Bur Knattspyrnudeild

Bur Knattspyrnudeild

Share

Barna og unglingaráð knattspyrnudeildar Fylkis

10/12/2025

🎅 Jólanámskeið knattspyrnudeildar Fylkis – þar sem börnin fá loksins að hreyfa sig eftir allan piparkökubaksturinn!

Áttu barn í 4.–7. flokki hjá Fylki sem hefur þegar gefist upp á að vakna fyrir hádegi í jólafríinu?

Ekki hafa áhyggjur – við tökum á því!

Sendu barnið á Jólanámskeið Fylkis, þar sem við höldum uppi frábærri hefð:
👉 vekja krakkana óþægilega snemma (að þeirra mati)
👉 koma þeim á Fylkisvöll fyrir kl. 9:30
👉 skila þeim aftur heim upp úr 12:30, sælum, sveittum og líklega svolítið sveitt-jólalegum

Dagana 21.–23. desember mun Fylkisvöllurinn verða vettvangur fyrir knattspyrnu, fjör og mögulega veður sem við myndum helst vilja panta öðruvísi – en það verður bara jólagaman á íslenskan hátt.

Stjórn og skipulag verður í höndum Alexandre Massot, sem kann bæði að þjálfa fótbolta og halda utan um hóp barna sem eru mögulega á orkustigi sem jafnast á við jólaseríur í stuttbuxum. Með honum verður úrval þjálfara úr fjölmörgum flokkum Fylkis.

Skráðu barnið og gefðu þér rólegan morgun kaffisopa án þess að heyra:
“Mamma/pabbi, hvað á ég að gera í dag?”

Skráning á Abler: https://www.abler.io/shop/fylkir/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTA0MjY=/

Hlökkum til að sjá okkar iðkendur

Áfram Fylkir 🧡🖤

05/12/2025

Frábær ráðning þó við segjum sjálf frá!

Barna- og unglingaráð Fylkis hefur ráðið Steinar Leó Gunnarsson sem nýjan yfirþjálfara yngri flokka félagsins

Hann tekur við af Sigurði Þór Reynissyni sem sinnt hefur stöðunni síðastliðin 6 ár, en síðasta árið hafa þeir skipt yfirþjálfarastöðunni sín á milli. Steinar Leó mun áfram leiða þróun og uppbyggingu þjálfunar deildarinnar af miklum metnaði, og tryggir þannig framúrskarandi tækifæri fyrir unga knattspyrnumenn Fylkis.

Steinar Leó er með UEFA A þjálfaragráðu og býr yfir áralangri og dýrmætri reynslu af þjálfun, bæði innan Fylkis og hjá öðrum félögum á Íslandi.

Barna- og unglingaráð Fylkis segir ráðninguna styrkja sýn félagsins um að vera í fremstu röð í uppbyggingarstarfi, veita bestu mögulegu þjálfunina og vera mikilvægt skref í áframhaldandi og kraftmikilli þróun deildarinnar.

Við hlökkum til spennandi framtíðar. Þessi nýi kafli lofar afar góðu fyrir allt Fylkisfólk.

19/10/2025

Pink Lady Mót Fylkis
5. fl kvk

Úrslit leikja og stöðu í riðlum dagsins má finns hér

bikarmot.torneopal.com

18/10/2025

Pink Lady Mót Fylkis

Nálgast má úrslit í leikjum og riðlum dagsins inná torneopal

bikarmot.torneopal.com

14/10/2025

Pink Lady Mót Fylkis
5. flokkur kk og kvk

18. október - 5 fl kk
19. október - 5 fl kvk

Hlökkum til að sjá ykkur!!!

Photos from Bur Knattspyrnudeild 's post 04/10/2025

Capri-Sun mót Fylkis hófst í dag. Mörg hundruð krakkar og enn fleiri foreldrar skemmtu sér hrikalega vel, skoruðu helling af mörkum, vörðust enn fleiri skotum og allir sáttir heim eftir daginn.

Við byrjum aftur á morgun kl 10 og hlakkar okkur mjög mikið til

Photos from Bur Knattspyrnudeild 's post 02/10/2025

Undirbúningur fyrir Capri-Sun mót Fylkis í fullum gangi 🥳
Eigum von á fullt af fótboltasnillingum í 6. og 7.flokk í Árbæinn um helgina ⚽️

FORPÖNTUN TIL 3. OKTÓBER – VARATREYJA FYLKIS 23/09/2025

🎁 Jólagjöfin er komin! 🎁

Er ekki komið nóg af því að sjá krakkana keppa í vestum þegar Fylkir mættir liðum eins og Aftureldingu, Val og Þrótti ofl?

Örvæntið eigi – í fyrsta sinn er varatreyja Fylkis fáanleg sérstaklega fyrir yngri flokka félagsins!

Fyrir hverja er treyjan?

Yfirþjálfarar ásamt barna- og unglingaráði (BUR) mæla eindregið með að allir iðkendur yngri flokka verði sér út um nýju varatreyjuna – sérstaklega krakkar í 5.–2. flokki.

Verð og sala

👕 Í samvinnu við Macron fæst varatreyjan á aðeins 7.500 kr.
– seld á kostnaðarverði!

🗓 Sala stendur til 3. október
📦 Afhending: um miðjan desember

Hér: https://macron.is/vara/forpontun-til-3-oktober-varatreyja-fylkis/

👉 Sem sagt: fullkomin jólagjöf fyrir alla Fylkis-krakka!

Við hvetjum ykkur einnig til að merkja treyjuna strax í kaupaferlinu.

🧨 ATH að eftir 3. október verður pöntun send út til Macron á öllum seldum treyjum, ekki verður hægt að panta treyjuna eftir þann tíma þar sem hún er eingöngu fáanleg í sérpöntun hér og nú.

FORPÖNTUN TIL 3. OKTÓBER – VARATREYJA FYLKIS Afhending í desember Varatreyja Fylkis, fótbolti og handbolti

03/09/2025

Skráning hafin!

Linkur í komment.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address

Fylkisvegur 6
Reykjavík
110