Nesklúbburinn

Nesklúbburinn

Share

Nesklúbburinn var stofnaður árið 1964. Í dag er Nesklúbburinn fjölmennasti 9 holu golfklúbbur á Íslandi. Golfklúbbur Ness - Nesklúbburinn var stofnaður 1964.

Klúbburinn rekur 9 holu golfvöll á Seltjarnarnesi þar sem náttúrufegurðin ræður ríkjum.

Photos from Nesklúbburinn's post 05/06/2026

Allt komið á fullt í keppnisgolfinu hjá krökkunum okkar

Fjölmennasta barnagolfmót sem haldið hefur verið á Golf14 mótaröð GSÍ fór fram á Nesvellinum liðna helgi. Völlurinn og veðurguðirnir skörtuðu sínu fegursta á mótinu. Allir keppendur stóðu sig með miklum sóma og með samvinnu foreldra og þjálfara allra barnanna gekk allt eins og í sögu. Alls léku 166 börn frá golfklúbbum víðs vegar að af landinu í þremur aldursflokkum, bæði í drengja- og stúlknaflokki. Að móti loknu gafst öllum keppendum kostur á að taka þátt í púttmóti á sunnudeginum sem vakti mikla lukku meðal þeirra. Veitt voru verðlaun fyrir bestan árangur í öllum aldursflokkum.

Nesklúbburinn átti alls 30 þátttakendur. Keppt var í flokkum 10 ára og yngri, 11–12 ára og 13–14 ára og stóðu þau sig öll með prýði.

Nesklúbburinn átti sigurvegara í tveimur flokkum. Elísabet Þóra Ólafsdóttir sigraði í flokki 13–14 ára stúlkna og Saga Karitas Steinsdóttir sigraði í flokki 10 ára og yngri stúlkna. Einnig varð Haraldur Breki Ólafsson í 3. sæti í flokki 10 ára og yngri drengja.

Á sama tíma fór fram mót á Unglingamótaröð GSÍ á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ. Þar átti Nesklúbburinn s*x þátttakendur. Skarphéðinn Egill Þórisson spilaði frábært golf og endaði mótið í 2. sæti í flokki 15–16 ára. Hann lék völlinn á s*x höggum undir pari á þremur hringjum. Í flokki 15–18 ára varð Skarphéðinn í 3. sæti.

Stutt er á milli móta þessa dagana því næsta verkefni hjá krökkunum okkar er Icewear-mótið í sömu aldursflokkum, sem einnig er hluti af mótaröðum GSÍ, Golf14 og Unglingamótaröðinni fyrir 15–18 ára. Mótið fer fram hjá GKG um helgina og fjölmargir þátttakendur frá Nesklúbbnum mæta þar til leiks.

09/05/2026

Frábær mæting var á hreinsunardaginn okkar í morgun þegar 107 félagsmenn komu og unnu hin ýmsu verk í morgun til að gera völlinn okkar og nærumhverfi hans betra og fallegra fyrir sumarið. Ómetanlegt með eindæmum og enn og aftur sýnir hvað við erum rík af ósérhlífnum sjálfboðaliðum.

Eftir hreinsun var haldin annáluð pylsuveisla að fornum sið og svo í framhaldinu 9 holu golfmót þar sem opnað var inn á sumarflatir í fyrsta sinn í sumar. Úrslit í mótinu urðu eftirfarandi:

1. sæti: Rögnvaldur Dofri Pétursson – 21 punktar
2. sæti: Bjarni Hrafn Andrason – 19 punktar
3. sæti: Hörður Runólfur Harðarson – 19 punktur

Nesvöllurinn opnar fyrir félagsmenn á morgun, sunnudaginn 10. maí og er opið fyrir rástímabókanir á golfbox. Athugið að völlurinn er eingöngu opinn fyrir félagsmenn.

28/04/2026

Golfleikjanámskeið Nesklúbbsins 2026

Á morgun (29. apríl) kl. 9:00 hefst skráning á golfleikjanámskeiðin okkar fyrir sumarið.

Námskeiðin eru frábær leið fyrir krakka til að kynnast golfinu sem ekki hafa stundað íþróttina áður en svo eru námskeiðin á sama tíma líka hugsuð fyrir þá krakka sem eru nú þegar að æfa hjá okkur golf allt árið eða hafa sótt námskeið hjá okkur áður. Námskeiðin eru fyrir börn á grunnskólaaldri (fædd 2011-2019).

Á síðasta ári sóttu hátt í 300 börn eitt eða fleiri námskeið hjá okkur og yfir 150 börn voru á biðlista sem komust ekki að á námskeið. Við erum að reyna allt sem við getum til að minnka biðlistann eins og hægt er fyrir krakkana okkar sem vilja koma á golfleikjanámskeið í sumarfríinu en mikilvægt er að þau börn sem ætla á námskeið skrái sig sem fyrst áður en fyllist á námskeiðin. Námskeiðin í sumar verða 8 talsins.

Nánari upplýsingar um námskeiðsdaga og skráningu hér:
https://nkgolf.is/barnaogunglingastarf/krakkanamskeid/

Photos from Nesklúbburinn's post 27/04/2026

Nesklúbburinn fór nýlega í vel heppnaða æfingaferð með barna- og unglingastarf klúbbsins auk meistaraflokks til Valle Del Este á suður Spáni.

Alls fóru tæplega 80 krakkar og foreldrar frá Nesklúbbnum í ferðina til VDE og máluðu völlinn rauðan í eina viku.

Ferðin mun vafalaust nýtast okkar krökkum í íþróttastarfinu vel í undirbúningi fyrir skemmtilegt golfsumar framundan.

