Primal Iceland

Primal Iceland

Share

Primal Iceland is a Movement and Wim Hof facility in Reykjavík, Iceland.

27/05/2026

Líkaminn fer ekki í sumarfrí – og við ekki heldur! ☀️🐵☀️
Sjá nýjungar í ath! 👇

30/04/2026

1. maí = Hefðbundin dagskrá fellur niður!
En Movement kl. 10:00 er ON 🐵
Næstu námskeið hefjast 6. & 7. maí.
Opið fyrir skráningar á primal.is ☀️

Photos from Primal Iceland's post 06/04/2026

💥Apríl námskeiðin hefjast strax eftir páska!💥
Við sláum ekki slöku við – það styttist í sumarið ☀️
Höldum áfram að byggja upp liðleika, léttleika og styrk – svo líkaminn vinni með þér, ekki á móti í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur!
🏌🏻‍♀️🥾🚴🏼‍♀️🎾🏃‍♀️

Við bjóðum upp á fjölbreyttar leiðir sem styðja þig í að ná frelsi í eigin líkama:

✨ Calisthenics - (Fullt)
✨ Sigrum streituna
✨ Kröftugar konur (að fyllast)
✨ Stirðir strákar (að fyllast)
✨ Primal Lífsstíll
✨ Movement – fyrir þá sem vilja meiri sveigjanleika 🐵

Tímar hefjast þriðjudag og miðvikudag ☝️

Hlökkum til að sjá þig!

Primal.is

28/03/2026

Opnunartími um páskana 🐣

Tímar í gangi alla daga – en hefðbundnir Movement tímar og lokuð námskeið falla niður (nema annað komi fram í Abler appinu – svo fylgist með þar 👈)

Þjálfarar og þema tímanna verða kynnt að vanda í Primal Iceland samfélaginu á FB.

Munið að skrá ykkur í tíma í Abler til að tryggja ykkur páskapláss 💪

Hlökkum til að sjá ykkur!
Kveðja, þjálfarar Primal 🐵

Photos from Primal Iceland's post 06/03/2026

Mars námskeiðin hefjast eftir helgi!

Við bjóðum upp á fjölbreyttar leiðir sem styðja þig í að ná frelsi í eigin líkama.

✨ Calisthenics- NÝTT (Fullt)
✨ Sigrum streituna
✨ Kröftugar konur
✨ Stirðir strákar
✨ Primal Lífsstíll
✨ Movement – fyrir þá sem vilja meiri sveigjanleika 🐵

Hvort sem þú vilt meiri ró, styrk eða hreyfigetu – leiðin er hér ☝️

Tökum mars af krafti – eða í mýkt.
Hvort sem heldur, gerum við það saman. 💛

Primal.is

17/02/2026

Calisthenics námskeið!💪

Mánudaga & miðvikudaga kl 18:40! Hefst 9.mars🙏

Á Calisthenics námskeiðinu er unnið með einfaldar en krefjandi hreyfingar til að byggja upp styrk, líkamsvitund og stjórn án lóðar eða flókins búnaðar.

Áhersla er lögð á líkamsbeitingu, tækni og stigvaxandi erfiðleikastig. Hver hreyfing á sér einfaldari og flóknari útgáfu, sem gerir iðkendum kleift að upplifa raunverulegar framfarir hvort sem markmiðið er fyrsta armbeygjan, fyrsta upphýfingin eða fyrsta muscle-upið.

Námskeiðið hentar þeim sem vilja:
– byggja upp sterkan og stöðugan líkama með eigin líkamsþyngd
– bæta líkamsvitund, líkamsbeitingu og stjórn
– læra grunn í calisthenics eða dýpka núverandi færni
– styrkja stoðkerfið á sjálfbæran og náttúrulegan hátt

Ekki er gerð krafa um fyrri reynslu eða styrk.

Útkoman er aukinn styrkur, betri líkamsstjórn og meira sjálfstraust í hreyfingu – bæði innan og utan æfingasalarins.

Calisthenics er styrkur sem þú berð með þér

12/02/2026

Langar þig að læra eða verða betri í að standa á höndum? 🤸
Laugardaginn 14. febrúar kl 11:30 - 13:30 ætlar Primal þjálfarar að miðla þekkingu sinni og aðstoða þátttakendur vinnustofunnar að ná betri tökum á handstöðunni á hvaða stigi sem er.
Á þessari 2 klst vinnustofu verður farið yfir helstu atriðin sem hjálpa þér að öðlast öryggi á hvolfi og geta staðið á höndum ásamt æfingum sam taka handstöðuþjálfunina þína á næsta stig.
Vinnustofan hentar öllum, byrjendum jafnt sem lengra komnum.
Hlökkum til að taka á móti þér og hjálpa þér að ná þínum markmiðum!

*afsláttur fyrir korthafa Primal 🐵

Nánari upplýsingar á heimasíðu Primal eða í athugasemd hér að neðan!

11/01/2026

Hér má sjá tímatöflu Primal Iceland fyrir janúar 2026. 🐵 Í boði eru bæði lokuð námskeið og Movement, sem er aðal líkamsræktarform Primal.

Movement fylgir öllum námskeiðum, en einnig er hægt að skrá sig sérstaklega í Movement-tíma. Boðið er upp á afar fjölbreytta tíma, auk mismunandi korta og áskriftarleiða sem henta ólíkum þörfum og markmiðum.

Á heimasíðu Primal má finna nánari lýsingar á tímum, ásamt upplýsingum um verð og skráningu.

Kynntu þér málið og finndu það sem hentar þér best.

09/01/2026

Á morgun, laugardag, og sunnudag fer fram Sigrum streituna helgarnámskeið* (3 klst. hvorn dag).

Við bjóðum afslátt fyrir núverandi iðkendur Primal og tökum að sjálfsögðu vel á móti nýjum þátttakendum.

Námskeiðið er fjölbreytt og fræðandi og samanstendur af:
💫 öndun,
💫 stoðkerfisæfingum,
💫 fræðslu um streitu og áhrif streituhækja,
og ýmsum tækjum og tólum sem nýtast vel í daglegu lífi.

Markmiðið er að styðja við betri heilsu, auka þol gagnvart álagi og skapa betra jafnvægi í líkama, huga og hreyfingu.

*Nánari upplýsingar í hlekk í athugasemd

06/01/2026

Helgarnámskeið Sigrum streituna verður haldið 10. & 11. janúar! Sjá nánari upplýsingar í athugasemd! 💫

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Faxafen 12
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 06:10 - 18:30
Tuesday 06:10 - 18:30
Wednesday 06:10 - 18:30
Thursday 06:10 - 18:30
Friday 06:10 - 17:20
Saturday 10:00 - 11:00
Sunday 10:00 - 11:00