05/06/2026
Við erum virkilega stolt af Fjölskyldumóti Leynis sem unnið er í samvinnu við Hótel Laxárbakka. Markmið okkar með mótinu er að hvetja ungu kylfingana okkar áfram til þátttöku í golfmótum. Skráning er hafin í Golfbox.
18 hole golf course and one of the better tournament golf course in the country.
05/06/2026
Við erum virkilega stolt af Fjölskyldumóti Leynis sem unnið er í samvinnu við Hótel Laxárbakka. Markmið okkar með mótinu er að hvetja ungu kylfingana okkar áfram til þátttöku í golfmótum. Skráning er hafin í Golfbox.
Nýjar staðarreglur á Garðavelli verða teknar í notkun frá og með miðvikudeginum 3. júní 2026.
Helsta breytingin frá gildandi reglum er á 3 grein. Fallið er frá færslum á öllum brautum um kylfuleng og nú er horft meira til þess að spila hreyfinga laust golf. Undantekning er þó á brautum 5,7,12,13 og 16 þar sem kylfingar geta fært um kylfulengd en þó aldrei nær holu samkvæmt reglu (14.1)
Hér má sjá 3 grein eins og hún er þá í nýuppfærðum staðarreglum:
Færslur á brautum 5,7, 12, 13 og 16. Þegar bolti leikmanns liggur innan almenna svæðisins og þar sem gras er slegið í brautarhæð eða neðar má leikmaður taka vítalausa lausn einu sinni áður en högg er slegið með því að færa boltann innan einnar kylfulengdar þaðan sem boltinn liggur (regla 14.1), þó ekki nær holunni. Þegar lausn er tekin skv. þessari reglu verður leikmaður að velja stað til að leggja boltann og fara eftir aðferðum við að leggja bolta aftur skv. reglu 14.2b(2) og 14.2e
Við hvetjum félagsmenn að kynna sér nýja reglugerð GSÍ um forgjafatímabil á Íslandi. Þar sem markmið reglanna er að tryggja að allar skorkortaskráningar til forgjafar endurspegli raunverulega getu kylfinga samkvæmt Forgjafarreglunum (World Handicap System -WHS). Að spila sem mest hreyfingarlaust golf er stór þáttur þessara nýju reglna. Reglurnar má finna á heimasíðu GSÍ golf.is
Nýjar staðarreglur Garðavallar má finna á heimasíðu Leynis sem og í afgeiðslu klúbbsins.
Kveðja, Vallarnefnd Leynis
02/06/2026
Skráning er hafin í Golfbox !
Írskir dagar með allri sinni veislu fyrstu helgina í júlí 🥳
Frábært framtak hjá Golfklúbbnum Keili !! Það er auðvitað ekki boðlegt að kylfingar skilji nikótín púða eftir um allan völl. Gerum betur og göngum betur um völlinn okkar.
02/06/2026
Merktur Leynis klúbbafatnaður fyrir sumarið 2026 - Ný lína :)
Dagana 1. - 17. júní geta félagsmenn forpanta úr nýju klúbbalínunni fyrir sumarið 2026. Þegar félagsmenn forpanta á pöntunardögum er 20% afsláttur af þessum fatnaði :)
Hvetjum félagsmenn að koma við í verslun Leynis, skoða, máta og panta :)
01/06/2026
FRÉTTABRÉF VALLARNEFNDAR
Golfsumarið 2026 er hafið og kylfingar farnir að njóta Garðavallar. Völlurinn kemur heilt yfir vel undan vetri og er mikill gróandi þessa dagana. Vallarnefnd vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra fjölmörgu sjálfboðaliða sem lögðu hönd á plóg á sjálfboðaliðadögum sem haldnir voru á vormánuðum sem og þeirra einstaklinga sem mæta reglulega til að aðstoða Einar Gest og hans vallarstarfsmannateymi. Saman tryggðu vallarstarfsmenn og sjálfboðaliðar að hægt var að opna Garðavöll um miðjan maí við góðar aðstæður.
Vallarnefnd hefur það hlutverk að vinna að þróun Garðavallar í náinni samvinnu við stjórn, framkvæmdastjóra og vallarstjóra. Unnið er eftir ákveðnu verkplani sem reynt er að fylgja eftir eins og kostur er hverju sinni, með hliðsjón af fjármunum, veðurfari og öðrum þáttum. Helstu verkefni sem nefndin og vallarstarfsmenn hafa unnið að í vetur eru eftirfarandi:
• Áframhaldandi vinna við vökvunarkerfi. Unnið hefur verið að því undanfarin ár að koma vökvunarkerfi í flatir og teiga á Garðavelli. Á vormánuðum var vökvunarkerfi sett í kringum 7. flöt. Nú þegar hefur vökvunarkerfi verið sett í kringum 4. flöt, 7. flöt og 11. flöt sem og við allar nýframkvæmdir við teiga.
