Grótta Handbolti

Grótta Handbolti

Share

Handknattleiksdeild Gróttu

Photos from Grótta Handbolti's post 06/06/2026

Strákarnir í 4.flokki karla tóku þátt í æfingamóti utandyra í dag. Mótið fór fram í Úlfarsárdalnum og tefldum við fram tveimur liðum sem léku fjóra leiki hvort. Strákarnir stóðu sig vel og skemmtu sér konunglega. Grótta 2 vann einn leik en tapaði þremur. Grótta 1 stóð uppi sem sigurvegari á mótinu eftir að hafa unnið alla sína leiki.

Photos from Grótta Handbolti's post 03/06/2026

Fern verðlaun til Gróttu

Fyrr í dag fór fram uppskeruhátíð HSÍ en þar verðlaunaði sambandið þá leikmenn sem sköruðu fram úr í vetur í Grill 66-deildinni. Við í Gróttu hlutum fern verðlaun á hátíðinni.

Besti markvörður Grill 66-deildar kvenna
Andrea Gunnlaugsdóttir

Besti markvörður Grill 66-deildar karla
Hannes Pétur Hauksson

Besti varnarmaður Grill 66-deildar kvenna
Ída Margrét Stefánsdóttir

Besti leikmaður Grill 66-deildar kvenna
Ída Margrét Stefánsdóttir

Við óskum þessum flottu leikmönnum til hamingju með verðlaunin

31/05/2026

Stórkostlegur sigur á Stjörnunni

Grótta mætti Stjörnunni í úrslitaleik B-úrslita í 4.flokki karla núna í kvöld. Grótta hóf leikinn betur og komst meðal annars í 4-1 eftir nokkurra mínútna leik. Strákarnir voru betri aðilinn í fyrri hálfleik og leiddu 17-13 í hálfleik. Í síðari hálfleik juku strákarnir muninn jafnt og þétt og uppskáru að lokum glæsilegan 11 marka sigur, 38-27. Með þeim úrslitum unnu þeir B-úrslitin og hlutu verðlaun að leik loknum.

Markaskor Gróttu:
Magnús Malik Nielsen Friðriksson – 12 mörk
Daníel Þór Þórsson – 11 mörk
Oliver Örtenblad Bergmann – 9 mörk
Guðmundur Þorgeirsson – 2 mörk
Óskar Gunnar Styrmisson – 2 mörk
Tómas Orri Ólafsson – 1 mark
Sigurvin Elí Jónsson – 1 mark

Í markinu varði Ari Minik Nielsen Friðriksson 4 skot og Aron Bjarki Almarsson 3 skot. Samtals voru þeir með 21% hlutfallsmarkvörslu.

31/05/2026

Í hádeginu í dag var foreldraæfing hjá 8.flokki kvenna. Það var góð þátttaka og sýndu stelpurnar foreldrum sínum og forráðamönnum hvað þær hafa verið að læra í vetur. Farið var í leiki og endað á ýmsum þrautum. Þær voru síðan leystar út með frostpinna að æfingu lokinni.

Flokkurinn er fjölmennur en 31 stelpa æfir í flokknum. Þjálfari flokksins er Ægir Steinarsson. Stelpurnar halda áfram að æfa þar til grunnskólanum lýkur og byrja síðan aftur í haust.

31/05/2026

Hannes framlengir

Línumaðurinn Hannes Grimm hefur framlengt samninginn sinn við Handknattleiksdeild Gróttu til ársins 2028. Það þarf vart að kynna Hannes Grimm fyrir Gróttufólki en hann er alinn upp á Nesinu og hefur verið fyrirliði Gróttuliðsins undanfarin ár.

Hannes á 216 leiki fyrir Gróttu og hefur skorað í þeim 319 mörk.

Það má með sanni segja að Hannes sé mikill Gróttumaður og félagsmaður. Hann hefur undanfarin níu ár þjálfað yngri flokka félagsins við góðan orðstír.

„Það eru frábær tíðindi að Hannes verði áfram í herbúðum félagsins enda lykilleikmaður liðsins bæði sóknarlega og varnarlega. Það er hugur í okkur Gróttumönnum og er Hannes mikilvægt púsl á þeirri leið“, sagði Andri Sigfússon þjálfari Gróttuliðsins við undirritun samningsins.

