12/03/2026
Kæru sýnendur á Golf Expo 2026
Við höfum sent út stutta viðhorfskönnun til allra tengiliða sýnenda í tölvupósti. Markmið hennar er að safna ábendingum og reynslu til að bæta næstu Golf Expo sýningu sem fyrirhuguð er vorið 2028.
Könnunin tekur um 2 mínútur að svara.
Svör verða eingöngu notuð í samantekt og ekki verður unnt að rekja einstök svör til þeirra sem svara.
Ef könnunin hefur ekki borist til ykkar má finna hana hér:
Viðhorfskönnun - Sýnendur Golf Expo 2026
Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna sem sýnandi á Golf Expo 2026. Markmið könnunarinnar er að bæta skipulag og framkvæmd næstu sýningar sem fyrirhuguð er vorið 2028. Könnunin tekur um 3–5 mínútur að svara. Svör verða eingöngu notuð í samantekt og ekki verður unnt ...
12/03/2026
Skemmtilegt samantektar myndband af sýningunni Golf Expo 2026:
Icelandic GOLF EXPO 2026
Haldinn í Laugardalshöll, daganna 7. og 8. mars 2026.
09/03/2026
Takk fyrir frábæra helgi á Iceland Golf Expo!
Það var frábært að sjá hversu margir gerðu sér ferð í Laugardalshöllina um helgina. Það var sannur heiður fyrir okkur í Golfskálanum að taka á móti ykkur öllum og sýna ykkur allt það nýjasta tengt golfi.
Við hlökkum til að fá að gera eitthvað þessu líkt aftur sem fyrst!
09/03/2026
Takk fyrir frábæra helgi á Golf Expo ⛳
Það var virkilega gaman að hitta alla sem kíktu við á básinn okkar og spjalla um Spán, golf og drauminn um að eiga heimili í sólinni.
Svona helgar minna okkur á hversu skemmtilegt það er að hitta ykkur, heyra hugmyndirnar ykkar og aðstoða ykkur að skoða hvaða möguleikar eru í boði.
Ef þú náðir ekki að kíkja við um helgina er það ekkert mál. Þér er alltaf velkomið að hafa samband á [email protected] eða koma í heimsókn til okkar, hvort sem er á skrifstofuna okkar á Íslandi eða á Spáni.
Takk aftur fyrir spjallið og góða stemningu um helgina ⛳🧡🏡�
Við hlökkum til að heyra í ykkur og halda samtalinu áfram.
09/03/2026
Vel heppnuð GOLF EXPO sýning 2026
Aðstandendur sýningarinnar vilja færa öllum þeim sem heimsóttu sýninguna innilegar þakkir. Samkvæmt okkar mati komu um 19.000 gestir á sýninguna, sem fór fram úr björtustu vonum.
Þennan viðburð hefði ekki verið hægt að halda með þeim árangri sem raun bar vitni nema fyrir tilstuðlan þeirra frábæru sýnenda sem tóku þátt og lögðu mikinn metnað í að gera sýninguna sem glæsilegasta.
Við viljum því þakka þeim öllum svo og gestum sýningarinnar fyrir að mæta á sýninguna, starfsmönnum Laugardalshallar fyrir góða umgjörð og frábæra þjónustu, sem og öllum þeim fjölmörgu verktökum, með Xcraft í lykilhlutverki, sem komu að uppsetningu sýningarinnar.
Enn og aftur kærar þakkir og við hlökkum til að sjá ykkur á næstu GOLF EXPO sýningu. ⛳
09/03/2026
Fyrir opnun sýningarinnar GOLF EXPO 2026 var sérvalin dómnefnd fengin til að gegna því mikilvæga hlutverki að velja FLOTTASTA bás sýningarinnar.
Viðurkenninguna „Flottasti bás sýningarinnar“ hlaut BRIMBBORG, og óskum við þeim innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur. 🎉
09/03/2026
Frumlegasti bás sýningarinnar GOLF EXPO 2026
Fyrir opnun sýningarinnar var sérvalin dómnefnd fengin til að gegna því mikilvæga hlutverki að velja frumlegasta bás sýningarinnar.
Viðurkenninguna „Frumlegasti bás sýningarinnar“ hlaut KÖLSKI, og óskum við þeim innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur. 🎉
08/03/2026
Útdráttur úr seldum miðum á Golf Expo 2026
Dregið var úr seldum aðgöngumiðum á Golf Expo 2026. Vinningarnir voru gjafabréf, inneignir og vörur frá vel völdum sýnendum á sýningunni.
Til að tryggja jafnræði á milli allra miðakaupenda fór útdrátturinn fram í tveimur þrepum.
Fyrst var dregið úr þremur mismunandi hópum miðakaupenda:
- meðal þeirra sem keyptu aðgöngumiða á heimasíðu Golf Expo (www.golfexpo.is)
-meðal þeirra sem keyptu miða í gegnum midix.is
- meðal þeirra sem keyptu miða við inngang sýningarinnar og skráðu netfang sitt við miðakaupin.
Úr hverjum þessara hópa var einn aðili dreginn út. Þessir þrír aðilar fóru síðan í lokaútdrátt þar sem dregið var um vinningana þrjá sem í boði voru.
Vinningshafar eru:
🥇 1.000.000 kr. – Þórdís Ólafsdóttir
🥈 100.000 kr. – Guðmundur Gunnarsson
🥉 100.000 kr. – Guðrún Ína Einarsdóttir
Við óskum þeim innilega til hamingju með vinningana og þökkum öllum gestum Golf Expo 2026 kærlega fyrir þátttökuna.
Icelandic Golf Expo 2026
Stórsýningin Icelandic Golf Expo 2026 Golf Expo er ekki bara sýning, þetta er staðurinn þar sem golfáhugafólk hittist, fær innblástur og stillir sig inn á golfsumarið sem er fram undan. Hvort sem þú ert að leita að nýjum kylfum, betri sveiflu eða næstu golfferð, þá finnurðu þ...
08/03/2026
Frábærir fyrirlestrar í dag á Golf Expo! Í litla salnum til vinstri þegar komið er inn í Laugardalshöllina. Sjáumst þar!
07/03/2026
Það verða heldur betur frábærir fyrirlestrar á sýningunni á lau og sun!
Endilega kíkið á dagskrána og komið ykkur vel fyrir í salnum í anddyri Laugardalshallarinnar