Kæru félagar
Vegna Voucher úthlutunar
Eindagi félgasgjalda FGF er 1. júní 2026. Þann 2. júní verur listi yfir þá sem hafa greitt félagsgjaldið, sendur á þá golfklúbba sem eru með Voucher kerfi. Í framhaldi af því senda golfklúbbarnir Voucher á þá félagsmenn. Þess ber að geta að klúbbarnir óska eftir Golfbox númeri í tengslum við úthlutun á Voucher.
Kveðja
Stjórn
Frímann - Golfklúbbur Frímúrara
FGF Frímann golfklúbbur Frímúrara er ætlaður frímúrarabræðrum og mökum þeirra. Frímann Golfklúbbur Frímúrara, skammstafað FGF.
Tilgangur og markmið FGF er að glæða og viðhalda áhuga frímúrara og fjölskyldna þeirra á golfíþróttinni. FGF stendur fyrir golfmótum og annarri
félagsstarfsemi sem tengist íþróttinni og stuðlar að tilgangi og markmiðum klúbbsins.
Öllum bræðrum innan Frímúrarareglunnar á Íslandi, mökum þeirra og niðjum er heimill
aðgangur að FGF.
Sælir félagar Uppfært 10.05.26
Búið er að senda út greiðsluseðla fyrir árgjaldi í Frímann. Félagsgjaldið var hækkað á síðasta aðalfundi í kr. 12.000,- pr félaga. Hægt er að sjá umfjöllun á fgf.is
Búið er að staðfesta eftirfarandi velli sem vinavelli okkar.
Það eru 7 vellir sem eingöngu verður hægt að njóta fríðinda gegn því að sýna wouchera sem sendir verða til ykkar síðar í mánuðinum. Því er mikilvægt að emailið ykkar sé skráð( systir og niðjar fá senda wouchera á mail sem þau eru með skráð hjá okkur)
Gleðilegt Golfsumar
Frímann
Vinavellir 2026
Norðurland
Golfklúbbur Skagafjarðar kr 2.500 9
Golfklúbbur Ós kr 2.500 Daggjald
Golfklúbbur Siglufjarðar kr 2.750 9 Wouchera
Golfklúbbur Fjallabyggðar kr 3.000 9
Golfklúbburinn Hamar kr 2.750/4.750 9/Hjónagjald
Golfklúbbur Akureyrar kr 6.540 18 Woucher
Lundsvöllur Fnjóskadal kr 2.000 9
Austurland
Golfklúbbur Egilsstaða kr 1.750 / 2500 9 eða 18
Golfklúbbur Fjarðarbyggðar kr 2.500 Daggjald
Golfklúbbi Byggðarholts Eskifirði kr 2.500
Golfklúbbur Hornafjarðar kr 2.500 9
Suðurland
Golfklúbburinn Flúðir kr 3.300 / 4.900 18 virka/helgar Woucher
Golfklúbbur Grindavíkur kr 3.000 18
Golfklúbbur Brautaholts kr 5.900 18
Golfklúbbur Úthlíð kr 3.000 9
Golfklúbbur Hellu kr 3.500 18 Woucher
Kiðjaberg kr 6.300 18 Mán-fimmtud
Hellishólar kr 3.400 9 og 18
Golfklúbburinn Dalbúi kr 2.000/3.000 virkir/helgar Woucher
Golfklúbbur þorlákshafnar kr. 4.700 18 Woucher
Golfklúbbur Suðurnesja kr 4.000 18 Woucher
Vesturland
Golfklúbburinn Vestarr kr 1.500 9
Glanni Borgarfirði kr 2.500 Daggjald
Golfklúbburinn Mostri kr 3.000 9eða 18
Golfklúbbur Ísafjarðar kr 3.000 18
Þessir vellir munu verða vinavellir, en eftir að ganga frá verðum.Klárum það í vikunni.
