Seinni níu

Seinni níu

Share

Hlaðvarp um golf í þágu þjóðar. Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson.

01/06/2026

Baddý og öll fjölskyldan hefur farið holu í höggi á sama golfvelli⛳

Við fengum til okkar frábæran gest í vikunni því Bjarney Sonja Ólafsdóttir kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hún gengur alla jafna undir nafninu Baddý og er búsett í Frankfurt, Þýskalandi þar sem hún rekur hugbúnaðar fyrirtækið 1xInternet.

Baddý var skikkuð í golf sem barn en hún kemur úr mikilli golffjöldskyldu. Hún stundaði íþróttina fyrstu árin frekar af skyldurækni en af mikilli gleði enda var hún öflug í handbolta sem átti betur við hana á unglingsárum. Baddý fékk hins var golfdelluna á nýjan leik fyrir s*x árum og er í dag með um 16 í forgjöf.

Baddý segir okkur frá því þegar hún fór holu í höggi á 18. holu Öndverðarnesvallar en svo kom í ljós að öll fjölskylda hennar hefur tekist að fara holu í höggi á þeim velli. Það er í raun alveg magnað.

Við fáum líka að heyra hvernig golfið er í Þýskalandi en fjölmargir frábærir golfvellir eru í næsta nágrenni við Frankfurt. Frábær þáttur sem kemur á óvart!

Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify🎧👇
https://open.spotify.com/episode/4oEmaHwyAWUSdp25QDNmdv?si=2ROmA # #

Seinni níu er í boði👇
💊 Unbroken | 👟 ECCO | 🚗 XPENG | 🧼 Lindin bílaþvottastöð
🏌️ Golfsvítan | 🔋 HS Orka | 😎 Nivea | 🏠 Betri Stofan
🏌️‍♀️ Golfskálinn | 👷‍♂️ Giggo | 🔨 BYKO
⛳ Kjaran | 🍕 Eldofninn | 👣 Gehwol

26/05/2026

Sindri Snær fór handarbrotinn í golfferð⛳

Við fengum athafnamanninn Sindra Snæ Jensson til okkar í Seinni níu. Hann er í fjölþættum fyrirtækjarekstri allt frá pizzastaðnum Flatey og yfir í næturklúbbinn Auto.

Sindri hóf að leika golf fyrir s*x árum þegar knattspyrnuferlinum lauk og hefur náð fínum tökum á íþróttinni. Hann varð algjörlega sjúkur í golf fyrstu árin og er í dag með ca. 13 í forgjöf.

Í þættinum er aðeins farið yfir ferð Sindra ásamt góðum mönnum til Írlands þar sem leiknir voru margir af bestu völlunum á Dublin svæðinu. Sindri kom með frábært draumaholl og fór einnig yfir þá kylfinga sem honum þykir vera svalastir í atvinnumannagolfinu.

Einnig ræðum við aðeins íslenska golffatamerkið Br**ta en þar er Sindri stór hluthafi. Sindri segir okkur einnig magnaða sögu þegar hann fór í golfferð þrátt fyrir að vera handarbrotinn. Höndin var mikið í klakaboxinu í þeirri ferð. Frábær þáttur á léttum nótum eins og alltaf.

Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify🎧👇
https://open.spotify.com/episode/4hYSfJdnnCUsIuo5KOurMo?si=5lzS8fWySq-YOYCdc8B4ug

Seinni níu er í boði👇
💊 Unbroken | 👟 ECCO | 🚗 XPENG | 🧼 Lindin bílaþvottastöð
🏌️ Golfsvítan | 🔋 HS Orka | 😎 Nivea | 🏠 Betri Stofan
🏌️‍♀️ Golfskálinn | 👷‍♂️ Giggo | 🔨 BYKO
⛳ Kjaran | 🍕 Eldofninn | 👣 Gehwol

19/05/2026

Saklaus lygi kom Ólafi Hand í vandræði á Myrtle Beach⛳

Við fengum til okkar frábæran gest í Seinni níu þegar Ólafur William Hand kom í heimsókn til okkar. Hann hefur lengi verið viðloðandi golfíþróttina og setið í stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur síðastliðin tíu ár.

Í þættinum er komið víða við. Ólafur segir okkur aðeins frá golfinu sínu en hann hefur verið mjög víðförull og spilað á marga heimsþekkta golfvelli. Má þar einna helst nefna Pebble Beach, en einnig sagði hann okkur frá ótrúlegum golfvelli í Skotlandi sem toppar allt.

Við fórum einnig aðeins yfir þær metnaðarfullu breytingar sem eru að eiga sér stað í Grafarholti og munu bæta völlinn til muna. Draumahollið er á sínum stað og svo fáum við kraftröðun yfir fimm bestu golfbækurnar sem Óli hefur lesið.
Svo fengum við að heyra frábæra sögu þar sem saklaus lygasaga fór aðeins úr böndunum í Myrtle Beach.