27/04/2026

Frábært tilboð á Nesvöllum ⛳️

🚨 Tilboð í golfhermi 🚨
Við verðum með sérstakt tilboð í golfhermana þangað til Nesvöllur opnar.
Hverjar 30 mín á aðeins 1500 kr., hvenær sem er á opnunartíma.
Tímabókanir á boka.nkgolf.is.

Photos from Nesklúbburinn's post 10/02/2026

Hátíð íþróttafólks á Seltjarnarnesi fór fram 3. febrúar. S*x kylfingar úr Nesklúbbnum voru verðlaunaðir á hátíðinni.

Heiðar Steinn Gíslason var tilnefndur til Íþróttamanns Seltjarnarness fyrir árið 2025 í kjöri sem júdómaðurinn Aðalsteinn Björnsson var valinn íþróttamaður Seltjarnarness og hlaupakonan Eir Chang Hlésdóttir var kjörin íþróttakona Seltjarnarness. Heiðar Steinn var vel að tilnefningunni kominn enda átti hann frábært golfsumar árið 2025.

Í hópi ungra og efnilegra áttum við tvo fulltrúa þar sem Aron Bjarki Arnarsson og Elísabet Þóra Ólafsdóttir voru verðlaunuð fyrir eljusemi og góðan árangur á golfvellinum.

Elísabet Þóra fékk einnig sérstaka viðurkenningu fyrir Íslandsmeistaratitil sinn í höggleik og holukeppni árið 2025 og fékk stelpusveit Nesklúbbsins í flokki 14 ára og yngri viðurkenningu fyrir Íslandsmeistaratitil sinn síðasta sumar. Liðið skipuðu Arnheiður Helga Hermannsdóttir, Elísabet Þóra Ólafsdóttir, Emma Daðadóttir og Þórey Berta Arnarsdóttir

Við óskum okkar fólki og öðrum verðlaunahöfum innilega til hamingju.

Myndir: Eyjólfur Garðarsson

Photos from Nesvellir - Golfhermar's post 22/01/2026
Golf­völlur er heilsuauðlind - Vísir 14/01/2026

Golfvöllurinn okkar er heilsuauðlind ⛳

Steinn Baugur Gunnarsson íþróttastjóri Nesklúbbsins skrifaði grein í Vísi um vanmetið hlutverk golfvalla og golfklúbba í heilbrigðu samfélagi og mikilvægi aukinnar aðkomu sveitarfélaga og stjórnvalda í að styðja við golfhreyfinguna í bættum aðstöðumálum fyrir kylfinga.

https://www.visir.is/g/20262827484d/golfvollur-er-heilsuaudlind?fbclid=IwY2xjawPUyBFleHRuA2FlbQIxMQBzcnRjBmFwcF9pZA80MDk5NjI2MjMwODU2MDkAAR4LmODvq0jNe2BwQqmtf8vTHA1X5iM7z698-EVDsKWRMy4YqypECHAJqFBicw_aem_CUfMTkMr14sWAcd719T2NA

Golf­völlur er heilsuauðlind - Vísir Vísindafólk á sviði heilbrigðisvísinda hefur lengi lagt kapp á að rannsaka hvað raunverulega eflir heilsu og hvernig hægt er að minnka byrði lífsstílstengdra heilsuvandamála og þannig auka líkur á farsælu og löngu lífi.

Klippikort – TILBOÐ 27/11/2025

Einstakt tilboð á Nesvöllum sem gildir til og með mánudagsins 1. desember! 👏

Klippikort – TILBOÐ TILBOÐ Á KLIPPIKORTUM Dagana 27. nóvember - 1. desember 2025. Tryggðu þér klippikort í golfhermana á Nesvöllum á okkar besta verði! Hvert klippikort inniheldur 10x30 mín í golfhermi. Klippikortin verða tilbúin til afhendingar mánudaginn 1. desember, á Nesvöllum, Au...

29/09/2025

Lokamót Logo mótaraðar barna og unglinga

Síðastliðinn miðvikudag fór fram lokamót Logo mótaraðar barna og unglinga hjá Nesklúbbnum. Skráningin var glæsileg og alls tóku 42 krakkar á aldrinum 6–16 ára þátt.

Þátttakendur voru á öllum getustigum - frá kylfingum sem tóku þátt í sínu fyrsta móti, yfir í Íslandsmeistara unglinga og landsliðskylfing - sem sýnir hversu fjölbreytt barna- og unglingastarfið er orðið hjá klúbbnum.

Krakkarnir spiluðu 9 holur í krefjandi aðstæðum þar sem stífur vindur og rigning reyndu vel á. Keppt var um þrjú sæti í punktakeppni og besta skor án forgjafar. Einnig var keppt um stigameistaratitil Logo mótaraðarinnar og fyrir mótið áttu nokkrir kylfingar möguleika á að landa stigameistaratitlinum.

Úrslit voru eftirfarandi:

Punktakeppni
🥇 Ólafur Logi Ingólfsson – 22 punktar (betri síðustu 6)
🥈 Magnús Kjartan Kristinsson – 22 punktar
🥉 Þórdís Borg Ólafsdóttir – 21 punktur

Besta skor
🏌️ Skarphéðinn Egill Þórisson – 38 högg

Stigameistari mótaraðarinnar
🏆 Þórdís Borg Ólafsdóttir

Keppnistímabilinu hjá krökkunum er nú formlega lokið og erum við ótrúlega stolt af öllum krökkunum, framförum þeirra og árangri í sumar 👏

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Seltjarnarnes?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Seltjarnarnes
170