• Nýir teigar. Undanfarin ár hafa ýmsir teigar vallarins verið endurbyggðir. Í vetur hefur verið unnið að undirbúningi að sáningu gula teigsins á 7. braut. Áætlað er að framkvæmdum verði lokið á næstu vikum.
• Innleiðing gróðurplans fyrir Garðavöll. Hluti af gróðurplaninu er að fjarlægja dauð og ljót tré sem gert hefur verið í vetur. Nýjum trjám verður komið fyrir í samræmi við ákveðið plan þar sem klúbburinn nýtur ráðgjafar og liðsinnis sérfræðings.
• Rafmagn austur fyrir Leynislæk. Rafmagni var komið austur fyrir Leynislækinn í vetur svo einnig megi nota slátturróbóta þeim megin vallarins.
• Ruslastöðvar. Skipulagðar hafa verið ruslastöðvar á tveimur stöðum á vellinum, milli 4. flatar og 5. teigs annars vegar og við 14. teig hins vegar. Framkvæmdum verður haldið áfram á næstu vikum og þær fullunnar.
• Almennt viðhald vallar. Vallarstarfsmenn hafa unnið að viðgerðum á litlum álagssvæðum við teiga, flatir og annars staðar, snyrt göngustíga — allt í þeim tilgangi að gera völlinn snyrtilegri og fallegri.
Mörg stór verkefni eru framundan hjá Leyni sem vallarnefnd mun koma að. Á komandi mánuðum og árum verða eftirfarandi verkefni helstu áherslumál vallarnefndar:
• Stækkun Garðavallar. Á vormánuðum var undirrituð viljayfirlýsing við Akraneskaupstað um skipulagningu á stækkun vallarins. Um er að ræða mjög umfangsmikið verkefni sem mun krefjast náins samráðs við bæjaryfirvöld. Þetta er án efa stærsta verkefni sem vallarnefnd og klúbburinn hafa staðið frammi fyrir um langa hríð.
• Endurbygging á 18. holu. Kominn er tími á að endurbyggja flötina, braut og teiga á 18. holu. Stefnt er að því að hefja framkvæmdir í haust og ljúka þeim sumarið 2028. Nánara fyrirkomulag framkvæmdanna verður kynnt þegar nær dregur.
• Innleiðing gróðurplans. Áframhaldandi innleiðing gróðurplans. Stefnt er að því að gróðursetja um 150 tré á Garðavelli á ári hverju næstu árin.
• Vökvunarkerfi. Áfram verður unnið að því að koma vökvunarkerfi í flatir vallarins.
• Uppbygging teiga. Teigar verða uppfærði hér og þar um völlinn eins og efni standa til hverju sinni. Vökvunarkerfi verður sett niður samhliða öllum nýframkvæmdum við teiga.
• Tækjaflota haldið við. Mikilvægt er að halda tækjum við með reglulegum hætti. Leynir hefur metnaðarfull markmið í þeim efnum og hefur á s.l. 5 árum fjárfest í um 100 m.kr. í vélum og tækjum.
Garðavöllur er einn glæsilegasti golfvöllur landsins. Það er á ábyrgð okkar allra að ástand hans haldist gott og hann sé snyrtilegur. Með auknu álagi á völlinn reynir meira á þolgæði hans. Vallarnefnd vill hvetja kylfinga til að ganga vel um völlinn og hafa það að markmiði sínu að ástand hans verði ögn betra eftir að leik er lokið en það var áður en leikur hófst. Í þessu skyni minnir vallarnefnd kylfinga góðfúslega á eftirfarandi grundvallaratriði:
• Ganga frá ónýtum tíum í þar til gerð box á teigum.
• Setja ávallt torfusneppla í torfuför.
• Gera við að minnsta kosti eitt boltafar á hverri flöt.
• Raka ávallt sandglompur og setja hrífur ofan í sandglompur.
Tileinki allir kylfingar sér framangreint auðveldar það vallarstarfsmönnum verk sín og gerir þeim kleift að setja meiri orku í að bæta gæði vallarins almennt kylfingum og gestum til ánægju.
Að gefnu tilefni minnir vallarnefnd að lokum kylfinga eindregið á að henda níkótínpúðum ekki á völlinn. Mikið hefur borið á notuðum níkótínpúðum um allan völl í vor og er slíkur sóðaskapur óviðunandi.
Vallarnefnd óskar kylfingum öllum gleðilegs golfsumars og vonar að allir geti notið Garðavallar þetta sumarið.
