20/11/2026
Mömmur, nú er komið að ykkur! 💚
Eftir meðgöngu og fæðingu skiptir máli að byggja líkamann upp á réttan hátt.
Í mömmutímunum í Tilverunni leggjum við áherslu á markvissa styrktarþjálfun, góða líkamsbeitingu og endurheimt.
Ég bý að víðtækri þekkingu á líkamanum og stoðkerfinu og kenni ykkur sérvaldar stoðkerfisæfingar sem styðja við endurheimt, bæta hreyfigetu og byggja upp styrk og stöðugleika.
Hér eru fámennir hópar, persónuleg leiðsögn og góður félagsskapur.
✨ Gott aðgengi fyrir barnavagna.
📍 Tilveran Stúdíó – Garðabæ
⏰ Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 9:00–9:50.
Laus pláss fyrir nýjar mömmur!
Byrjum 30. nóv🤗