Sundfélag Akraness

Sundfélag Akraness

Share

Sundfélag Akraness Stofnað 1948 Sundfélag Akranes er stofnað árið 1948.

Photos from Sundfélag Akraness's post 01/06/2026

Stærstu Vit-Hit leikarnir frá upphafi voru haldnir síðastliðna helgi á Jaðarsbökkum.

Alls tóku 397 sundmenn þátt í mótinu sem stungu sér alls 1.897 sinnum til sunds sem gerir þetta að langstærsta barna- og unglingamóti í sundi sem haldið hefur verið á Íslandi í ár.

Sundfélag Hafnarfjarðar stóð uppi sem sigurvegari í liðakeppninni í ár. Sunddeild Breiðabliks hafnaði í 2. sæti og Sundfélagið Óðinn í 3. sæti. Sunddeild Ármanns fylgdi fast á hæla þeirra í 4. sæti.

Prúðasta lið mótsins var Sunddeild Ármanns. Sundfólk Ármanns sýndi einstaka kurteisi, jákvætt viðmót og mikinn íþróttaanda bæði innan og utan laugar. Slík framkoma er til fyrirmyndar og endurspeglar þau gildi sem Vit-Hit leikarnir standa fyrir.

Veitt voru verðlaun til stigahæsta sundfólksins miðað við samanlagðan árangur í þremur bestu greinunum.
Í aldursflokki 13 ára og yngri vour það Guðlaugur Santiago Guðlaugsson (Breiðabliki) og Áróra Mjögg Jónsdóttir (Ármanni) sem urðu sigurvegarar og í aldursflokki 14–15 ára sigruðu Jón Ingi Einarsson (Óðni) og Guðbjörg Helga Hilmarsdóttir (Breiðabliki)

Nýtt fyrirkomulag var tekið upp í ár þar sem hvíldarsvæði keppenda á milli greina var flutt í nýja íþróttahúsið. Mikill spenningur ríkti fyrir þessari breytingu og var áhugavert að sjá hvernig hún myndi reynast.

Að mati mótshaldara og þátttakenda heppnaðist breytingin afar vel og skapaði enn betri umgjörð um mótið en áður.

Í Grundaskóla var líf og fjör alla helgina en þar gisti sundfólkið og borðaði hollan og góðan mat. Á laugardeginum snæddu yfir 300 manns saman, sem sýnir vel þann góða anda og samheldni sem einkenndi mótið.

Á mótinu ríkti mikil stemning og gleði, auk þess sem góður íþróttaandi var áberandi meðal keppenda. Ljóst er að framtíð sundíþróttarinnar á Íslandi er björt þegar horft er til þess mikla fjölda efnilegra sundmanna sem tóku þátt.

Í yngri hluta mótsins fengu allir þátttakendur þátttökuverðlaun og glaðning frá Vit-Hit, sem vakti mikla ánægju meðal yngstu keppendanna.
Skagasundfólkið hélt áfram að bæta sig og náði sínum besta árangri til þessa í liðakeppni mótsins. Margir sundmenn bættu persónuleg met og sýndu framfarir sem lofa góðu fyrir komandi verkefni.

Að lokum viljum við færa öllum sem komu að mótinu okkar bestu þakkir. Keppendur, þjálfarar, foreldrar, sjálfboðaliðar, dómarar og annað starfsfólk lagði sitt af mörkum til að gera Vit-Hit leikana að þeirri glæsilegu sundhátíð sem þeir urðu.

Sérstakar þakkir fá foreldrar og sjálfboðaliðar sem unnu ómetanlegt starf við undirbúning og framkvæmd mótsins. Án þeirra hefði ekki verið hægt að halda svo stórt og vel heppnað mót.

Við viljum einnig þakka Vit-Hit kærlega fyrir stuðninginn og samstarfið, sem skiptir miklu máli fyrir uppbyggingu og framkvæmd mótsins.

Jafnframt færum við ÍATV bestu þakkir fyrir beina útsendingu frá mótinu, sem gerði fjölskyldum, vinum og sundáhugafólki kleift að fylgjast með og taka þátt í stemningunni, hvar sem þau voru stödd.

Takk fyrir frábæra helgi – við hlökkum til að sjá ykkur öll aftur á næstu Vit-Hit leikunum.

Photos from Sundfélag Akraness's post 30/05/2026

Dagur 2 á Vit-Hit leikunum er lokið.

Geggjaður dagur í lauginni, mikil stemning og frábærar bætingar hjá keppendum.

Á morgun er síðasti dagur mótsins. Keppni hefst kl. 09:00 og stendur til kl. 18:20.

Takk fyrir daginn í dag og sjáumst hress á morgun! 💪🏊‍♂️🏊‍♀️

Photos from Sundfélag Akraness's post 29/05/2026

Vit-hit leikarnir í sundi hófust í dag í Jaðarsbakkalaug.

Um 400 krakkar frá 14 félögum taka þátt í mótinu um helgina. Það var líf og fjör á bakkanum í dag og fjölmargir stuðningsmenn hvöttu sundfólkið sem stóð sig með eindæmum vel.