Vallarnefnd Garðavallar
27/05/2026
Nú má sumarið koma..... :)
Heiðursfélaginn og einn af öflugustu sjálfboðaliðum Leynis til margra ára, Halldór F. Jónsson eða Dóri Jóns, gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi í dag þegar hann spilaði með Kára félaga sínum. Draumahöggið sló hann á 14. holu af rauðum teig með 3 tré en holan er um 114 metra löng af rauðum.
Golfklúbburinn Leynir óskar Dóra innilega til hamingju með draumahöggið.
Svona var golfið í dag eins og Dóri segir svo oft ;)
27/05/2026
Opna Akranesmótið 13. júní - Skráning hafin í Golbox :) ⛳️🏌️🥳
25/05/2026
Hvetjum nýliðana okkar í klúbbnum til að mæta og kynna sér allt það helsta sem snýr að golfíþróttinni ;)
Fundurnn fer fram í golfskálanum 27. maí kl. 19:00.
24/05/2026
Vorkveðja formanns GL.
Kæru félagsmenn,
Golfsumarið hjá okkur í Golfklúbbnum Leyni hefur farið af stað með miklum krafti. Vel á þriðja hundrað kylfinga og félagsmanna spila Garðavöll á degi hverjum þar með talið allt að 100 aðkomu kylfingar sem allir skilja eftir sig tekjur víðs vegar í sveitarfélaginu.
Það er ánægjulegt að segja frá því að barna- og unglingastarf félagsins heldur áfram að vaxa og dafna. Munum við fylgja því eftir með því að bjóða áfram upp á gjaldfrjálsar æfingar til barna og ungmenna á Skaganum þriðja árið í röð, framtak sem við erum virkilega stolt af.
Sömu sögu má segja af afreksstarfi félagsins en langt er síðan GL hefur haft jafn marga afrekskylfinga innan sinna raða er sækja munu mótaröð GSÍ á komandi tímabili.
Garðavöllur hefur komið virkilega vel undan vetri en þeir kylfingar sem undirritaður hefur hitt síðustu daga og vikur hefur verið tíðrætt um hversu bæði góður og snyrtilegur völlurinn okkar er.
Það er jafnframt fagnaðarefni að stöðug nýliðun heldur áfram og ljóst að rífleg fjölgun verður í félaginu sjöunda árið í röð. Þessu fylgja jafnframt vaxtarverkir og upp hefur sprottið réttmæt umræða í golfsamfélaginu síðustu daga um almennt versnandi umgengni kylfinga á golfvöllum landsins. Undirritaður týndi til að mynda upp einhverja 20 nikotín púða í æfingaskýli okkar Teigum á dögunum, umgengni sem er ólíðandi með öllu og ljóst að þarna getum við gert miklu betur. GL mun á næstu dögum bjóða upp á fræðslu til nýliða og jafnframt annarra félagsmanna, þar sem skerpt verður á siða- og umgengnisreglum félagsins, en það verður auglýst betur í komandi viku.
GL gekk á dögunum frá langtímasamningi við Leyni Bistro um rekstur veitingaþjónustu að Garðavöllum til næstu ára. Samkomulagið fól m.a. í sér verulega upplyftingu á veislusalnum með nýjum gluggatjöldum sem verður vonandi fullklárað á næstu dögum með uppsetningu nýs borðbúnaðar, stóla og skilrúma. Ljóst er að salurinn verður glæsilegur og er það von stjórnar að upplifun allra gesta Garðavalla verði fyrir vikið enn betri.
GL gekk jafnframt á dögunum frá undirritun viljayfirlýsingar við bæjaryfirvöld um stækkun Garðavallar í 27 holur, verkefni sem stjórn félagsins ásamt framkvæmdastjóra og vallarnefnd, hefur unnið ötullega að síðustu 3 ár. Eins og gefur að skilja er um afar spennandi vegferð að ræða en á næstu vikum er ráðgert að skipa starfshóp í kringum verkefnið með fulltrúum GL og Akraneskaupstaðar til að móta næstu skref í verkefninu.
Við förum að láta þessu lokið og vil ég í lokin nýta tækifærið og þakka öllu starfsfólki og ekki síður sjálfboðaliðum félagsins fyrir óeigingjarnt framlag í þágu GL, nú sem endranær.
Eigið þið gott sumar og njótið leiksins á golfvöllum landsins.
Kveðja,
Hróðmar Halldórsson
Formaður GL
| Monday | 08:00 - 21:00 |
| Tuesday | 08:00 - 21:00 |
| Wednesday | 08:00 - 21:00 |
| Thursday | 08:00 - 21:00 |
| Friday | 08:00 - 21:00 |
| Saturday | 08:00 - 21:00 |
| Sunday | 08:00 - 21:00 |