Lyftingadeild UMFN - Massi

Lyftingadeild UMFN - Massi

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Lyftingadeild UMFN - Massi, Sports, Norðurstígur 4, Njarðvík.

Photos from Lyftingadeild UMFN - Massi 's post 08/05/2026

3 keppendur frá Lyftingadeild UMFN-Massa þau Elsa Pálsdóttir, Hörður Birkisson og Jens Kristinsson eru í Íslenska landsliðinu og voru að keppa í gær og í dag á Evrópumeistaramótinu í kraftlyftingum í búnaði. Kristleifur Andrésson þjálfari og alþjóðadómari var með þeim í för.

Í gær 7.maí kepptu tveir Íslendingar, báðir í öldungaflokki 3. Það voru þau Elsa Pálsdóttir sem keppir í -84 kg og Hörður Birkisson sem keppir í -74 kg.

Elsa opnaði í hnébeygjunni á 160 kg, lyftan fór örugglega upp en fékk hana dæmda ógilda vegna sigs. Kviðdómur hins vegar snéri við og 160 kg í hús. Í annarri hnébeygju hækkaði Elsa um 10 kg. Elsa kláraði lyftuna en dæmd ógild vegna sigs. Sama þyngd var sett á í þriðju hnébeygju en því miður náði Elsa ekki að klára lyftuna. Í bekkpressu opnaði Elsa með 90 kg en náði ekki að klára. Í annarri voru aftur 90 kg á stönginni og negldi Elsa þá lyftu örugglega. Elsa hækkaði um 7,5 kg og 97,5 kg flugu upp hjá henni og nýtt Íslandsmet. Í réttstöðulyftu flugu 165 kg upp í fyrstu lyftu hjá Elsu. Í annarri umferð voru 175,5 kg sett á stöngina, tilraun til heimsmets í Master 3. Elsa auðvitað negldi þá lyftu eins og fyrstu, þrjú hvít ljós og nýtt heimsmet í hús. Í þriðju og lokaumferð réttstöðunnar voru 185 kg sett á stöngina, Elsa mætti ákveðin á pallinn, reif stöngina upp og kláraði lyftuna af festu, bæting á eigin heimsmeti komið ! Samanlagður árangur varð 442,5 kg. Elsa tryggði sér gull í öllum þremur greinunum og Evrópumeistaratitilinn í samanlögðu. Innilega til hamingju með heimsmetin, gullin, Íslandsmetin og mótið, Elsa.

Í hnébeygju opnaði Hörður með 180 kg sem flugu upp en lyftan var bæting á hans eigin Íslandsmeti. Hann endurtók leikinn með 195 kg í annarri beygju. Í þriðju umferð fór 205 kg á stöngina og kláraði Hörður þá lyftu glæsilega, allar þrjár lyftur með þrjú hvít ljós. Flottar hnébeygjur tryggðu Herði brons í hnébeygju. Í bekkpressu opnaði Hörður á 110 kg sem flugu upp sem og 120 kg í annarri umferð. Hörður hækkaði í 125 kg í þriðju umferð sem var tilraun til nýs Íslandsmets en því miður var lyftan aðeins of þung í dag. Önnur lyftan tryggði Herði brons í bekkpressu. Í réttstöðulyftu opnaði Hörður á 190 kg en missti gripið í blálokin. Hann lét ekki deigan síga og reif upp sömu kíló í annarri umferð og kláraði lyftuna. Í þriðju og lokaumferð hækkaði Hörður í 202,5 kg en missti gripið á leið upp. Samanlagður árangur varð 515 kg. Innilega til hamingju með bronsin, Íslandsmetin og mótið, Hörður

Síðasti meðlimur íslenska hópsins keppti í dag 8.maí. Það var hann Jens Kristinsson en hann keppir í -105 kg, öldungaflokki 3. Jens opnaði á léttri 160 kg beygju sem var 5 kg bæting á Íslandsmeti. Hann endurtók leikinn með með flottri 175 kg beygju í annarri umferð. Í þriðju beygjunni voru 182,5 kg á stönginni og kláraði Jens beygjuna örugglega. Níu hvít ljós og þrjú ný Íslandsmet komin eftir beygjuna. Í bekkpressu opnaði Jens á 125 kg sem hreyfðust vel. Jens hækkaði í 137,5 kg en stöngin fór úr ferli og náði ekki að klára. Í þriðju umferð voru 137,5 aftur á stönginni en núna massaði Jens lyftuna og nýtt Íslandsmet í hús. Í réttstöðulyftu opnaði Jens á 185 kg sem hann negldi í klassík og 5 kg bæting á Íslandsmeti komið. Á stöngina voru sett 192,5 kg í annarri lyftu sem Jens kláraði örugglega. Í lokalyftunni voru 210 kg á stönginni, sem var 17,5 kg bæting á Íslandsmeti frá annarri lyftunni. Jens reif stöngina upp og kláraði mótið með stæl. Enn eitt Íslandsmetið í hús. Samanlagður árangur varð 530 kg sem er nýtt Íslandsmet. Innilega til hamingju með öll Íslandsmetin og mótið, Jens

