05/06/2026
Kæru fylgjendur Fjölnir handbolti,
Hér er frábær leið til að leggja hönd á plóg við að byggja upp félagið í hverfinu þínu með einföldum og áhrifaríkum hætti.
112an er stuðningsnet félagsins sem nýtur ýmissa sérkjara sem vert er að kynna sér.
Um styrki sem þennan gilda reglur um almannaheillafélög.
https://www.abler.io/shop/fjolnir/handbolti/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTgyMjk=/
04/06/2026
Pistill formanns og góðir styrktaraðilar þakka fyrir veturinn! Hvetjum fólk til að glugga í Grafarvogsblaðið!
28/05/2026
Í síðustu viku var haldin vorhátíð hjá 5. til 8. flokki. Krökkunum fannst æðislegt að skjóta á markmann meistaraflokks og einnig mældu þjálfararnir okkar skotin þeirra með hraðamæli sem mikið fjör myndaðist við. Iðkendur fengu að leika sér í salnum og var mikil gleði í húsinu. Allir fóru ánægðir heim með verðlaunskjöl sem voru afhent á lokahófinu. Við hlökkum til að sjá ykkur öll á næsta tímabili.
18/05/2026
Sara Xiao semur við Fjölni!
Sjá nánar á heimasíðu félagsins: https://fjolnir.is/2026/05/18/sara-xiao-semur-vid-fjolni/
17/05/2026
Vorhátið 5. til 8. flokks er á mánudaginn 18. maí kl. 17:00 í Dalhúsum. Hlökkum til að sjá ykkur.
12/05/2026
Lokahóf handknattleiksdeildar Fjölnis fór fram með glæsibrag.
Sjá nánar á heimasíðu félagsins.