03/06/2026
Undirbúningur fyrir hlaup ‼
Mjög mikilvægt er að allir þátttakendur kynni sér vel skipulag laugavegshlaupsins. upplýsingarnar um skipulag eru fyrst og fremst ætlaðar til þess að auka öryggi þátttakenda enda mikilvægt fyrir skipuleggjendur hlaupsins og starfsmenn þess að geta gengið út frá því að þátttakendur viti hvers eðlis laugavegshlaupið er. að auki er mjög mikilvægt að þátttakendur undirbúi sig vel fyrir þá miklu áskorun sem hlaupið er.
Sjáumst 11. júlí!
----------------------------------
Race preparation ‼
It is very important that all participants familiarize themselves thoroughly with the organization and procedures of the laugavegur ultra marathon. the information provided about the event is primarily intended to enhance participant safety, as it is essential for the race organizers and staff to be able to assume that participants understand the nature of the laugavegur ultra marathon. furthermore, it is very important that participants prepare themselves well for the significant challenge that the race presents.
See you on the 11th of July!
01/06/2026
40 dagar í Laugavegshlaupið 🙌
Við getum ekki beðið eftir því að taka á móti ykkur í endamarki þann 11. júlí 🫶
-----------------------------------
40 days until the Laugavegur Ultra Marathon 🙌
We cannot wait to see you at the finish line on the 11th of July 🫶
22/05/2026
50 dagar í Laugavegshlaupið 2026 🙌
Stemningin er farin að magnast, skórnir að safna kílómetrum og ævintýrið á hálendinu nálgast óðfluga. ⛰️🏃♀️🏃♂️
Hvort sem þú ert að taka þátt í fyrsta sinn eða snúa aftur á slóðirnar, þá bíður einstök upplifun í einni fallegustu hlaupaleið landsins. Nú er tíminn til að njóta undirbúningsins, safna orku og hlakka til dagsins! 💥
Hver er staðan hjá ykkur – hvernig gengur undirbúningurinn? 👟
18/05/2026
Auka rútusæti ‼
Það voru að bætast við auka rútusæti frá Reykjavík til Landmannalauga þann 11. júlí en það eru mjög takmörkuð sæti í boði, þannig það er um að gera á næla sér miða sem fyrst 🙌
Miðasala 👉 https://www.corsa.is/laugavegurinn-ultra
--------------------------------------------
Additional bus seats ‼
Extra bus seats have just been added from Reykjavík to Landmannalaugar on July 11th, but availability is very limited, so make sure to grab your ticket as soon as possible 🙌
Ticket sale 👉 https://www.corsa.is/laugavegurinn-ultra
07/05/2026
Laugavegshlaupið væri einfaldlega ekki það sama án alls þess frábæra starfsfólks og sjálfboðaliða sem leggja hönd á plóg.
Bakvið hvert hlaup eru ótal hendur sem mæta snemma, leysa vandamál, halda utan um smáatriðin og sjá til þess að allt gangi upp, oft án þess að mikið fari fyrir því.
Við erum ótrúlega þakklát fyrir ykkur öll sem gerið þetta mögulegt, ár eftir ár. Það er ómetanlegt að hafa svona öflugan hóp með okkur. Takk 💛
Sjáumst 11. júlí 🤝
-------------------------------------
Laugavegur Ultra Marathon simply wouldn’t be the same without the incredible staff and volunteers behind it.
Behind every race are countless people showing up early, solving problems, handling the details, and making sure everything comes together, often without much recognition.
We’re truly grateful to everyone who helps make this possible, year after year. Having such a strong team behind the race is something we never take for granted. Thank you 💛
See you on the 11th of July 🤝
02/05/2026
70 dagar í Laugavegshlaupið 2026 🙌
Laugavegur Ultra Marathon er meira en keppni. Þetta er hrein gleði í sinni villtustu mynd. 🏔️
Hér hlaupa þátttakendur í gegnum ótrúlega íslenska náttúru, yfir fjöll og dali, þar sem hver kílómetri er upplifun og hvert skref segir sögu.
Stemningin er einstök, blanda af ævintýraþrá, þrautseigju og samkennd. Þú finnur fyrir tengingunni við náttúruna, við fólkið í kringum þig og við sjálfan þig.
Þetta er ekki bara hlaup. Þetta er ferðalag fullt af gleði 🤝
22/04/2026
80 dagar í Laugavegshlaupið 2026 🙌
Þetta er ekki bara hlaup.
Þetta er samtal milli þín og náttúrunnar.
Sjáumst 11. júlí 🤝
-----------------------------
80 days until the 2026 Laugavegur Ultra Marathon 🙌
This is not just a race.
It’s a conversation between you and the wild.
See you on the 11th of July 🤝