Elsa setti eftirfarandi Íslandsmet í gær

Íslandsmet
M1
Réttstaða 185 kg -1 met
Réttstaða single lift 185 kg - 1 met
M2
Hnébeygja 160kg -1 met
Bekkpressa 90 kg og 97,5kg - 2 met
Réttstaða 165kg, 175,5kg og 185 kg - 3 met
Total endaði í 442,5kg - 3 met
Bekkpressa single lift 90 kg og 97,5 kg- - 2 met
Réttstaða single lift 165 kg, 175,5 kg og 185 kg - 3 met
M3
Hnébeygja 160kg -1 met
Bekkpressa 90 kg og 97,5kg - 2 met
Réttstaða 165kg, 175,5kg og 185 kg - 3 met
Total endaði í 442,5kg - 3 met
Bekkpressa single lift 90 kg og 97,5 kg- - 2 met
Réttstaða single lift 165 kg, 175,5 kg og 185 kg - 3 met
Samtals 30 Íslandsmet, 2 Evrópumet og 2 heimsmet inn

Hörður hann setti 3 Íslandsmet í hnébeygju og bætti sig um 34kg, jafnaði Íslandsmetið í bekkpressu og single lift, heildarbæting því 27,5kg í bætingu hjá honum.

Jens var með samtals 13 íslandsmet í dag. ( 3 í beygju, 2 í bekk, 3 í deddi, 3 í samanlögðu og 2 í single bekk)

Jens margbætti Íslandsmet í dag 08/05/2026

Jens setti 13 met í dag 💪 sjá nánar 👇

Jens margbætti Íslandsmet í dag Jens Elís Kristinsson keppti í dag fyrir hönd Íslands á EM í kraftlyftingum með búnaði sem fór fer fram í Lesa Meira

EM í kraftlyftingum með búnaði 1.-10. maí 06/05/2026

Elsa Pálsdóttir og Hörður Birkisson keppa á morgun og Jens Kristinsson keppir á föstudaginn.

EM í kraftlyftingum með búnaði 1.-10. maí Evrópumeistarmótið í kraftlyftingum með búnaði 1.-10. maí. Á mótinu er keppt í öllum aldursflokkum. Mótið er eins og oft áður Lesa Meira

Brons og gullmerki UMFN 05/05/2026

Hörður og Jens innilega til hamingju

Brons og gullmerki UMFN Í síðustu viku á aðalfundi UMFN fengu þeir Jens og Hörður viðurkenningu fyrir störf sín í þágu Lyftingadeildar UMFN – Lesa Meira

08/04/2026

Athugið að salurinn og saunan er lokuð Laugardaginn 11.apríl nk. vegna Bikarmóts í kraftlyftingum.
Við hvetjum ykkur að koma og horfa á, keppnin hefst klukkan 11.00 og gengið er inn að ofanverðu.

Aðalfundur Lyftingadeildar UMFN – Massi 17/03/2026

Minni aðalfund Lyftingadeildar UMFN – Massi á morgun miðvikudag 18.mars klukkan 20.00

Aðalfundur Lyftingadeildar UMFN – Massi Aðalfundur Lyftingadeildar verður haldinn í félagssal UMFN, 2. hæð í íþróttamiðstöð Njarðvíkur miðvikudaginn 18. mars kl. 20:00. Dagskrá fundarins eru Lesa

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Njarðvík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Website

Address


Norðurstígur 4
Njarðvík

Opening Hours

Monday 06:30 - 21:30
Tuesday 06:30 - 21:30
Wednesday 06:30 - 21:30
Thursday 06:30 - 21:30
Friday 06:30 - 20:00
Saturday 06:30 - 17:30