04/09/2026
⛳ Vetrarþjálfun 2026–2027 – skráning hafin!
Langar þig að bæta golfið í vetur? ⛳️
Skráning er hafin í Vetrarþjálfun 2026–2027 í Básum.
Vetrarþjálfunin hentar kylfingum á öllum getustigum, hvort sem þú ert nýbyrjuð/byrjaður í golfi eða hefur spilað í mörg ár.
Kennslan er að mestu einstaklingsmiðuð og yfir veturinn vinnum við meðal annars með golfsveifluna, styttri kylfur, teighögg og lengri kylfur ásamt markvissum æfingum með TrackMan. Í maí færum við okkur svo út og vinnum með pútt og vipp.
⛳ 30 mínútna tímar vikulega
👥 Hámark 6 kylfingar í hóp
📍 Básar, Grafarholti
💰 Verð: 60.000 kr.
📩 Skráning og nánari upplýsingar:
[email protected]
Sendu mér endilega tölvupóst með hvaða dagar og tímar henta þér eða þínum best.