Frábær þáttur á léttum nótum að venju!
Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify🎧👇
https://open.spotify.com/episode/0TPeh6SbgXP11Wgis9So9S?si=0wpNzrNAQ-m6ELhQQz2qjw

Seinni níu er í boði👇
💊 Unbroken | 👟 ECCO | 🚗 XPENG | 🧼 Lindin bílaþvottastöð
🏌️ Golfsvítan | 🔋 HS Orka | 😎 Nivea | 🏠 Betri Stofan
🏌️‍♀️ Golfskálinn | 👷‍♂️ Giggo | 🔨 BYKO
⛳ Kjaran | 🍕 Eldofninn | 👣 Gehwol

15/05/2026

Bjarni beygir sig þúsund sinnum á dag 👨‍🌾🚜⛳️

Við fengum afar fróðan gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna því Bjarni ÞórHannesson, vallarstjóri hjá Golfklúbbnum í Mosfellsbæ, fór yfir stöðu mála á golfvöllum landsins í skemmtilegu spjalli.

🌿Bjarni var mjög efnilegur kylfingur á yngri árum en slök frammistaða hans með pútternum varð honum oft að falli. Hann heillaðist snemma af því að starfa við golfvallaumhirðu og sótti sér menntun í Skotlandi í þeim fræðum.

👷‍♂️ Í þættinum fer Bjarni yfir þessi fólknu fræði sem grasvallaumhirða er í raun. Hann segir okkur frá því hvað fer mest í taugarnar á golfvallarstarfsmönnum þegar kemur að framgöngu kylfinga á golfvellinum. Bjarni valdi einnig stórmerkilegt draumaholl þar sem nokkrir af helstu frumkvöðlum golfsins koma við sögu.

⏳Einn lengsti þátturinn í sögu Seinni níu en á fræðilegum og léttum nótum.
Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify🎧👇
https://open.spotify.com/episode/3NYE2h7iKqbbjirCZmjFIW?si=U7Q4wn8ET6myeNV3oHQc9g

Seinni níu er í boði👇
💊 Unbroken | 👟 ECCO | 🚗 XPENG | 🧼 Lindin bílaþvottastöð
🏌️ Golfsvítan | 🔋 HS Orka | 😎 Nivea
🏌️‍♀️ Golfskálinn | 👷‍♂️ Giggo | 🔨 BYKO
⛳ Kjaran | 🍕 Eldofninn | 👣 Gehwol

05/05/2026

Golfmót ION hótel & Seinni Níu | Matur, skemmtun & gisting⛳️

ION hótel ásamt Seinni Níu bjóða upp á glæsilegan golfviðburð dagana 3.–4. júní nk.

Innifalið í verði – gildir fyrir tvo í herbergi:
⛳️Þátttaka í golfmóti á tveimur frábærum völlum (Kiðjaberg og Öndverðarnes)
🍸Fordrykkur
🍴Kvöldverður og gisting á ION Adventure Hotel
🎙️Kvöldskemmtun með Seinni Níu – Logi Bergmann og Jón Júlíus
☕Morgunverður daginn eftir
💆🏼Aðgangur að spa og heitum potti
🏆Vinningar í boði

Fyrirkomulag:
👩‍❤️‍👨Spilað er í paramóti („betri bolti“) – skemmtilegt og aðgengilegt fyrir alla. Ræst verður á sama tíma á öllum teigum.

3️⃣. júní:
Fyrri hringur spilaður á Kiðjaberg golfvelli - ræst um kl 11
- Að loknum leik er haldið á ION Adventure þar sem innritun hefst
- Mælt er með að slaka á í spa-inu og heita pottinum
- Fordrykkur og kvöldverður í glerskála hótelsins
- Logi og Jón Júlíus sjá um létta og skemmtilega kvöldstund

4️⃣. júní:
- Morgunverður
- Útritun
- Seinni hringur spilaður á Öndverðarnes golfvelli

Frábærir vinningar í boði - & takmarkað pláss!

Verð aðeins 86.500 kr.- á par fyrir allan pakkann💸
Skráning fer fram hér👇
https://store.ioniceland.is/collections/vidburdir/products/ion-golf-x-seinni-niu?variant=55653410209865

04/05/2026

Liðleika Lilja þolir ekki óumbeðin ráð frá eiginmanninum🤭⛳🤸‍♀️

Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna. Lilja Sigurgeirsdóttir sem er þekkt sem Liðleikja Lilja kom til okkar. Hún hefur um nokkurra ára skeið sérhæft sig í að þjálfa fólk sem vill auka liðleika og bæta hreyfigetu sína.

🧘‍♀️Lilja byrjaði sjálf í golfi fyrir tveimur árum og féll gjörsamlega fyrir golfíþróttinni. Hún er í dag í Golfklúbbi Mosfellsbæjar og nær að koma golfi að í flest sín samtöl.
Þó hún hjálpi meðal annars afrekskylfingum við að auka liðleika þá skilur hún ekkert í því hversu langan tíma það tekur að verða sjálf góð í golfi.

💪Í þættinum velur Lilja sitt draumaholl og kemur með kraftröðun yfir þau fimm atriði sem fara mest í taugarnar á henni á golfvellinum.

