Bílaklúbbur Akureyrar

Bílaklúbbur Akureyrar

Share

Bílaklúbbur Akureyrar var stofnaður 27. maí 1974 og er eitt elsta akstursíþróttafélag landsins.

The Akureyri Car Club is one of Iceland's oldest auto clubs, formed in 1974. The club has hosted variety of events throughout the years with ever growing annual calendar and very active volunteering membership. It is five minutes drive from downtown, about 10 minute walk from nearest bus station, located above Akureyri in the Glerardalur valley. The valley hosts also Akureyri Motorcross arena, Aku

07/06/2026
Vinnuhelgi 5-7 júní 02/06/2026

🚗💨 Helgina 5.–7. júní verður allt á fullu hjá okkur við undirbúning fyrir Bíladaga!
Framundan eru fjölmörg verkefni:
🔨 Loka holum og laga svæðið
🎨 Mála platta fyrir bílasýninguna
🏠 Standsetja nýju sjoppuna okkar
🚧 Setja upp girðingar
⚙️ Og ótal margt fleira sem þarf að klára áður en hátíðin hefst!

👉 Hvort sem þú getur lagt hönd á plóg í nokkrar klukkustundir eða allan daginn þá skiptir það máli. Hver einasta hjálparhönd færir okkur nær því að gera Bíladaga enn glæsilegri.

📝 Skráðu nafn þitt í skjalið sem er hér neðst í textanum og taktu fram:
• Hvaða dag þú getur mætt
• Sirka hvaða tíma
• Hversu lengi þú getur verið
• Þetta hjálpar okkur að skipuleggja
• En auðvitað má bara mæta líka, því á nógu er að taka.

Saman gerum við svæðið klárt fyrir stærstu mótorhelgi ársins! 💪

Við hlökkum til að sjá sem flesta og taka þátt í að skapa Bíladaga 2026! 🚗🏁🏍️

Vinnuhelgi 5-7 júní

31/05/2026

🚗💥 BÍLADAGAR ERU AÐ NÁLGAST – VIÐ ÞURFUM ÞIG Í LIÐIÐ! 💥🚗

Nýja sjoppan okkar þarf að komast í toppstand áður en fjörið hefst og því leitar Bílaklúbbur Akureyrar að öflugum höndum til að taka þátt í undirbúningnum!

🔧 Tiltekt
📦 Skipulagning
🛠️ Standsetning sjoppunnar
🏁 Og ýmislegt fleira sem þarf að gera fyrir Bíladaga

Hvort sem þú getur lagt fram klukkutíma eða heilan dag, þá skiptir framlag þitt máli. Margar hendur vinna létt verk og saman gerum við svæðið klárt fyrir eina stærstu bílahátíð ársins!

Hittingur vegna verkefnisins verður mánudaginn 1. júní 2026 í sal BA kl. 20:00. Hliðarfjallsvegur 13

Komdu, taktu þátt og hjálpaðu okkur að skapa frábæra umgjörð fyrir Bíladaga. Þetta er frábært tækifæri til að hitta félaga, taka þátt í starfinu og leggja þitt af mörkum fyrir klúbbinn.

Sjáumst á mánudaginn 1.júni 2026 kl. 20:00!

27/05/2026

Vegna kvartana sem borist hafa Bílaklúbb Akureyrar. Þar starfaði aðili sem hlotið hefur dóm. Þá viljum við sem berum ábyrgð á rekstri félagsins koma því á framfæri að ábendingin er tekin grafalvarlega og unnið verður í framtíðinni samkvæmt lögum og reglum íþróttahreyfingarinnar.

Við hörmum það virkilega að þessi atvik hafi komið upp og biðjumst innilegrar afsökunar á þessum atvikum. Unnið verður samkvæmt lögum og reglum og eru verkferlar okkar til endurskoðunar til að fyrirbyggja að svona atvik komi aftur upp með starfsfólk og sjálfboðaliða hjá félaginu.

Fyrir hönd stjórnar.
Einar Gunnlaugsson formaður Bílaklúbbs Akureyrar.

22/05/2026

Þetta á einungis við Sandspyrnuna sem er haldin 24. maí.

Viðburður: Sandspyrna Íslandsmót BA 1.umferð. | Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasamband Íslands 20/05/2026

Vegna tæknivandræða í mótakerfi þá höfum við ákveðið að framlengja skráningarfresti í spyrnum helgarinnar til kl. 12:00 föstudagsins 22. maí

Linkur á spyrnu fyrir þá sem eru hjá AKÍS
https://mot.akis.is/keppni/546
Linkur á sandspyrnuna fyrir þá sem eru hjá AKÍS
https://mot.akis.is/keppni/549

Linkur á spyrnu fyrir þá sem eru hjá MSÍ
https://msisport.is/keppni/143
Linkur á sandpyrnu fyrir þá sem eru hjá MSÍ
https://msisport.is/keppni/144

Viðburður: Sandspyrna Íslandsmót BA 1.umferð. | Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasamband Íslands Vefur Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambands Íslands

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Akureyri?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Website

Address


Hlíðarfjallsvegur 13
Akureyri
603