05/11/2026
Flottur árangur á Malarcupen í Svíþjóð!
S*x ungar og efnilegar fimleikastúlkur frá Gróttu tóku þátt í alþjóðlega fimleikamótinu Malarcupen í Stokkhólmi í Svíþjóð dagana 29. október til 1. nóvember.
Þær Elsa Finnsdóttir, Fanney Petrea Arnórsdóttir, Mjöll Jónsdóttir, Sigríður Lára Indriðadóttir, Sigurrós Ylfa Rúnarsdóttir og Sunneva Eyþórsdóttir voru fulltrúar Gróttu á mótinu í ár.
Stelpurnar kepptu allar í frjálsum æfingum og voru flestar að stíga sín fyrstu skref í þeim flokki. Þær stóðu sig allar frábærlega og skemmtu sér konunglega.
Elsa Finnsdóttir komst í úrslit á stökki og gólfi og Sigríður Lára Indriðadóttir komst í úrslit á gólfi, tvíslá og slá. Sigríður Lára hafnaði í 3. sæti í fjölþraut og vann silfurverðlaun á gólfi. Frábært árangur hjá stelpunum.
Mótið var frábært tækifæri fyrir stelpurnar til að öðlast dýrmæta keppnisreynslu og spreyta sig á alþjóðlegum vettvangi.
Það voru mörg fyrirtæki sem lögðu stelpunum lið og studdu við ferðina, en án þeirra hefði þessi skemmtilega upplifun mögulega ekki orðið að veruleika. Stelpurnar vilja koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra sem studdu við bakið á þeim og hjálpuðu til við að láta ferðina rætast. Stuðningurinn er ómetanlegur!
Við óskum stelpunum og þjálfurum þeirra innilega til hamingju með frábæran árangur!
Áfram Grótta!