Blíðskapar veður hjalpaði til við að skapa góða stemningu og gleði hjá viðstöddum.

Á morgun og sunnudag hefjast leikar kl. 9 og eru allir sem vettlingi geta valdið hvattir til að mæta á bakkan og upplifa sundstemninguna.

Photos from Sundfélag Akraness's post 28/05/2026

Um helgina fer fram eitt skemmtilegasta sundmót ársins hér á Akranesi en það eru Vit-hit leikarnir.

Um 400 krakkar muna stinga sér til sunds í hinum ýmsu sundgreinum og án efa ná góðum árangri.

Mótið hefst kl 16.30 á föstudag og kl 9 bæði laugardags- og sunnudagsmorgun. Það er því tilvalið að kíkja við og fylgjast með þessu efnilega sundfólki. Það er ávallt líf og fjör á bakkanum, mikið góðgæti í veitingasölunni í hátíðarsalnum og vonandi mun veðrið vera okkur hagstætt.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Photos from Sundfélag Akraness's post 22/05/2026

Við þurfum á þinni hjálp að halda!

Vit-hit leikarnir í sundi fara fram hér á Akranesi helgina 29.-31. maí. Við tökum á móti 392 sundkrökkum sem ætla að skemmta sér og synda alla helgina.

Okkur veitir því ekki af góðri aðstoð svo allt fari sem best fram.

"Gamlir" sundmenn, foreldrar þeirra og aðrir velunnarar sundfélagsins hafa oftar en ekki reynst félaginu vel og leitum við því til ykkar.

Ef þið hafið einhver tök á að skrá ykkur til leiks og manna með okkur vaktir á mótinu yrðum við afar þakklát.

Skráning:
https://docs.google.com/spreadsheets/d/1uCntsFXVh-5HIi6MAlA2g7JkmB43xhIvaUl9Knqxfzs/edit?gid=0 =0

02/05/2026

Við bjóðum upp á spennandi og lærdómsríkt námskeið í Júní.

Þetta er einstakt tækifæri fyrir börn sem eru að hefja 1. bekk í haust (fædd 2020) til að læra og aðlagast vatninu með okkar frábæru þjálfurum.

Námskeiðin standa yfir í fjóra daga, frá mánudegi til fimmtudags í Bjarnalaug.
Tvö námskeið í boði:

Byrjendur kl. 16:35–17:10
Framhald kl. 17:15–17:45

Námskeið 1: 1.–4. júní
Námskeið 2: 8.–11. júní​

Skráning: abler.io/shop/iasund

Photos from Sundfélag Akraness's post 27/04/2026

13 sundmenn frá ÍA og Skallagrími á Triton Open í Danmörku

13 sundmenn frá ÍA og Skallagrími tóku þátt í Triton Open í Ballerup í Danmörku um helgina. Um var að ræða krakka á aldrinum 12–15 ára og fyrir flest þeirra var þetta fyrsta keppnisferð erlendis.

Keppt var í 50 metra laug við frábærar aðstæður og skipulag mótsins var til fyrirmyndar. Krakkarnir stóðu sig frábærlega í nýju umhverfi og náðu mörgum góðum bætingum 💪

Sameiginleg boðsundssveit ÍA/Skallagríms vann til silfurverðlauna í 4x100m fjórsundi 🥈
Sveitina skipuðu: Rúna Björk Ingvarsdóttir (ÍA), Sóley Rós Sæmundsdóttir (Skallagrími), Karen Anna Orlita (ÍA) og Luise Ferun Agathe Knappe (Skallagrími).

Karen Anna Orlita átti glæsilega keppni og vann til gullverðlauna í 200m skriðsundi, silfur í 50m skriðsundi og brons í 200m fjórsundi í flokki 14–15 ára.

Ólöf Oddný Jansen vann einnig brons í 200m bringusundi.

Keppni fór fram laugardag og sunnudag. Á mánudegi hélt hópurinn til Kaupmannahafnar þar sem farið var í skoðunarferð og heimsókn í Tívolí 🎡 áður en haldið var heim á þriðjudegi.

Við erum afar stolt af hópnum okkar og þessum frábæra árangri á erlendum vettvangi.
Við viljum einnig þakka kærlega fyrir hlýjar móttökur, einstaka gestrisni og vel skipulagt mót:

Vi takker hjerteligt for den gode modtagelse, gæstfriheden og et velarrangeret stævne 🙏
Svømmeklubben Triton Ballerup Sunddeild Skallagríms

Photos from Sundfélag Akraness's post 26/04/2026

Opna Íslandsmeistaramótið í garpasundi fór fram dagana 24.-25. apríl Vatnaveröld, Reykjanesbæ.

Kári Geirlaugsson vann til sjö gullverðlauna og setti eitt Garpamet í flokki 75-79 ára í 100m fjórsundi

Hallbera Jóhannesdóttir vann til 2 gullverðlauna og setti 2 Garpamet í 70-74 ára í 50m skriðsundi og 100m bringusundi

Frábær áragangur hjá þeim og við erum afar stoltir yfir að hafa svona góðar fyrirmyndir.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akranes?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Akranes
300

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00