SVFR

SVFR

Share

Stangaveiðifélag Reykjavíkur / Reykjavik Angling Club

Laxinn mættur í Langá! - SVFR 05/06/2026

Laxinn mættur í Langá!

Laxinn mættur í Langá! - SVFR Fyrsti laxinn í Langá renndi sér í gegnum teljarann kl 18:01 í gær, þessi glæsilega 71 cm hrygna sem sést á meðfylgjandi mynd. Samkvæmt teljara eru 2 komnir í gegn en einungis náðist mynd af öðrum þeirra. Þetta telst ansi góður fyrirboði fyrir veiðina, yfirleitt mætir laxinn ...

04/06/2026

Hann Hjölli okkar fór fyrir skömmu í hópi góðra vina að veiða stóru urriðana á Miðsvæðinu í Laxá í Aðaldal. Hann var vægast sagt heillaður og ákvað að rita nokkur orð um þessi fyrstu kynni sín af svæðinu

Smelltu á fréttina í fyrstu athugasemd til að lesa nýjustu veiðisögu Hjölla.

30/05/2026

Kráká til SVFR!

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að samið hefur verið við Veiðifélag Krákár og bætist þetta sögufræga silungssvæði við breitt framboð SVFR.

Kráká er 4 stanga silungsá þar sem veiðist bæði urriði og vænar bleikjur, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Stangardagurinn kostar aðeins 5.000 kr. með félagsafslætti og eru laus veiðileyfi nú þegar komin í vefsölu. Ef þú ert á leiðinni norður og langar að lengja t.d. veiðiferðina þína á Miðsvæðinu, Laxárdal eða Mývatnssveit, þá er kjörið að koma við í Kráká.

Frétt í fyrstu athugasemd.

28/05/2026

Laxá í Mývatnssveit - forfallastangir.

Góðan daginn, SVFR er að auglýsa tvær forfallastangir í Laxá í Mývatnssveit í sumar fyrir félagsmenn sina. Um er að ræða eina stöng 10-13.6, einna besti tíminn í ánni og eina stöng 1-4.7 sem er frábær tími líka.

Þessar stangir seljast með þeim skilyrðum að ekki fylgir þeim endurbókunarréttur, eigendur stanganna vilja halda endurbókunarrétti og þær eru seldar sem slíkar.

Áhugasamir hafi samband við skrifstofu SVFR í síma 568-6050 eða á [email protected]

24/05/2026

Minnum félagsmenn á að stilla á RÚV í kvöld.

Gott að mæta tímanlega fyrir framan skjáinn.

Photos from SVFR's post 22/05/2026

Löng helgi framundan og spurning er...hvar ætlar þú að veiða??🎣
Eigum laus veiðileyfi í Leirvogsá, Korpu/Úlfarsá og Brúará. Svo ef þig langar að skella þér í eðal urriða veiði á norðurlandinu þá eigum við laus holl á Miðsvæðinu í Laxá í Aðaldal strax eftir helgi!

Nældu þér í veiðileyfi í vefsölunni: https://svfr.is/vefsala/ 👈

20/05/2026

🎣 Kastnámskeiðin í maí hafa slegið í gegn! 🎣

👏 Vinir okkar hjá Veiðiskólanum eiga hrós skilið fyrir frábært starf með ungu veiðifólki. Nýverið tóku þeir á móti hátt í 50 börnum og ungmennum, 10–19 ára, á byrjendanámskeiðum við Rauðavatn.

📅 Vegna mikillar aðsóknar verður boðið upp á aukanámskeið laugardaginn 23. maí frá 10:00–12:00.

Skráning fer fram hér:
https://svfr.is/view/flugukastnamskeidums/

✅ Veiðiskólinn á enn laus pláss á tvíhendunámskeiði 26. maí kl. 19:00 við Rauðavatn. Þeir sérsníða einnig námskeið fyrir alls kyns hópa.

❌ Námskeiðin hjá Jóa og Klaus Frimor eru uppseld.

Photos from SVFR's post 18/05/2026

Við hvetjum alla til að fylgjast með story hjá okkur og fylgja ævintýrum Árni Kristinn, Unnur Guðný og Aron Jarl við veiðar á Miðsvæðinu í Laxá í Aðaldal 🎣

Þau eru nú þegar búin að landa 16 urriðum og missa annað eins! Fiskur að vaka um alla á og hún bókstaflega iðar af lífi. 😃

Þetta er veiðisvæði sem ALLIR veiðimenn þurfa að prófa!

Eigum laus veiðileyfi og möguleiki á að skipta hollum niður í t.d. hálfan og hálfan.

https://bit.ly/lmidvefsala 👈

14/05/2026

Hvernig væri að nýta þennan fína frídag við árbakkann? Eigum laus veiðileyfi í dag og út helgina í Brúará, Leirvogsá, Korpu og á Miðsvæðinu í Laxá í Aðaldal! 🎣

https://svfr.is/vefsala/ 👈

12/05/2026

Gljúfurá áfram hjá SVFR næstu árin! 👏

SVFR og Veiðifélag Gljúfurár hafa skrifað undir nýjan samning sem tryggir félagsmönnum áframhaldandi aðgang að þessari einstöku veiðiperlu sem hefur verið hluti af SVFR síðan árið 1982.

Á síðasta ári var ráðist í umfangsmiklar endurbætur á veiðihúsinu þar sem aðstaðan var tekin í gegn og nýjum heitum potti komið fyrir. Næst á dagskrá eru vegabætur sem munu stórbæta aðgengi að vinsælum veiðisvæðum á neðsta svæðinu.

Það eru sannarlega gleðitíðindi að saga Gljúfurár og SVFR haldi áfram eftir 44 farsæl ár. 🎣

Frétt í fyrstu athugasemd.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Suðurlandsbraut 54
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 12:00 - 16:00