05/06/2026
Klébergslaug verður lokuð mánudaginn 15. júní. Unnið verður að tengingu stofnlagnar á Kjalarnesi sem hefur áhrif á aðgang að heitu vatni. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir skilninginn.
04/06/2026
Kæru gestir
Viðhaldslokun í Árbæjarlaug fer fram dagana 8. - 15. júní. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum tillitsemina.
01/06/2026
Nú er opið lengur um helgar í sumar! Opið til 22:00 alla daga til 31. ágúst að Klébergslaug undanskilinni 🐳
29/05/2026
Kæru gestir
Viðhaldslokun í Dalslaug fer fram dagana 1. - 7. júní.
21/05/2026
Samflot í Grafarvogslaug í kvöld!
Samflot í Grafarvogslaug
Fimmtudagur 21. maí
kl. 20.30
Öll velkomin! 💦
21/05/2026
💧Opið 11:00-17:00 í öllum sundlaugum Reykjavíkur um hvítasunnuhelgina!
20/05/2026
Kæru gestir.
Viðhaldslokun í Sundhöll Reykjavíkur fer fram dagana 26. maí – 21. júní. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum tillitsemina.
20/05/2026
☀️Opnum svalirnar kl.12 í dag!
☀️Gleðifréttir frá Sundhöll Reykjavíkur!
🔆Vestari sólbaðssvalir Sundhallar Reykjavíkur, verða opnaðar aftur á morgun miðvikudaginn 20. maí klukkan 12.00.
🛠️Sólbaðssvalirnar hafa verið lokaðar frá því 2024. Frá þeim tíma hefur verið ráðist í viðhald og endurbætur á svölunum til að bæta bæði öryggi og upplifun gesta.
🧡Aðstaðan hefur verið yfirfarin og endurnýjuð með það að markmiði að skapa notalegt og öruggt umhverfi fyrir laugargesti.
⛱️Veðurspáin fyrir morgundaginn er mjög góð, og alveg tilvalið að skella sér í sund og leggjast svo út í sólina á sólbaðssvölunum í Sundhöllinni.
12/05/2026
🏊Komið er að árlegum viðhaldslokunum í sundlaugunum í Reykjavík. Viðhaldslokanir fara fram á sumrin þar sem ekki er hægt að sinna viðhaldi utanhúss á veturna.💦
💧Í viðhaldslokunum er farið í viðgerðir á mannvirkjum, málun, múrvinnu og almennt viðhald sem ekki er hægt að framkvæma á opnunartíma.🩳🩱👙
Viðhaldslokanir í sundlaugum Reykjavíkur í sumar:
Sundhöll: 26. maí – 21. júní
Árbæjarlaug: 8. – 15. júní
Dalslaug: 1. – 7. júní
Grafarvogslaug: 15. – 23. júní
Vesturbæjarlaug: 23. júní – 30. júní
Klébergslaug: 24. – 30. ágúst
Laugardalslaug: 24. – 30. ágúst
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum tillitssemina.🩵
Sundlaugar Reykjavíkur