Golfklúbbur Öndverðanes 18 mán-fimmtu
Blessaðir br mínir
Opnað er fyrir skráningu á bræðramótið á Hellu í dag kl. 12.00. Skráning er í golfboxinu, opin mót 6 júní 26
kveðja
Frímann
Sælir félagar
Endalok vetrarstarfs okkar er þann 01.maí 26. Þá hækkar gjaldið í golfherma er niðurgreiðsla okkar fellur úr gildi. En menn geta áfram notið afsláttarverðs er við höfum samið um fyrir okkar félaga.
Nú líður að opnun valla og vinna við vinavelli er að ljúka og stefnir í að þeim fjölgi um 2-3 frá því í fyrra. Við stefnum á að senda út innheimtu félagsgjalda í lok næstu viku og á sama tíma sendum við út hvaða vinavellir verða í ár. 6 golfvellir verða með Golfnext(áður golfmore) þar virkjast vinavallasamningar ca 1 júní og verða sendir út voucherar frá golfnext. Bræðramðótið verður þann 6 júní og opnað verður fyrir skráningu 5 maí.
kveðja
Frímann
27/03/2026
Verðlaunaafhending fyrir hermamótaröð Frímanns fór fram í dag.
Leiknir voru 15 vellir vítt og breitt um heim. Góð þátttaka var í mótaröðinni. Veitt voru stig eftir árangri í hverju móti. 7 bestu hringir hjá hverjum einstakling töldu til verðlauna.
Úrslit voru eftirfarandi:
1. sæti Ársæll Guðmundsson Huginn/Akri með 507 stig.
2.sæti Elísabet Valdimarsdóttir systir Akri með 407 stig
3.sæti Gunnhildur Harðardóttir systir Akri með 456 stig
Til gamans má geta þess að Ársæll og Gunnhildur eru hjón og óskum við þeim öllum til hamingju með sigurinn.
Verðlaun voru gjafakort frá Berjaya hótel á Íslandi sem gildir í mat, spa eða gistingu allt eftir hentugleika hvers og eins.
23/03/2026
Frimann golfmót Final Season var haldið í Golfhöllinni að Granda á laugardaginn 21.3
Skemmtileg samverustund í góðum félagsskap.
Boðið var uppá pizzu, bjór og gos.
Sigurvegarar voru eftirfarandi.
Punktakeppni
1.sæti Kristján D. Sigurbergsson 49 punktar Hamar
2.sæti Guðmundur R Magnússon 41 punktur Mímir
3.sæti Ásmundur Magnússon 36 punktar Mímir.
Höggleikur
1.sæti Guðjón Gunnssteinsson 73 högg Hlér
2.sæti Ásmundur Richardsson 75 högg Gimli
3.sæti Hrafnkell Tulinius 77 högg Mímir.
Mótinu var slitið með verðlaunaafhendingu, gjafabréf frá Berjayahótel á Íslandi
Þökkum þátttöku.
Úrslit úr vetrarmótaröð Frímanns ættu að liggja fyrir í vikunni og verða tilkynnt hér.
kveðja
Stjórn
16/03/2026
LOKA ÚTKALL.
Bræðra og systra hermamót á laugardag.
Lokað verður fyrir skráningu 17 mars kl. 22.
Endilega skráið ykkur í þetta lokamót vetrardagskrá hjá okkur.
Laugardaginn 21 Mars verður Trackman Golfmót Frímans haldið . Það verður haldið í Golfhöll Granda.
Mótið byrjar kl.14.00 - 17.00 Til að geta tekið þátt í þessu móti verður við komandi að vera með Trackmann forgjöf.
ATH. Það eru aðeins 44 sem komast í þetta mót. Þannig fyrstir koma ,fyrstir fá . Eftir það fara menn á biðlista.
Raðað verður í holl.
Mótsgjaldið er 7.000 kr.og
innfalið er 1 Bjór og Pizzu sneið eða Gos
og Pizzu sneið.
Verðlaun fyrir 3 efstu sæti.
Skráning er á meðfylgjandi link:
Skráning í Trackman Golfmót Frímans. Laugardaginn 21 Mars verður Trackman Golfmót Frímans haldið . Það verður haldið í Golfhöll Granda. Mótið byrjar kl.14.00 - 17.00 Til að geta tekið þátt í þessu móti verður við komandi að vera með Trackmann forgjöf. ATH. Það eru aðeins 44 sem komast í þetta mót. Þannig ...
