Afrek

Afrek

Share

Afrek er líkamsræktarstöð stofnuð af fólki sem kynntist á æfingu og hefur æft saman síðan. Góð heilsa er eilífðarverkefni og árangurinn þinn skiptir okkur máli.

Að mæta er afrek — tökum á því saman!

Photos from Afrek's post 31/12/2025

Afrek er fjögurra ára í dag!

Þegar við opnuðum dyrnar á gamlársdag árið 2021 óraði okkur ekki fyrir því að fjórum árum síðar væri Afrek orðið að öllu sem okkur dreymdi um. Takk fyrir okkur, kæru iðkendur— án ykkar væri Afrek ekkert! ❤️

Mætingin í dag var geggjuð, eins og myndirnar sýna. Gleðilegt nýtt ár! Megi 2026 færa ykkur enn fleiri afrek, stór og smá 🥳

Photos from Afrek's post 24/12/2025

Gleðileg jól! 🎄

Eins og alltaf var fjölmenni á æfingunum okkar á aðfangadag — þvílík stemning og alvöru jólasviti 💦

Hafið þið notalegt í kvöld. Sjáumst fersk yfir hátíðarnar 🙏

22/12/2025

Við eigum að sjálfsögðu jólagjöfina fyrir þau sem eiga allt 🎄 Getur einhver skilað því til Kertasníkis að fáar gjafir passi betur í skóinn?

Photos from Afrek's post 22/11/2025

Við áttum auðvitað okkar frábæru fulltrúa á WorldFit mótinu sem fór fram í dag. Hildur og Sunna þutu saman í gegnum mótið og voru í 7. sæti. Auður og Katrín Steinunn áttu líka frábæran dag og voru í 11. sæti. Keppnin var virkilega sterk með mörgum af fremstu Crossfit konum landsins innanborðs. Til hamingju með árangurinn og virkilega vel gert 💪💪😊

09/11/2025

Afreksleikarnir 2025 fóru fram í gær og það er óhætt að segja að þeir hafi verið frábær skemmtun. Takk fyrir frábært kvöld og við óskum sigurliði kvöldsins til hamingju með glæsilegan sigur 💪🙂

Photos from Afrek's post 06/11/2025

Við eigum tvo keppendur sem taka þátt í Íslandsmótinu í Crossfit sem hefst í kvöld, Glódísi og Snorra 🙂

Keppnin hefst í kvöld kl. 18:30 en einnig verður keppt á morgun og á laugardag.

Við hvetjum ykkur að mæta og styðja við bakið á okkar fólki. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá .iceland 💪💪

„Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ 06/08/2025

Okkar maður Einar Hansberg lagt mikið á sig til að vekja athygli á starfsemi Píeta samtakanna. Hér er hann í góðu spjalli í Dagmálum á mbl.is 🙏

„Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ „Fólki líður illa og við sem erum kannski búnir að vera að kynna okkur þetta vitum af þessu en ég held að það þurfi bara fleiri að vita það,“ segir Einar Hansberg Árnason.

Photos from Afrek's post 05/07/2025

Hildur Karen snýr aftur í Afreksmömmur í ágúst og skráning er hafin á vef Afreks.

Í fjarveru Hildar sáu þær Tinna Rut Þórarinsdóttir, Díana Rut Kristinsdóttir og Kolfinna Þórisdóttir um tímana. Díana Rut og Kolfinna halda áfram að þjálfa Afreksmömmur ásamt Hildi og munu þær Kristín Marja Ómarsdóttir og Guðný Ósk Karlsdóttir vera þeim til halds og trausts. Tinna Rut er að flytja til Þýskalands og við kveðjum hana með söknuði.

Afreksmömmur eru afar vinsælir tímar sem samanstanda af þol- og styrktarþjálfun þar sem sérstök áhersla er lögð á þá líkamshluta sem barnsburður og fæðing hefur hvað mest áhrif á. Hildur Karen hefur haldið utan um Afreksmömmur frá opnun Afreks í lok árs 2021 og á þeim tíma hefur fjöldinn allur af verðandi og nýbökuðum mæðrum skráð sig í styttri eða lengri tíma.

Hildur segir markmið þeirra með þjálfuninni sé að miðla reynslu, þekkingu og ástríðu til iðkenda í von um að þær upplifi öryggi í hreyfingu á meðgöngu og eftir fæðingu, meira sjálfstraust og betri líðan í sterkari líkama.

„Ég upplifði mig svolítið týnda hvað varðaði hreyfingu sem ég „mætti“ stunda á fyrri meðgöngunni minni og eftir fæðingu dóttur minnar,“ segir hún. „Nú annarri meðgöngu, fæðingu og barni síðar er ég reynslunni ríkari. Eftir að hafa átt keisarafæðingu og í þetta sinn náttúrulega fæðingu, ásamt því að hafa bætt við mig meiri þekkingu í þjálfun á meðgöngu og eftir fæðingu, hlakka ég svo til að fá að þjálfa Afreksmömmurnar mínar aftur.“

Photos from Afrek's post 17/05/2025

Anna, Glódís og Helga tóku þátt í Heljarþraut Mjölnis í dag og gerðu sér auðvitað lítið fyrir og unnu keppnina. Eðlilega. Svakalegt lið! Innilega til hamingju :) Þið eruð sannarlega 💪

Photos from Afrek's post 23/02/2025

Fyrsta árlega borðtennismót Afreks fór fram á laugardag og stemningin var mögnuð! 🙏 S*x iðkendur úr Afreki mættu til leiks og mótið var æsispennandi. Eftir að allir höfðu leikið við alla voru úrslitin eftirfarandi:

1. sæti Freyr Pálsson
2. sæti Hjálmar Karlsson
3. sæti Ólafur Páll Geirsson

Verðlaunin voru ekki af verri endanum; borðtennisspaðar, bíómiðar og að sjálfsögðu Afrekssokkarnir, sem rjúku nú út úr Afreksbúðinni. Við héldum svo partí um kvöldið og skemmtum okkur saman í ýmsum leikjum. Uppistandarinn Guðmundur Einar fór með gamanmál og okkar allra besta Anna Margrét stýrði einhvers konar Pictionary-leik, sem verður ekki útskýrður hér en þú getur skrollað til hliðar til að sjá sigurvegarana.

Þangað til næst! 🥳

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Skógarhlíð 10
Reykjavík
105