Dansgarðurinn - Óskandi
Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Dansgarðurinn - Óskandi, Dance School, Eiðistorgi 11, Seltjarnarnes.
Óskandi býður upp á fjölbreytt dansnám þar sem markmið skólans er að bjóða upp á jákvætt, faglegt og uppbyggilegt skólaumhverfi með viðeigandi og gagnlegri námskrá miðað við aldur og þroska þar sem nemendur fái tækifæri til að blómstra á sínum tíma.
30/05/2026
Við minnum á Dansdaginn í boði foreldrafélagsins. Hlökkum til að sjá nemendur og fjölskyldur þeirra á morgun, 31. maí kl. 11:30.
29/05/2026
Það fyllir okkur stolti að sjá okkar frábæru kennara og þessar hæfileikaríku listakonur hljóta þessa dýrmætu viðurkenningu, Grímuna.
Það, að ballett og danslist fái þann sess og athygli sem þetta einstaka listform á skilið, skiptir gríðarlega miklu máli, ekki bara fyrir listina og listafólkið sjálft, heldur líka fyrir allt unga fólkið sem horfir upp til þessara atvinnudansara á hverjum degi.
Við hjá Dansgarðinum Óskanda erum ótrúlega þakklát fyrir að nemendur okkar fái að læra af kennurum sem eru ekki aðeins framúrskarandi kennarar heldur líka framúrskarandi virkar listakonur í senunni, sterkar fyrirmyndir, einstaklingar sem sýna með vinnu sinni, ástríðu og elju hvað hægt er að skapa með góðri samvinnu, aga, sköpunarkrafti og kærleika til listarinnar.
Dansnám gefur börnum og ungu fólki svo margt — sjálfstraust, líkamsvitund og virðingu, tjáningu, samvinnu, styrk og gleði. Að sjá íslenskan ballett og danssenuna blómstra á þennan hátt gefur næstu kynslóð dansara innblástur til að halda áfram að dreyma, skapa, dansa og ryðja fleiri brautir fyrir dansinn á Íslandi.
Innilega til hamingju Ballet Axis og allir sem koma að þessari fallegu vegferð. Við erum endalaust stolt og hlökkum til að halda áfram að fylgjast með ykkur blómstra.
27/05/2026
Mikið erum við stolt af okkar frábæru kennurum sem eru svo sannarlega að auðga menningu og danssenunna á Íslandi. Innilega til hamingju ❤️
Danshöfundur ársins 2026: Sally Cowdin í samstarfi við Anaïs Barthe, Alona Perepelytsia og dansara Ballet Axis fyrir sýninguna Pointe of Axis.
Sviðsetning: Ballet Axis í samstarfi við Tjarnarbíó.
📸 Stefanía Elín Linnet
27/05/2026
Enn sú veisla. Til hamingju elsku Sally okkar sem er yfir klassisku listdansbrautinni okkar. Þvílík fyrirmynd💖
Hvað er uppáhalds sporið þitt?
Hér fái þið að kynnast nokkrum nemendum á 7. stigi og framhaldsbraut í listdansi.
Það styttist í inntökuprófið okkar 20. maí!
Hvetjum öll sem eru áhugasöm að mæta.
Nánari upplýsingar og skráning á [email protected]
19/05/2026
Danssmíði - sýning - framhaldsbraut deilir afrakstri vetrarins á Dansverkstæðinu miðvikudaginn 27. Maí kl.18:00. Öll velkomin!
19/05/2026
Með sinni fallegu orku, hlýju og léttleika skapar Inga Maren jákvætt og hvetjandi umhverfi auk þess sem hún brennur fyrir heilbrigði og velferð dansara. Inga Maren er sjálf töfrandi dansari sem hefur átt farsælan feril bæði sem dansari og danshöfundur meðal annars með ÍD. Hún býr yfir dýrmætri þekkingu sem hún miðlar af gleði. Inga er verkefnastjóri FWD danshópsins og situr í stjórn Dansgarðsins. Inga veit ekkert skemmtilegra en að byggja upp dansverk allt frá grunntækni yfir í fullgert verk.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Website
Address
Seltjarnarnes
170