Laugardaginn 21 Mars verður Trackman Golfmót Frímans haldið . Það verður haldið í Golfhöll Granda.
Mótið byrjar kl.14.00 - 17.00 Til að geta tekið þátt í þessu móti verður við komandi að vera með Trackmann forgjöf.
ATH. Það eru aðeins 44 sem komast í þetta mót. Þannig fyrstir koma ,fyrstir fá . Eftir það fara menn á biðlista.
Raðað verður í holl.
Mótsgjaldið er 7.000 kr.og
innfalið er 1 Bjór og Pizzu sneið eða Gos
og Pizzu sneið.
Verðlaun fyrir 3 efstu sæti.
Skráning er á meðfylgjandi link:
https://forms.gle/4mdsj6ZXvBQjzn4z9
Kæru Frímanns félagar!
Undanfarna 4 mánuði hefur aðsókn í herma á vegum Frímann verið gríðarleg, svo mikil reyndar að sjóðir klúbbsins eru nánasst á þrotum. Við njótum áfram gríðarlega afslátta, sérlega hjá Golfhöllinni á Granda (allt að 40%) fyrir niðurgreiðslu. Vegna þessa þá höfum við ákveðið að lækka niðurgreiðslu í herma á okkar vegum til að byrja með á þann veg að eftirfarandi reglur gilda.
1. 1000 kr/klst á hermi í stað 2000 áður
2. Hámark 2 klst á hvern félaga í hvert sinn á 1 hermi eingöngu.
3. Viðbótartíma umfram 2 klst fá félaga áfram afsláttinn, enga niðurgreiðslu af hálfu Frímann!!
Við væntum skilnings og eins að Frímann er ekki hugsað til að niðurgreiða golfiðkun vina félaga í Frímann, bókið því einungis tíma fyrir YKKUR og bætið frekar öðrum við hvar "vinurinn" og/eða " vinkonan" greiðir hinn klukkutímann á sínum kjörum.
Þetta er okkar fyrsta skref, ég bið ykkur, bræður og systur að ganga að virðingu og hógværð um okkar kjör. Ég vill vekja athygli á að árgjald í Frímann er Kr.6000 (fram að aðalfundi 13.3 nk v/2025 starfsársins) og upphaflega hugsað til að taka þátt í vinavallagjaldi, áður en hermanotkun hreinlega kollríður allri fyrri hefð. - þetta þíðir að við fyrri kjör tók aðeins 3 tíma í Hermi að greiða árgjaldið niður að fullu - þetta "business case" gengur ekki upp og við munum því taka ákvarðanir um hækkun árgjalds á aðalfundi sem ég hvet alla til að mæta á. Hugsanlega verulega samhliða stýringu á fjölda skipta í hermi eins og á vinavelli (5 skipti) - þetta er samt lúxusvandi sem við leysum saman með þeim 800 félögum sem manna Frímann.
Fh Stjórnar - Hrafnkell Tulinius , Gjaldkeri
Blessuð
Aðalfundur Frímanns verður föstudaginn 13 mars 2026 kl. 17 í Bræðrastofu
Dagskrá Aðalfundar Frímann 13 mars 2026
a) Kosinn fundarstjóri og ritari að tillögu stjórnar.
b) Skýrsla formanns/stjórnar um liðið starfsár.
c) Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar.
d) Fjárhagsáætlun næsta árs kynnt. Árgjald ákveðið.
e) Lagabreytingar teknar til umræðu og afgreiðslu.
f) Kosning formanns til eins árs.
g) Kosning tveggja stjórnarmanna til tveggja ára.
h) Kosning þriggja varamanna í stjórn til eins árs
i) Kosning skoðunarmanns ársreikninga.
j) Önnur mál.
Sjáumst hress, heitt kaffi á könnunni.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Address
Skúlagata 55
Reykjavík
105