14/12/2025
Meðgöngujóganámskeiðin okkar eru 4 vikur í senn og kennslan fer fram í yndislegum sal Fæðingarheimilis Reykjavíkur. Hjartanlega velkomin 🧡🤎🧡🤎
Meðgöngujóga í Fæðingarheimili Reykjavíkur,
Öndun - Slökun - Hreyfing. All
14/12/2025
Meðgöngujóganámskeiðin okkar eru 4 vikur í senn og kennslan fer fram í yndislegum sal Fæðingarheimilis Reykjavíkur. Hjartanlega velkomin 🧡🤎🧡🤎
04/05/2024
28/01/2024
🧡🙏🏼🧡
28/01/2024
Í meðgöngujóga leggjum við áherslu á allskonar fræðslu sem valdeflir og eykur innsæi og skilning á meðgöngu og fæðingu, og styður við góða fæðingarupplfun ❤️🧡
08/01/2024
Á mömmujóganámskeiði hlúum við að nýbakaðri móður og barni. Þessi tími er svo ótrúlarga mikilvægur í lífi bæði móður og barns og hann kemur aldrei aftur. Á þessum tíma ertu að leggja grunn að tengslamyndun við barnið og þinni andlegu heilsu, þar að auki eru miklar líkamlegar breytingar að eiga sér stað og mjúk hæfileg hreyfing í jóganu er dásamleg til að styðja við þessar líkamlegu breytingar❤️🧘🏼♀️❤️👶🏼❤️
06/10/2023
MÖMMUJÓGA 🩵 Líkamlega og andlega endurnærandi og styðjandi tímar fyrir nýbakaðar mæður og börn þeirra, tækifæri til að tengjast öðrum konum í sömu stöðu og deila reynslu og sögum 🩵 Hjartanlega velkomin í Mömmujóga!
28/09/2023
Eftir mjúka og góða hreyfingu, teygjur og öndunaræfingar fá yndislegu óléttu konurnar sem koma til okkar í meðgöngujóga langa og góða leidda slökun. Við gerum annað hvort Nidra eða leidda ímyndunarhugleiðslu til þess að senda þær í heiminn milli draums og vöku (stundum heyrast smá hrotur 😉❤️)
07/09/2023
Hlutver fæðingarfélaga er gríðarlega mikilvægt. Því miður en skiljanlega vita fæðingafélagar oft ekki hvernig þeir geta best hjálpað konunni. Á meðgöngujóganámskeiðunum okkar er einn tími þar sem fæðingarfélaga er boðið með og hann/hún fær hjálp og hugmyndir um hvernig er best að veita góðan stuðning. Rannsóknir sýna nefnilega að góður stuðningur í fæðingu hefur mikil og góð áhrif á fæðinguna t.d styttri fæðingartími, betri upplifun, lægri tíðni verkjastillingar með lyfjum og hærri tíðni fæðingar um leggöng. Stuðningurinn skiptir MJÖG miklu máli ❤️
21/07/2023
Nadia Pálsdóttir mun kenna meðgöngujóga á íslensku og ensku.
Velkomin elsku Nadia 💕
Nadia er jógakennari og næringaráðgjafi fyrir konur á meðgöngu, eftir fæðingu og börn sem eru að byrja á fastri fæðu. Einnig er hún menntuð sem klassískur söngvari frá Listaháskóla Íslands og með tveggja ára diplóma nám i söngleikjalist frá New York.
Hún útskrifaðist sem jógakennari árið 2019 hjá YogaWorks í Thailandi og sem meðgöngujógakennari í Guatemala hjá School Yoga Institute. Hún útskrifaðist sem næringaráðgjafi fra Oh Baby School of Holistic Nutrition og heldur úti instagram-inu þar sem hún miðlar allskonar fróðleik um næringu barna og mæðra á meðgöngu jafnt sem eftir fæðingu.
Nadia hefur mikla ástríðu fyrir að styðja og fylgja mæðrum í gegnum þetta dýrmæta tímabil sem er meðgangan og móðurhlutverkið. Meðgangan kallar á að við förum dýpra innra með okkur, en nokkru sinni fyrr, bæði líkamlega og andlega. Það er margt sem opnast fyrir okkur og margar breytingar sem eiga sér stað á þessu magnaða ferðalagi og það er fátt betra en að hafa samfélag og stuðning annarra kvenna í kringum sig.
Nadia er gift og á eina dóttur. Hún hefur verið búsett í New York síðastliðin 10 ár, þar sem hún starfaði sem jógakennari og kenndi bæði vinyasa og meðgöngujóga.
🙏🏼☀️🧘🏼♀️
21/07/2023
01/01/2023
Meðgöngujóga er frábær leið til að auka vellíðan á meðgöngu og til að undirbúa þig fyrir fæðingu. Lokuð 4 vikna námkeið á mán og fim, þú velur kl 10 eða 17. Komdu og vertu með, hittu aðrar verðandi mömmur og finndu endurnæringu á líkama og sál 🙏🏼
18/12/2022
Komdu gerðu vel við þig, kertaljós og kósýheit, styrking, teygjur, öndun og slökun. Komdu og vertu með. Stakir tímar bókanlegir á www.yogaljos.is