👌Frábær þáttur og mjög fróðlegur. Lilja fer meðal annars yfir þær teygjur sem kylfingar ættu að stunda til að bæta liðleika og leysa úr læðingi aukinn kraft úr golfsveiflunni.

Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify🎧👇
https://open.spotify.com/episode/3WLfvAEIZV41thrSvmcPTY?si=dvzEm3NaTF-j5zvPKUvXvw

Seinni níu er í boði👇
💊 Unbroken | 👟 ECCO | 🚗 XPENG | 🧼 Lindin bílaþvottastöð
🏌️ Golfsvítan | 🔋 HS Orka | 😎 Nivea
🏌️‍♀️ Golfskálinn | 👷‍♂️ Giggo | 🔨 BYKO
⛳ Kjaran | 🍕 Eldofninn | 👣 Gehwol

28/04/2026

15% afsláttur af öllum fatnaði í Golfskálanum⛳

🏌️‍♀️Nú bjóðum við kylfingum upp á meiriháttar tækifæri því næstu daga er 15% afsláttur af öllum fatnaði hjá Golfskálanum sé verslað í vefverslun. Það eina sem þarf að gera er að nota kóðann seinni9 og þá færðu sjálfkrafa 15% afslátt.

✨Hvort sem þú ert að fara að kaupa þér regngalla, bol eða derhúfu þá er allt á 15% afslætti. Golfskálinn er með frábæran fatnað frá vörumerkjum eins og Glenmuir, Malbon, Puma, Alberto, PING, Titleist o.fl.

⏳Afsláttarkóðinn gildir út sunnudaginn 3. maí og við hvetjum kylfinga til uppfæra golf dressið fyrir sumarið í Golfskálanum.

Hægt er að versla fatnað hér👇
https://golfskalinn.is/voruflokkur/fatnadur/?utm_source=seinni9&utm_medium=social&utm_campaign=seinni9

27/04/2026

Hrafnhildur elskar að spila golf á nóttunni⛳🌃

Við fengum góðan gest í Seinni níu þessa vikuna. Hrafnhildur Skúladóttir, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í handbolta, þjálfari og nú ökukennari kom í heimsókn til okkar.

Hrafnhildur er búsett í Vestmannaeyjum og er fjórar mínútur á golfvöllinn frá heimili sínu. Við ræðum aðeins golfið í Eyjum og það frelsi sem fylgir því að komast nær alltaf í golf.

Hrafnhildur segir okkur frá uppáhalds golfholunum sínum í Eyjum, hún kemur með skemmtilegt draumaholl og einnig mjög áhugaverða kraftröðun yfir þau golfsvæði sem hún væri til í að heimsækja í golfferðum á næstu árum.

Frábær þáttur á mjög léttum nótum að venju. Þáttinn má finna á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify👇
https://open.spotify.com/episode/0q2Bmo6Bvf0CiULxChXe8s?si=LMeiscquRQmlas84OcTjjA

Seinni níu er í boði👇
💊- Unbroken 👟- ECCO 🥻 - J. Lindeberg - ntc.is 🚗- XPENG - xpeng.com/is 🧼- Lindin bílaþvottastöð 🏌️‍- Golfsvítan🔋- HS Orka 😎 - Nivea🏌️‍♀️- Golfskálinn Golfverslun & Golfferðir 👷‍♂️- Giggo 🔨- BYKO ⛳- Kjaran 🍕- Eldofninn

20/04/2026

Jón Halldórsson vill langa golfhringi⏳⛳

Við fengum frábæran gest í Seinni níu því formaður HSÍ, Jón Halldórsson, heiðraði okkur með nærveru sinni. Jón er að snúa aftur á golfvöllinn eftir að hafa undirgengist hnjáliðaskipti og nú á að taka golfið með trompi í sumar.

Jón segir okkur aðeins frá því hvernig hann endaði sem formaður HSÍ og því verkefni sem er framundan þar. Við ræddum þó aðallega um golf og þar kom í ljós Jón er með um 18 í forgjöf og byrjaði í golfi eftir veðmál við kunnan handboltaþjálfara.

Við fórum að sjálfsögðu yfir draumahollið sem var mjög óvænt að þessu sinni. Jón kom einnig með kraftröðun á þeim landsliðsmönnum í handbolta sem hann telur líklegt að séu bestir í golfi í landsliðshópi karla.

Frábær þáttur á mjög léttum nótum að venju. Þáttinn má finna á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify👇
https://open.spotify.com/episode/01Un7RzGUaEleH1WhfUFVB?si=4l46uOj0QY6tgRbyNpJK7w

Seinni níu er í boði👇
💊- Unbroken 👟- ECCO 🥻 - J. Lindeberg - ntc.is 🚗- XPENG - xpeng.com/is 🧼- Lindin bílaþvottastöð 🏌️‍- Golfsvítan🔋- HS Orka 😎 - Nivea🏌️‍♀️- Golfskálinn Golfverslun & Golfferðir 👷‍♂️- Giggo 🔨- BYKO ⛳- Kjaran 🍕- Eldofninn

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Borgartún 35
Reykjavík
105