30/05/2026

Úrslitaleikur á morgun

Strákarnir í 4.flokki karla mæta Stjörnunni á morgun kl. 19:30 í úrslitaleik B-úrslita í Íslandsmótinu. Leikurinn fer fram í Hertz-höllinni.

Við hvetjum Gróttufólk til að fjölmenna og styðja þessa framtíðarstráka til sigurs.

Áfram Grótta !

Photos from Grótta Handbolti's post 30/05/2026

6 frá Gróttu í Handboltaskóla HSÍ

Um helgina fer fram Handboltaskóli HSÍ sem er fyrsta þrep landsliðsstiga Handknattleikssambands Íslands. 6 fulltrúar frá Gróttu voru valdir en það voru þau; Christian Rafn Pálmason, Hrafnkell Kristmundsson, Jón Tryggvi Jónsson, Máni Gunnar Steinsson, Vigdís Arnarsdóttir og Þórhildur María Andradóttir.

Það eru landsliðsþjálfarar yngri landsliða HSÍ sem stýra æfingum og fyrirlestrum helgarinnar. Dagskráin fer fram í Kaplakrika í Hafnarfirði.

Grótta óskar þessum flottu fulltrúum til hamingju með valið og vonar að þetta sé upphafi að einhverju stærra hjá þessum leikmönnum.

30/05/2026

6.flokkur kvenna á Akureyri

Í byrjun maí fór fram lokamót vetrarins hjá 6.flokki kvenna eldri á Akureyri. Við tefldum fram tveimur liðum sem léku fjóra leiki hvort.

Lið 2
Hófu föstudaginn á naumu eins marks tapi í æsispennandi leik gegn sterku liði HK Kór2. Á laugardeginum náðu stelpurnar í einn geggjaðan sigur á Val. Á sunnudeginum voru spilaðir tveir leikir gegn ÍBV og KA/Þór sem töpuðust báðir og niðurstaðan því í 4 sæti.

Lið 1
Hófu mótið á laugardeginum með þremur leikjum. Fyrsti leikur gegn ÍR sem þær unnu sannfærandi, næsti leikur var svo gegn Aftureldingu og var leikurinn erfiður í byrjun en endaði a sigri. Þriðji leikurinn var svo gegn sterku liði FH þar sem mikil spenna var en niðurstaðan tap. Á sunnudeginum spiluðu þær gegn HK Kór og unnu. Gengu þær því frá þessu móti í öðru sæti.

Stelpurnar skemmtu sér vel á seinasta mótinu þeirra í 6.flokki. þær hafa náð góðum árangri í vetur og það verður spennandi að fylgjast með þeim næsta vetur í 5.flokki. Flokkurinn æfir til skólaloka og enda svo tímabilið á skemmtilegu lokahófi þar sem þær ætla að keppa við foreldra sína í handbolta.

29/05/2026

Gísli, Helgi og Kristján í hæfileikamótun HSÍ

Í byrjun maí fór fram Hæfileikamótun hjá drengjum f. 2012. Þrír strákar voru valdir frá Gróttu en það voru þeir Kristján Daníel Friðbertsson, Helgi Týr Snorrason og Gísli Þór Pálsson.

Við óskum þessum flottu strákum til hamingju með valið.

Photos from Grótta Handbolti's post 26/05/2026

Lokamót 6. flokks kvenna yngri

Stelpurnar á yngra árinu í 6.flokki kvenna léku á sínu seinasta Íslandsmóti í vetur, en mótið fór fram í Safamyrinni helgina 1. - 3.maí. Teflt var tveimur liðum og spiluðu liðin í 2. og 4. deild að þessu sinni.

Lið 2 spilaði fjóra leiki og gerðu tvö jafntefli og tvö töp. Með þeim úrslitum halda þær sætinu sínu í 4. deildinni.

Lið 1 spilaði einnig fjóra leiki í 2. deild. Þær unnu fyrsti tvo leikina en seinni leikirnir voru spennandi og enduðu með tapi. Þær halda því sæti sínu í 2.deildinni.

Bæði liðin sýndu miklar framfarir. Stelpurnar hafa verið duglegar að æfa í allan vetur, flokkurinn æfir út maí-mánuð og enda svo tímabilið á skemmtilegu lokahófi þar sem þær ætla að keppa við foreldra sína í handbolta.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Seltjarnarnes?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Seltjarnarnes