna kraftmikla afmælistónleika þar sem ferillinn, sögurnar og lögin fá að njóta sín í allri sinni dýrð.
Fagnaðu einstökum tímamótum með einum áhrifamesta tónlistarmanni Íslands!
Miðasala 👉 https://tix.is/event/20761/06-06-26
27/05/2026
GUSGUS í Höllinni 30. maí 2026!
Aftur! Stærra og hærra!
Danspartý ársins: Inspector Spacetime, Hercules & Love Affair, DJ Margeir, Birnir, Högni, GusGus.
Nánar👉 https://tickets.moment.is/event/gusgus-i-hollinni-bphw2v
12/05/2026
HERRA Í HÖLLINNI
Herra Hnetusmjör heldur risa afmælistónleika í Laugardalshöll 15. maí.
Kappinn fer yfir ferilinn með góðum gestum, allt frá "Flottur Skrákur" til "Legend í Leiknum". Eins og segir í laginu: Tix þurfti að setja upp röð!
Fjölskyldutónleikar kl. 17:00, hús opnar 16:00.
Fullorðinstónleikar kl. 21:00, hús opnar kl. 19:00, aldurstakmark 20 ára.
Nánar 👉 https://tix.is/event/20020/herra-i-hollinni
16/03/2026
Stórsýningin, Verk og vit 2026, verður í Laugardalshöll 19. til 22. mars.
Verk og vit er frábær vettvangur til að sjá allt það nýjasta í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum og kynna sér spennandi vörur og þjónustu.
Sýningin er nú haldin í sjöunda sinn og fagnar 20 ára afmæli.
Nánari upplýsingar 👉https://verkogvit.is
11/03/2026
ISMO á leiðinni í Laugardalshöll!
ISMO sameinar beittan húmor og finnska hörku í bráðfyndinni sýningu sem er sniðug, óvænt og stórskemmtileg.
Nú er komið að þér að hlæja með, í Höllinni 13. mars!
Miðasala 👉 https://tix.is/event/19883/ismo-perseverance-tour
04/03/2026
GOLF EXPO, stórsýning á öllu því nýjasta í golfheiminum, verður haldin í Laugardalshöll 7. og 8. mars. Hægt verður að prófa golfherma, fá ráðgjöf frá golfkennurum, skoða spennandi golfferðir, sjá nýungar í golfbúnaðinn og golfbílum sem dæmi. Þá verða fjölbreyttir fyrirlestrar tengt golfi alla helgina.
Nánari upplýsingar 👉https://www.golfexpo.is/is
24/02/2026
Íslenska landsliðið í körfubolta karla leikur við Litháen í Laugardalshöll 27. feb kl. 19:30. Leikurinn er í undankeppni fyrir HM 2027 og þegar er uppselt á leikinn.
Það verður kátt í Höllinni - ÁFRAM ÍSLAND!
30/01/2026
Meistaramót Íslands 11-14 ára fer fram í Laugardalshöllinni um helgina. Meistaramót Íslands í aðalhluta í frjálsum íþróttum fer fram helgina 28. til 29. febrúar. Verið velkomin!
22/01/2026
Reykjavíkurleikarnir/RIG Reykjavík International Games eru haldnir í 19. sinn í ár og verða dagana 21. til 26. janúar. Í Laugardalshöll verður keppt í dansi, frjálsum íþróttum og skotfimi.
Dagskrá 👉 https://www.rig.is/dagskra-2026