23/10/2026
Það er ánægjulegt að sjá Abel frá Nordal og knapa hans, Lenu Maxheimer, núverandi heimsmeistara í fimmgangi, efst á heimslista í F1-fimmgangi.
Abel er undan Gandálfi okkar frá Selfossi. Gandálfur fæddist árið 2004 og var fjórða elsta afkvæmi Álfadísar frá Selfossi. Faðir hans var Gustur frá Hóli.
Móðir Abels er Drottning frá Ytri-Löngumýri. Hún var aldrei sýnd í kynbótadómi en hefur eignast 11 afkvæmi. Abel er enn sem komið er sá eini þeirra sem hefur verið sýndur á kynbótasýningu og hlotið kynbótadóm. Hann er næsthæst dæmda afkvæmi Gandálfs, með 8,46 í aðaleinkunn, sem hann hlaut s*x vetra gamall. Hann hlaut 8,23 fyrir sköpulag, þar á meðal 9,0 fyrir höfuð og háls og herðar, og 8,62 fyrir hæfileika, þar á meðal 9,0 fyrir tölt, vilja og fegurð í reið og 7,5 fyrir skeið.
Í nokkur ár kepptu Abel og Lena með góðum árangri í fjórgangi og tölti. Árangur þeirra varð þó einstakur eftir að þau hófu skeiðþjálfun og færðu sig yfir í fimmgang.
Gandálfur var frábær reiðhestur en var ekki sýndur í kynbótadómi fyrr en hann var fimm vetra, einfaldlega vegna þess að hann var ekki nógu sterkur fjögurra vetra. Hann var fremur léttbyggður og þurfti aðeins lengri tíma til að ná jafnvægi og styrk svo hæfileikar hans nytu sín sem best.
Fimm vetra hlaut hann 8,19 í aðaleinkunn, þar af 8,31 fyrir hæfileika. Sjö vetra hlaut hann sinn hæsta kynbótadóm: 8,46 í aðaleinkunn, þar af 8,08 fyrir sköpulag og 8,72 fyrir hæfileika. Meðal einkunna hans voru 9,5 fyrir vilja og 9,0 fyrir bæði skeið og geðslag.
Við notuðum Gandálf aðeins tvisvar til undaneldis heima. Við höfðum þegar notað föður hans, Gust frá Hóli, mikið, og Álfadís átti marga aðra syni sem við höfðum einnig notað. Okkur fannst því tímabært að taka stutt hlé frá þeirri blóðlínu. Gandálfur á nú 159 skráð afkvæmi og hafa 14 þeirra hlotið kynbótadóm. Það eru færri dæmd afkvæmi en hjá mörgum öðrum sonum Álfadísar. Þrátt fyrir það hefur hann skilað afbragðshrossum.
Merkasta dóttir Gandálfs er Brák frá Egilsstöðum. Hún hlaut 8,35 í aðaleinkunn s*x vetra, þar af 7,88 fyrir sköpulag og 8,65 fyrir hæfileika. Hún hlaut meðal annars 9,0 fyrir vilja, fegurð í reið, fet og hægt tölt. Hingað til hafa fimm afkvæmi hennar verið kynbótadæmd og er meðaltal aðaleinkunnar þeirra 8,09. Hæst dæmda afkvæmið er Grásteinn frá Egilsstöðum I, sem við eigum í sameiningu með ræktanda Brákar. Hann var sýndur á Landsmóti í ár og hlaut 8,54 í aðaleinkunn fimm vetra, þar af 8,63 fyrir hæfileika og 9,0 fyrir brokk, vilja og fegurð í reið.
Önnur athyglisverð dóttir hans er Á frá Pétursbergi, sem vakti töluverða athygli þótt hún næði ekki háum fyrstu verðlaunum. Undan henni kom hesturinn Ljúfur vom Petersberg, sem hlaut 8,18 í aðaleinkunn s*x vetra gamall, þar af 9,0 fyrir tölt og fegurð í reið og 5,0 fyrir skeið. Ljúfur á nú 25 afkvæmi.
Hæst dæmda afkvæmi Gandálfs er Styrkur frá Leysingjastöðum, sem hlaut 8,46 í aðaleinkunn. Einkunnir hans fyrir hæfileika voru allar 9,0 nema 5,0 fyrir skeið og 8,5 fyrir hægt tölt. Áður en Styrkur fór til Danmerkur eignaðist hann þar nokkur góð afkvæmi á Íslandi. Hann er nú búsettur í Danmörku þar sem hann er notaður til undaneldis. Styrkur á 14 kynbótadæmd afkvæmi og samanlögð aðaleinkunn þeirra er 121. Það vantar aðeins eitt dæmt afkvæmi til viðbótar til að hann hljóti fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi. Hæst dæmda afkvæmi Styrks er Knörr frá Ketilsstöðum, sem hlaut 8,37 í aðaleinkunn fjögurra vetra.
Það er yndislegt að sjá þau áhrif sem gen Gandálfs hafa. Hann hafði frábærar gangtegundir, en það sem ég man best eftir er karakterinn hans. Hann hafði eina ljúfustu sál sem ég hef kynnst í hesti. Ég held að hann hafi jafnvel verið ljúfasti hestur sem ég hef þekkt.
Ef þið eigið myndir af afkvæmum eða afkomendum Gandálfs þætti okkur vænt um að þið deilduð þeim her með okkur, undir comments.
A lovely moment for Gandálfur frá Selfossi’s legacy: his son Abel fra Nordal and rider Lena Maxheimer are current World Champions in Five-Gait and at the top of the F1 Five-Gait World Ranking List.
Gandálfur was a wonderful riding horse with a kind and unforgettable character. His genes continue to shine through his outstanding offspring and descendants.
Read the full article on Gangmyllan’s page.